Austurland - 03.04.1985, Qupperneq 4
Austurland
Neskaupstað, 3. apríl 1985.
Austfjarðaleið hf. ® 4250 og 7713 T2~L. SKÍÐAFERÐIR JjajT? EIMSKIP * HITTUMST í B
STRANDFLUTNINGAR SPARISJÓÐNUM
í ODDSSKARÐ ® 7474 S 4199 Sparisjóður Norðfjarðar
Líflegt starf Tónlistarfélags Fljótsdalshéraðs
Aðalfundur Tónlistarfélags
Fljótsdalshéraðs var haldinn um
miðjan mars sl. á Egilsstöðum.
í skýrslu formanns félagsins,
Ólafar Blöndal kom fram að
síðastliðið ár var starf félagsins
líflegt að vanda, haldnir voru
þrennir áskriftartónleikar auk
aukatónleika með bandaríska
píanóleikaranum Nanci
Weems, en hún lék í Valaskjálf
10. apríl.
Fyrstu áskriftartónleikarnir
voru haldnir 1. maí en þá heim-
sóttu þeir Kristinn Sigurmunds-
son óperusöngvari og Jónas
Ingimundarson Austfirðinga,
en auk þess héldu þeir tónleika
á Seyðisfirði.
Helgina 10. og 11. nóvember
efndi félagið til árlegra »Tónlist-
ardaga á Héraði«. Fyrri daginn
voru aðrir áskriftartónleikar fé-
lagsins með þeim félögum
Gunnari Björnssyni cellóleikara
og David Knowles píanó-
leikara. Seinni daginn var svo
árlegur tekjuöflunardagur fé-
lagsins með kaffisölu og tónlist-
arlegu ívafi, í menntaskólanum.
Aðsókn var góð báða dagana.
Þriðju og síðustu áskriftartón-
leikarnir voru svo í Valaskjálf
23. febrúar og voru þar á ferð
söngvararnir Elín Sigurvins-
dóttir og Friðbjörn G. Jónsson,
sem fluttu lög eftir Sigfús Hall-
dórsson en hann lék sjálfur und-
irápíanó. Daginneftirvarþetta
Sigfúsarkvöld flutt í Neskaup-
stað.
Fyrstu tónleikar þessa starfs-
árs sem nú er að byrja verða í
byrjun maí með gítarleikurun-
um Siegfried Kobilza og Símoni
ívarssyni.
f lok fundarins voru fráfar-
andi stjórn færðar þakkir fyrir
gott starf á árinu. Úr stjórn
gengu: Bergur Sigurbjörnsson,
Sigríður Sóphoníasdóttir og
Óiafur Kristinsson. Núverandi
stjórn skipa: Ólöf Blöndal
form., Gunnþórunn Hvönn
Einarsdóttir, Ólafur Arason,
Laufey Egilsdóttir, Kristmann
Jónsson, Margrét Gísladóttir og
Magnús Magnússon. M. M.
E1 Grillo
Þann 16. febrúar 1944 gerðu
þýskar flugvélar sem oftar loft-
árás á Seyðisfjörð. Breska olíu-
birgðaskipið E1 Grillo, um
10.000 lestir að stærð, hafði um
hálfs annars árs skeið legið und-
an Háubökkum, skammt utan
hafnarinnar og í það sóttu her-
skip bandamanna olíu eftir
þörfum. í þessari árás féll
sprengja á skipið og laskaði það
svo að framendi þess sökk.
Breska herliðið mun síðan hafa
sökkt E1 Grillo fullkomlega
nokkrum klukkustundum síðar.
Strax byrjaði olía að leka úr
skipinu og ötuðust fjörur mjög
af henni og hefur þess reyndar
ávallt gætt í einhverjum mæli
alla tíð síðan.
Seyðfirðingar undu því illa að
hafa skipsflakið þarna á botni
fjarðarins og settu fram árið
1947 formlega kröfu um að skip-
ið yrði fjarlægt ásamt fébóta-
kröfu. Bretar höfnuðu öllum
kröfum, en buðust til að afsala
sér skipinu og því sem í því væri
og mun hafa verið að því
gengið.
Árið 1952 var síðan dælt úr
skipinu á vegum Olíufélagsins
og SÍS á milli 4000 og 5000 tonn-
um af olíu, sem var mjög erfitt
verk á þeim tíma, enda liggur
flakið á 44 metra dýpi.
Fyrir nokkrum dögum var
varðskipið Týr á Seyðisfirði og
vann áhöfnin ásaint her-
mönnum af Keflavíkurflugvelli
við að hreinsa djúpsprengjur og
skotfæri úr flakinu og er því
verki nú lokið með góðum ár-
angri.
Ekki fer á milli mála að Seyð-
firðingar eiga siðferðilegan rétt
til að setja fram þá kröfu að
skipið verði fjarlægt úr höfninni
og hefðu íslensk stjórnvöld mátt
halda betur á málinu gagnvart
styrjaldaraðilum þeirra tíma.
Það er ómaksins vert að hafa
þessa sorgarsögu í huga nú þeg-
ar unnið er markvisst að því að
reyra landið æ fastar í viðjar
hernaðarumsvifa og stríðsótta.
J. J. I S. G.
Pað er fjölmennt á kaffisöludegi tónlistarfélagsins.
Fermingarbörn
í Seyðisfjarðarkirkju
4. apríl 1985 kl. II00
1. Arnar Þór Guttormsson, Austurvegi 17b,
2. Dóra M. Takefusa, Austurvegi 21,
3. Guðrún Gísladóttir, Leirubakka 2,
4. Guðrún María Traustadóttir, Árstíg 7,
5. Halldóra Rannveig Blöndal, Botnahlíð 19,
6. Jóna Bára Jónsdóttir, Dalbakka 3,
7. María Svanþrúður Jónsdóttir, Hánefsstöðum,
8. Rúnar Gunnarsson. Árbakka 1,
9. Sigurður Högni Sigurðsson, Dalbakka 5,
10. Stefán Ragnar Magnússon, Brekkugötu 5,
11. Svanhildur Ásta Kristjánsdóttir, Botnahlíð 13,
12. Svanur Þór Pálsson, Oddagötu 4e,
13. Viktor Bergur Björnsson, Árstíg 5.
m
NESKAUPSTAÐUR
Frá Náttúrugripasafninu
Safnið verður opið daglega kl. 16 - 18 frá
skírdegi til annars páskadags Safnvörður
NEISTAR
Konur á vinnumarkaði framtíðarinnar
Þegar við ræðum um bar-
áttu kvenna fyrir mannsæm-
andi lífi innan og utan heimil-
is, menntun og starfsþjálfun,
sangjörn iaun fyrir vinnu-
framlag og verðugt mat sam-
félagins á þeim störfum er
konur vinna, dugir ekki ann-
að en líta til framtíðarinnar
og hyggja vel að möguleikum
í atvinnuþróun.
Enga sérfræðinga þarf til
þess að sýna fram á, að ný-
sköpunar er þörf í atvinnulífi.
Aukin tæknivæðing fækkar
störfum í þeim atvinnugrein-
um sem fyrir eru, en eykur
væntanlega einnig framleiðni
og arð. Ætla má að árið 2000
verði um 126.000 manns á
vinnumarkaði hér á landi. Ef
iðnaði er þá ætlað að taka
svipaðan hluta vinnuaflsins og
hann gerir nú eða um 34%
kallar það á um 6000 ný störf
í iðnaði. En iðnaður er vítt
hugtak - erum við t. d. að tala
um stóriðju? Hvernig stóriðju
þá - í höndum hverra? Erum
við að tala um að nýta eigið
hráefni og auðlindir? Vilborg
Harðardóttir talaði um at-
vinnuþróun á íslandi á fyrr-
greindri kvennastefnu AB.
Meðal margra athyglis-
verðra staðreynda dró hún
upp mynd af því sem stóriðju-
áform á borð við þau sem nú
eru uppi færðu okkur eða
kannski öllu heldur færðu
okkur ekki. Hún taldi sýnt að
þótt öll stóriðjuáform sem til
eru á mismunandi stigum
kæmust í framkvæmd sem
raunar væri næsta ólíklegt,
myndu á endanum ekki nema
um 1000 manns starfa við
fyrirtæki þessi. Þar við bættist
svo að markaðir fyrir vörurn-
ar væru svo ótryggir og flutn-
ingskostnaður svo hár miðað-
ur við verðmæti framleiðsl-
unnar, að fyrirtæki þessi
kæmu til með að greiða lág
laun. Hér hafa þó enn alls
ekki verið tíndir til félagsleg-
ir, menningarlegir og sjálf-
stæðislegir ókostir sem vafa-
lítið myndu fylgja stóriðju af
þessu tagi.
Vilborg taldi valkosti vera
t. d. innlenda „stóriðju" s. s.
ylrækt og fiskirækt auk iðnað-
ar sem byggir á tækni og þekk-
ingu svo sem rafeindaiðnað-
ar, lífefnaiðnaðar, fjarskipta-
iðnaðar og efnistækni.
Hér þurfum við konur að
huga að ýmsu. Hverniggetum
við haft áhrif á það, hvaða val-
kostir eru teknir? Hvernig
viljum við að arðinum sé
varið? Hvern hlut ætlum við
okkur á vinnumarkaði fram-
tíðarinnar?
E. J.
Fermingarbörn
í Norðfjarðarkirkju
8. apríl 1985 kl. 1030
1. Anna Sigurborg Högnadóttir, Víðimýri 5,
2. Ásmundur Hálfdán Jónsson, Sæbakka 14,
3. Bára Hólmgeirsdóttir, Starmýri 9,
4. Björn Steindórsson, Hrafnsmýri 4,
5. Bryndís Magnadóttir, Melagötu 11,
6. Eiður Waldorff Karlsson, Þiljuvöllum 22,
7. Halldór Þorsteinn Ásmundsson, Víðimýri 4,
8. Hólmfríður Jónsdóttir, Melagötu 12,
9. Jóna Harpa Viggósdóttir, Hlíðargötu 25,
10. Jóna Lind Sævarsdóttir, Marbakka 12,
11. Kári Kárason, Gauksmýri 2,
12. Kristján Sigurþórsson, Nesbakka 14,
13. Lilja Jóna Halldórsdóttir, Miðstræti 8,
14. Óðinn Sigurðsson, Hafnarbraut 2,
15. Steinunn Kristjánsdóttir, Nesgötu 35,
16. Víðir Pálsson, Hlíðargötu 17,
17. Sigurður Þór Steingrímsson, Mýrargötu 1,
18. Þráinn Haraldsson, Blómsturvöllum 49,
19. Rúnar Þröstur Steingrímsson, Mýrargötu 1.