Austurland


Austurland - 03.04.1985, Side 3

Austurland - 03.04.1985, Side 3
FIMMTUDAGUR, 3. APRÍL 1985. 3 imraæ □□□□□□□□□! 3 3 EGILSBUÐ S7322 — Neskaupstað Fimmtudagur 4. apríl kl. 2100 „GEIMSTRÍÐ II - REIÐI KHANS“ Sunnudagur 7. apríl PÁSKADANSLEIKUR Húsið opnað kl. 2400 á páskadagskvöld Bumburnar leika Laus staða Staða skrifstofumanns á Skattstofu Austurlandsumdæmis (V2 starf) er laus til umsóknar Starfið krefst góðrar vélritunarkunnáttu Laun skv. launakerfi ríkisstarfsmanna Umsóknir er greini frá menntun og fyrri störfum skilist til skattstjóra fyrir 9. apríl nk. Skattstjóri Austurlandsumdæmis s Ur einu íbúum fjölgar í Neskaupstað Á sl. ári fjölgaði íbúum Nes- kaupstaðar um 42 skv. tölum frá Hagstofunni og eru nú 1724 talsins. Þetta eru góð tíðindi og vonandi heldur þessi uppsveifla áfram enda er hér næg atvinna fyrir miklu fleiri hendur. Ekki hef ég séð tölur um, hvaðan þessi fjölgun kemur. Er þetta fólk sem flyst úr öðrum lands- fjórðungum, kemur það frá öðrum byggðarlögum á Austur- landi eða voru barneignir óvenju miklar í bænum? Gaman væri að hafa svör við þessum spurningum því sé litið á Austurland allt er þróunin því miður uggvænleg. Aðeins í þremur sveitarfélögum utan Neskaupstaðar er fjölgunin tveggja stafa tala; 23 í Hafnar- hreppi, 19 í Fellahreppi og 10 í Egilsstaðahreppi. Alls fjölgar í 13 sveitarfélögum, fækkar í 18 en 3 standa í stað. I Austur- landskjördæmi í heild fækkar íbúum um 25 og eru þeir nú 13.095 talsins. Hin uggvænlega þróun síðustu ára heldur áfram, aðeins Reykjavík og Reykja- neskjördæmi eru með fjölgun yfir landsmeðaltali. Straumur- inn liggur því áfram til suðvest- • • • • • urhornsins og þyngist með hverju árinu. Umgengni Þessi dæmalausa veðrátta hefur m. a. valdið því að ýmis- legt í umhverfinu stingur meira í augu enda ekki snjór til að hylja syndirnar (fyrr en nú í dymbilviku). Ég hef að vísu ekki gengið eða ekið um bæinn gagngert þeirra erinda að leita að slæmri umgengni en sumt kemst maður ekki hjá að sjá og haldi þetta indæla vorveður áfram vona ég að menn fari að komast í hreinsunarskap. Reyndar vil ég gjarnan meiri snjó, en það er önnur saga. Bæjaryfirvöld hafa í mörg horn að líta og vonandi líta þau fljótlega í hornið austan við Eg- ilsbúð, íshúsgrunninn. Hvernig væri að slétta gólfplötuna, fá unglinga til að mála steinvegg- ina og setja þarna upp einhvers konar útimarkað í sumar? Síldarvinnslan fer vonandi að afmá ummerki loðnugeymsl- unnar út við Bjarg og Steypusal- an (Máni) þarf líka að taka til hendinni á sínu athafnasvæði. Fleira mætti telja, en þetta eru þeir aðilar sem hvað mest hafa umleikis og blasa við akandi og gangandi fólki. En eigum við VILTU SKOÐA NORÐURLOND EÐA SKOTLAND? í sumar förum við í þriggja vikna rútuferð um Norðurlöndin, og tveggja vikna Skotlandsferð Förum frá Seyðisfirði og siglum með n/f Norröna til Færeyja og þaðan til Danmerkur Fimm aðalspurningar: Þar ökum við um Jótland og skoðum markverða staði Síðan förum við til. . . Nei, það er alltof langt mál að fara í að telja það allt upp, fáið senda ferðaáætlunina Nr. Spurning Svar 1 Hvað kostar N orðurlandaf erðin? 39.500 (Gengi 15.3. ’85) 2 Hvað fæ ég fyrir peningana? Allar ferðir (sigling, rúta, ferjur), gistingu allan tímann, 17 morguverði og 17 kvöldverði, íslenskan fararstjóra 3 Hvað er ekki innifalið? Aðgangur að skemmtistöðum, söfnumo. s. frv. 4 Er boðið upp á eitthvað fleira? Samsvarandi ferðir um Skotland, bara ódýrari 5 Hvar fé ég svona ferð? Hjá Ferðamiðstöð Austurlands og Benna & Svenna samband og fáðu frekari upplýsingar Ferðamiðstöð Austurlands S 1510 Benni & Svenni © 6399 Toppmyndir - og tækin á kr. 300 INddfAlH Til sölu OPIÐ ALLA DAGA 1 - 10 | VIDEO —S7707 Datsun Cherry ’79 Upplýsingar S7168 í annað ekki öll að bretta upp ermar og hefjast handa hvert á sínum stað? Móttaka ferðamanna Áhugi á móttöku ferðamanna fer nú vaxandi á Austurlandi. í vetur hafa víða verið stofnuð ferðamálafélög og fyrirhugað er að þau bindist saman í fjórð- ungssamtök síðar. í sameiningu geta þessi félög m. a. staðið að kynningu á Austurlandi og möguleikum ferðamanna í fjórðungnum, en þeir eru nán- ast ónýttir enn sem komið er. Því má búast við að á næstu árum verði verulegur vöxtur í þessari atvinnugrein og ýmiss konar ný þjónusta skjóti upp kollinum. Nefna má að til þessa hafa flestir þeir farþegar sem koma með ferjunni Norröna til Seyð- isfjarðar haft stuttan stans á Austurlandi. Skýringin á því er ekki síst sú að þeir vita af ferða- möguleikum bæði norðanlands og sunnan, en sáralítið um möguleika á að ferðast hér inn- an fjórðungsins. Verkefnin eru því næg framundan og vonandi drífa duglegir og hugkvæmir menn í því að nýta þá fjölmörgu möguleika, sem austfirsk nátt- úra og austfirskt mannlíf býður upp á. Rás 2 Nú hafa þeir sem beðið hafa í ofvæni eftir rás 2 fengið sína ósk uppfyllta að nokkru leyti. Það heyrist í henni víðast hvar á Austurlandi, en samt mjög misvel og á Reyðarfirði er mér tjáð að betur heyrist á rás 2 en gamla gufuradíóinu, rás 1. I Neskaupstað heyrist fremur illa í rás 2 innanhúss a. m. k. nema menn hafi því betri loftnet, en þetta stendur til bóta í sumar eða haust. Ég hringdi í Hans Þormar tæknifræðing hjá Pósti og síma og hann sagði mér að til stæði breyting á rás 1 í Neskaupstaðð. Sendir sá sem nú er á pósthúsinu (lOw) verður tekinn niður en í staðinn kemur lOOw sendir í Skuggahlíð og þar verður einnig settur annar lOOw sendir fyrir rás 2. Hans telur að þetta eigi að gefa góða útkomu og að við megum eiga von á þessum endurbótum í ágúst eða september. Vonandi er þetta nægur sendistyrkur, því sjálf- sagt ertækni- og verkfræðingun- um Ijóst að mest öll hlustun er á ferðatæki og aðeins örfáir hafa vönduð loftnet, enda hlýtur að vera ódýrara að kaupa einn góð- an sendi en 5 - 6 hundruð loftnet. Krjóh.

x

Austurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.