Austurland - 25.10.1984, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR, 25. OKTÓBER 1984.
----------Austurland---------------------
MÁLGAGN ALÞÝÐUBANDALAGSINS
Ritnefnd: Elma Guðmundsdóttir, Guðmundur Bjarnason,
Einar Már Sigurðarson, Þórhallur Jónasson og Smári Geirsson.
Ritstjóri: Birgir Stefánsson (ábm.) S7756.
Auglýsingar og dreifing: Aðalbjörg Hjartardóttir-Pósthólf 31
— 740 Neskaupstað - S7756.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Egilsbraut 11, Neskaupstað
S7756.
Prentun: Nesprent.
ÚTG.: KJÖRDÆMISRÁÐ ALÞÝÐUBANDALAGSINS
Á AUSTURLANDI
Stefnubreytingar er þörf
Nú hefir verkfall opinberra starfsmanna staðið í
þrjár vikur og samningar virðast litlu nær en í upp-
hafi. Ýmis bæjarstarfsmannafélög hafa þó samið síð-
ustu vikuna eða svo. Nýlokið er rúmlega sex vikna
verkfalli bókagerðarmanna. Verkfall blaðanna vofir
yfir og samningaviðræður hafa staðið yfir langa hríð
milli aðildarfélaga Alþýðusambandsins og atvinnu-
rekenda, án þess að nokkur lausn sé í sjónmáli.
Þannig er ástandið í velferðarríkinu íslandi á þess-
um haustdögum. Þetta varð sem sagt heitt haust á
sviði kjaramála, eins og taldar voru líkur á að yrði
í forystugrein AUSTURLANDS 20. sept. sl. Þannig
er ástandið eftir að hin sterka meirihlutastjórn íhalds
og framsóknar hefir verið við stjórnvölinn í landinu
í 17 mánuði.
í þjóðfélaginu ríkir upplausnarástand, fjárhagur
heimilanna er í rúst og framleiðsluatvinnuvegirnir
ramba á barmi gjaldþrots, en óarðbær starfsemi hvers
konar blómstrar. Fjárfesting er óheft í verslun og
þjónustugreinum og kaupmáttur almennings rýrnar
stöðugt og á þjóðhagsstofnun orðið í erfiðleikum
með að fela það.
En meðan Róm brennur reisa ráðherrar um heims-
byggðina, reykja vindla eða hrópa á frjálst útvarp.
Hvergi er tekið á vandanum, sem við er að fást.
Langvarandi verkföll stórs hluta hinna vinnandi
stétta hafa lítt raskað ró ríkisstjórnarinnar. Hríð-
versnandi afkoma fólks virðist ekki valda áhyggjum
á ríkisstjórnarheimilinu.
Hingað til hefir ríkisstjórnin þvælst fyrir í lausn
vinnudeilna, dregið viðræður á langinn og viljað tala
um allt annað en raunverulegar kjarabætur, þegar
hún hefir látið svo lítið að tala við fulltrúa launþega.
Langt er síðan svo raunveruleikafirrt ríkisstjórn hefir
setið að völdum hér á landi.
Almenningur í landinu þolir ekki mikið lengri
verkföll eða víðtækari. Það er því krafa alls launa-
fólks, að ríkisstjórnin átti sig á því nú þegar, að hún
þarf að verða viðræðuhæf í alvöru um bætt launakjör
almennings og aukinn kaupmátt. Hún verður að átta
sig á því, að lífsafkoma fólksins í landinu þarf að
stórbatna, hvert svo sem óskaverðbólgustig Vinnu-
veitendasambandsins og hugmyndasmiða ríkisstjórn-
arinnar er. Hún verður að átta sig á þessum stað-
reyndum og láta af sífelldum hótunum um, að launa-
hækkanir umfram einhverja lúsarhækkun þýði stór-
aukna verðbólgu og gengisfellingu. Allir vita, að
þetta þarf ekki að fara saman. Til þess þarf hins vegar
stefnubreytingu, og á henni þarf ríkisstjórnin svo
sannarlega að halda. B. S.
Hvolfþak flugstöðvarbyggingarinnar í Sharjah á Indlandi er málað með decadex vegna hins mikla
sólarhita.
Ný málning, sérstaklega sterk
og endingargóð er komin á
markað hérlendis. Á Austur-
landi hefir hún verið reynd í
Neskaupstað og á Eskifirði.
Innflytjandi þessarar málningar
er Vernd hf. Björgúlfur Hall-
dórsson, málari í Neskaupstað
er umboðsmaður fyrir þessa
málningu. AUSTURLAND
hafði samband við hann til að
fræðast um þessa nýjung.
□ Hvaðan er þessi málning og
hvaða reynsla er komin á hana?
■ Hún er bresk og á framleiðsl-
unni er 25 ára reynsla. Hingað
til lands var hún fyrst flutt í fyrra
og þá prófuð í Reykjavík. Þá
voru notaðir 11.000 I, en í júlí
í sumar var búið að flytja inn
20.000 I.
□ Hvað er sérstakt við þessa
málningu?
■ Hún hefir ótrúlega mikið
veðrunarþol, skorpnar ekki,
flagnar ekki af og heldur teygj-
anleika í lOára. m. k. Húnþol-
ir mikinn kulda og vatnsálag og
helst hrein. Helstu kostir henn-
ar eru teygj a, mýkt og útöndun.
ANDLÁT
Gunnar Víglundsson, útvegs-
bóndi, Urðarteigi 6, Neskaup-
stað, lést að heimili sínu í gær,
24. okt. 71 árs að aldri. Hann
var fæddur á Krossi í Mjóafirði
4. júní 1913. Hann var bóndi á
Krossi 1934 - 1944, síðan á
Krossstekk og í Skógum í Mjóa-
firði 1952 - 1955. Hann bjó í
Neskaupstað frá 1955 til 1962,
að hann flutti að Sómasataða-
gerði í Reyðarfirði og bjó þar
til ársins 1982. Þá flutti hann
aftur til Neskaupstaðar og átti
heima hér eftir það.
Eftirlifandi eiginkona Gunn-
ars er Ásta Ketilsdóttir.
Kirkja
Barnastarfið í Norðfjarðar-
kirkju hefst næstkomandi
sunnudag 28. október kl. lO111
f. h. Sóknarprestur.
Veitt er 10 ára ábyrgð á end-
ingu og gefið út ábyrgðarskír-
teini að verki loknu, en miðað
er við, að lærðir málarar fram-
kvæmi verkið. Ending utanhúss
við venjuleg skilyrði er talin
vera allt að 35 árum.
□ Er meiri vandi að mála með
þessari málningu en venjulegri
málningu?
■ I sjálfusérerekkimeirivandi
að mála með henni, en undir-
búningsvinnan er miklu meiri og
vandasamari. Það þarf að þvo
flötinn með háþrýstidælu. Síðan
þarf að grunna með tvíþættum
epoxygrunni, sem standa þarf
a. m. k. 6 klst. áður en málað
er. Málningunni er síðan smurt
á meö rúllu eða sprautu og þorn-
ar hún yfirleitt á 2 - 24 klst. eftir
aðstæðum. Hægt er að mála þó
að raki sé allt að 19% í fletinum,
sem mála á. Mála þarf tvær um-
ferðir með utanhússmálning-
unni Decadex. Decadex er til í
11 litum.
Með þessari málningu er ekki
aðeins verið að mála, heldur
einnig að verja mannvirkið fyrir
veðrun.
□ Er ekki til innanhússmálning
líka?
■ Ekki venjuleg innanhúss-
málning á íbúðir, en það er til
sérstaklega sterk og þolin
málning, Steridex, sem er sótt-
hreinsandi, þ. e. að ekki lifir
neinn gróður í efninu. Allflestar
bakteríur deyja, er þær hafa
komist í snertingu við það, og á
því sér ekki stað neinn sveppa-
Innilegar þakkir flytjum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa
Einars Rósmundar Kristjánssonar
Steinholtsvegi 4, Eskifirði
Sérstakar þakkir til lœkna, hjúkrunarfólks og annars starfs-
fólks Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað
Þóruríri Karlsdóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn
V' '
Decadex er notað á hús rann-
sóknarmanna á Suðurskauts-
landinu vegna kulda og storma.
eða myglugróður í efninu. Efnið
er þó ekki á neinn hátt hættulegt
eða gefur frá sér eitrun.
Steridex er sérlega vel fallið
á skurðstofur, eldhús, bakarí,
sturtuklefa, búningsherbergi,
fiskvinnslur, kjötvinnslur,
mjólkurstöðvar, fjós og súr-
heysturna.
Þá er einnig til tegundin Steri-
pel, sem hefur líka eiginleika og
Steridex, en þar eru efni, sem
virka á miðtaugakerfi flugna og
skordýra og halda t. d. vinnslu-
stöðvum lausum við flugur og
önnur skordýr.
□ Er þetta ekki dýrari málning
en sú venjulega?
■ Jú hún er það, en hún endist
líka margfalt lengur. Það má
geta þess, að Hallgrímskirkja í
Reykjavík verður máluð með
þessari málningu og einnig kon-
ungshöllin norska, svo að menn
hafa trú á endingu hennar.
□ Er íslensk málning langt frá
þessari að endingu?
■ Já, hún virðist ekki standast
þann samanburð, en hraun-
málningin kemst næst því, sagði
Björgúflur Halldórsson að
lokum. B. S.