Austurland - 20.09.1984, Qupperneq 1
Austurland
34. árgangur.
Neskaupstað, 20. september 1984.
34. tölublað.
Helgi Seljan:
s
I glatkistu Alexanders
Mörg gullin loforð voru gefin
við myndun núverandi ríkis-
stjórnar.
Fá voru glæstari en fyrirheitin
til húsbyggjenda um hærri lán,
lægri lánstíma, betri kjör, skjót-
virkari afgreiðslu.
Það var hvergi í kot vísað hjá
félagsmálaráðherranum Alex-
ander, sem raunar mun einn
lagtækastur loforðasmiður á
landi hér.
Ný lög um húsnæðismál voru
afgreidd á síðasta þingi, og í
þeim falin mörg fyrirheit um
betri tíð með blóm í haga - ein-
hvern tímann. Það áþreifan-
lega, sem í lögunum fólst, var
niðurskurður félagslegra íbúða-
bygginga, lækkun lánshlutfalls
úr 90 í 80% til verkamannabú-
staða, og svo hin fræga frávísun
á húsnæðissamvinnufélögun-
um, sem seld voru á torgi frjáls-
hyggjunnar fyrir mangósopann
margþekkta. Ofurlítil vísbend-
ing um frammistöðu hins lag-
tæka loforðasmiðs eru G-lánin
- lán til kaupa á eldri íbúðum.
Þar fór þegar í vor fram veruleg
lækkun þeirrar lágmarksupp-
hæðar, sem lofað hafði verið og
til viðbótar hefur afgreiðslan
dregist von úr viti.
Nú fyrst er fólk, sem keypti
íbúðir í október í fyrra, að fá
lánin sín, nær þremur mánuðum
seinna en venjan hefur verið
mörg undanfarin ár.
Þeir sem keyptu íbúðir í
janúar á þessu ári, hefðu átt
samkvæmt reglum, sem gilt hafa
meira en áratug, að fá lán núna
l. október. Húsnæðisstofnun
Alexanders veitir mönnum þau
huggunarríku svör, að lánin
komi öðru hvoru megin \rið ára-
mótin, þeir sem best vita á þeim
bæ, segja janúar, febrúar, nema
eitthvað sérstakt komi til.
Samhliða þessari huggun
kemur önnur ekki síðri frá
bönkunum, sem tilkynna nú, að
erfitt eða ómögulegt verði að
semja um framlengingu lána,
m. a. til þeirra, sem tekið hafa
lán til að brúa bilið fram að láni
Húsnæðisstofnunar.
Seinagangur á afgreiðslu hef-
ur líka verið tilfinnanlegur
gagnvart nýbyggingum og
versnar að mun næstu mánuði
að sögn húsnæðisstjórnar-
Fádœma seinagangur er á afgreiðslu húsnœðislána.
Að sjálfsögðu máttu þeir
Steingrímur og Þorsteinn ekki
vera að því að hugsa um svona
smámuni í frelsisáætluninni
miklu. Húsbyggjendur og hús-
kaupendur eru ekki hátt skrif-
aðir á þeim bæjum utan Stiga-
hlíðarmenn og aðrir slíkir bón-
bjargaraðilar. Eftir stendur lof-
orðasmiðurinn lagtæki með
glatkistu sinna gullnu loforða.
Það er margur mangósopinn, en
beiskur mun hann reynast þeim,
sem vantar þak yfir höfuðið.
Sífellt fjölgar nemendum í
framhaldsnámi hér í fjórðungn-
um, en eins og lesendum blaðs-
ins er kunnugt, hafa þeir skólar,
sem bjóða upp á framhaldsnám
Börkur seldi í
Grimsby í gær
í gær seldi Börkur NK-122
tæpar 200 lestir af blönduðum
afla í Grimsby og fékk kr. 26.80
fyrir hvert kg til jafnaðar, sem
er allgott verð.
Verð á ferskum fiski á Bret-
landsmarkaði hefir verið mjög
breytilegt í sumar, fór um tíma
allneðarlega, en virðist vera á
uppleið aftur. Spáð er háu verði
á Bretlandsmarkaði í haust.
Börkur er búinn að fara all-
margar söluferðir til Bretlands
í sumar. Hann er væntanlegur
heim til Neskaupstaðar aðfarar-
nótt sunnudags eða á sunnu-
dagsmorgun.
á Austurlandi, mikið og gott
samstarf sín á milli.
Nú er haustönn nýhafin í
skólunum og samkvæmt þeim
upplýsingum, sem blaðið hefur
aflað sér munu alls um 480 nem-
endur stunda nám á henni.
I Menntaskólanum á Egils-
stöðum eru nú 230 - 240 nem-
endur og hafa aldrei fleiri nem-
endur lagt stund á nám við
skólann.
1 Framhaldsskólanum í Nes-
kaupstað eru 115 nemendur í
framhaldsnámi, en á sama tíma
í fyrra voru þeir 70 talsins.
Við ^lþýðuskólann á Eiðum
eru um 80 nemendur í fram-
haldsnámi, rúmlega 15 í Seyðis-
fjarðarskóla og rúmlega 30 í
Heppuskóla á Höfn í Horna-
firði.
Hússtjórnarskólinn á Hall-
ormsstað býður ekki upp á nám
á framhaldsskólastigi á þessari
önn. S. G.
Seyðisfjarðarskóli tók til
starfa í byrjun september. Nem-
endur í vetur eru um 190, þar
af 30 í forskóla. Er það nokkur
fækkun frá sl. skólaári. Fram-
haldsdeild starfar við skólann
eins og verið hefur undanfarin
ár.
Þorvaldur Jóhannsson, sem
verið hefur skólastjóri sl. 10 ár,
lét af störfum og hefur tekið við
Seyðisfjörður:
Hótel Snæfell
endurbyggt
Um 480 nemendur í
framhaldsnámi á Austurlandi
Hótel Snæfell á Seyðisfirði
hefur verið endurbyggt af Pétri
Jónssyni húsasmíðameistara og
hófhannreksturþess31. maísl.
í húsinu eru 10 gistiherbergi,
en gistirými fyrir 20-25 manns.
Sturtubað og klósett er í hverju
herbergi og aðstaða öll hin ágæt-
asta.
þar verði alhliða greiðasala.
Verðlag á hótelinu er hið sama
og á Edduhótelum.
Aðsókn að hótelinu í sumar
hefur verið góð, en það hefur
ekki verið starfrækt um nokk-
urra ára skeið. Reynsla sumars-
ins sýnir hiklaust, að þörf fyrir
starfsemi sem þessa er ótvíræð
Áformað er, að hótelið verði á Seyðisfirði.
rekið allt árið og er ráðgert, að
J. J. I S. G.
Um 190 nemendur í Seyðisfjarðarskóla
starfi bæjarstjóra. Nýi skóla-
stjórinn heitir Albert Ó. Geirs-
son og er hann Austfirðingur að
ætt, fæddur á Djúpavogi.
Undanfarin ár hefur Albert
kennt við Varmahlíðarskóla í
Skagafirði.
Fjórir nýir kennarar komu til
starfa við skólann í haust, allt
aðkomumenn.
J. J. / 5. G.
Knattspyrnufréttir:
Leiknir íslandsmeistari
íslandsmótinu í knattspyrnu lauk um síð-
ustu helgi og er óþarfi að tíunda úrslitin hér.
Heldur lítið fór þó fyrir fréttum í útvarpinu
um það hverjir höfðu orðið sigurvegarar í
4. deild.
Eins og áður hefur verið getið hér í blað-
inu, lék Leiknir í úrslitakeppni 4. deildar
um það að fá að leika í 3. deild að ári.
Leiknir vann úrslitakeppnina í norð-austur-
liðakeppninni. Þeir léku svo sl. laugardag
við Ármenninga, sigurvegarana í suð-vest-
urliðakeppninni um meistaratitil 4. deildar.
Leiknir sigraði með tveimur mörkum gcgn
einu.
Til hamingju Leiknismenn! Þ. J.