Birtingur - 01.06.1962, Qupperneq 71
UM BÆKUR
Lönd og þjóðir, RÚSSLAND,
eftir Charles W. Thayer,
Þýð. Gunnar Ragnarsson og Thorolf Smith.
Almenna Bókafélagið, Reyhjavik, 1962.
Rússland — og Sovétríkín í dag — er heimur út
af fyrir sig. Saga þess hefur ætíð runnið sinn eigin
farveg, lotið sínum eigin lögmálum. Rússnesk
menning hefur ætíð sótt meir til Býzans og Asíu
heldur en til Evrópu, — þar til nú á allra síðustu
tímum. Saga hinnar rússnesku þjóðar segir frá
friðsömu og þolgóðu fólki, gestrisnu og vinnu-
fúsu, fólki, sem þolað hefur örbrigð, skort og
asíatiska áþján um aldir, fólki, sem lagt hefur á
sig ómælanlegar þjáningar til að gera Rússland
— og Sovétríkin í' heild — að öðru stærsta iðnað-
arveldi heims.
í þesssu ómælisstóra landi hnígur sólin aklrei til
viðar; í norðurhluta þess er eilíft frost, í' suður-
hlutanum kcmur aldrei vetur. Landið búa á sjö-
unda tug þjóða, hver með sfnu tungumáli og
menningararfleifð.
Þetta land hefur verið mjög umdeilt á íslandi um
nokkurra áratuga skeið. Til eru þeir menn ís-
lenzkir, sem telja sér jaað helzt til pólitísks fram-
dráttar að segja úr þessu landi dýrðlegar álfa-
sögur, enda líta þeir á það nánast sem guðfræði-
legt trúarhugtak, nokkurs konar dulrænt himna-
ríki, sem hinum rétttrúuðu mun hlotnast þegn-
réttur í til endurgjalds fyrir heita trú og vel rækt
lofgjörðakvak.
Til er og annar hópur manna á íslandi, sem tel-
ur sér það helzt til pólitísks framdráttar að hall-
mæla hverju einu í Rússlandi, mála hvað eina,
sem þar gerist, sem dekkstum litum. í augum
þessa síðarnefnda hóps eru Sovétríkin staður
hinna illu afla, nokkurskonar helvíti, sem ber
að forðast, óttast og jafnvel hata.
Afstaða beggja þessara hópa dregur dám af guð-
fræðilegum hugsunarhætti og er á báða bóga
jafnfjarlæg heilbrigðri skynsemi.
Mjög lítið af raunverulegri fræðslu hefur birzt
á íslenzku um Sovétríkin í bókarformi. Heita
má, að erlend bók, sem Almenna bókafélagið
hefur nú gefið út í íslenzkri þýðingu, sé fyrsta
bókin af þessu tagi. Höfundur dregur enga dul á
það, að hann er andvígur því stjórnskipulagi,
sem nú rlkir í Sovétríkjunum. Samt sem áður
hefur hann gert sér far um að draga upp f ör-
stuttu máli nokkurn veginn sanngjarna mynd
af sögu, stjórnarfari, lífi og listum í hinu volduga
ríki. Höfundurinn hefur yfir mikilli þekkingu að
ráða og lýsir oft frásögnina mcð skemmtilegum
smáatriðum.
Höfundur gerir sér mikið far um, að sanna að
allt sem gerist í Sovétríkjunum sé eftir formúlum
frá Karli Marx. Af því leiðir að sjálfsöðu, að allir
þeir, sem aðhyllast kenningar Marx hljóti að
berjast fyrir sama ástandi heima hjá sér og ríkir
nú í Sovét. Slíkir og aðrir áróðurstilburðir lýta
mjög bókina og draga úr gildi hennar sem heim-
BIRTINGUR
69