Birtingur - 01.06.1966, Side 7
inn fordæmingu hans, enda mun Kristinn
vafalaust telja kynslóðaskil eftir útkomu ís-
lenzkra nútímabókmennta. En ekki er unnt
með vissu að vita skoðun Kristins á þessu,
þar sem hann nefnir engin nöfn í grein sinni.
Kristinn gerir mikið úr þeim nýju ádeiluliöf-
undum, sem hann nefnir svo, teflir þeim gegn
atómskáldunum og vitnar meðal annars á
þessa leiö í Svarta messu eftir Jóhanncs Helga:
„Höfuðpersóna hennar sem oft tekur stórt
upp í sig er látin segja: „Það scm kallað hefur
verið bókmenntir í þessu landi síðustu ára-
tugina rís ekki undir því göfuga heiti, þetta
er áferðarslétt klúður, lágkúruleg málamiðl-
un, og það á viðsjárverðustu tímum sem yfir
mannkynið hafa gengið.“
Það er líklega ekki von að Kristinn láti þess
getið, að önnur höfuðpersóna Svartrar messu,
Úlfhildur Björk, sú sem er tákn fyrir það sem
er enn hreint og óspillt í fari þjóðarinnar,
hefur bækur atómskálda í bókaskápnum sín-
um. Það eru einu bækur hennar sem getið er
um i sögunni, og þær virðast duga henni vel.
Hún lætur því ekki ósvarað, þegar reynt er
að hæðast að þeim. Úlfhildur Björk, ímynd
hreinleikans og göfginnar með þjóðinni, sigr-
ar í lok sögunnar þá höfuðpersónu :,cm svo
digurbarkalega talaði um bókmenntirnar sem
að framan getur. Varla hefði höfundur Svartr-
ar messu haft þetta þannig ef hann teldi at-
ómskáldskap hafa verið jafn áhrifalausan og
Kristinn vill vera láta.
Um leið og Kristinn gerir feiknarlega mikið
úr ádeilukrafti þeirra höfunda, sem eru hon-
um að skapi, og líkt og biðlar til þeirra að
hlíta leiðsögn sinni um það hvaða stjórnmála-
skoðun rithöfundum beri að hafa, gefur hann
það í skyn, að ádeila hafi verið íslenzkum höf-
undum fjarri um margra ára skeið, og þá ekki
sízt atómskáldum. Ég held að það ætti að vera
nægjanlegt að flctta tímaritinu Birtingi til að
sannfærast um, að þetta eru ósannindi. Það
hafa ekki komið út mörg hefti af Birtingi svo
að það yrði ekki fyrir aðkasti einhversstaðar
frá, sökum ádeilu sem þar hafði birzt. Og
mönnum ætti að vera kunnugt um það, að
einn af ritstjórum Birtings, Thor Vilhjálms-
son, hefur verið sektaður fyrir ádeilu í þessu
riti, en sá rithöfundur sem framar öðrum
hefur haldið Birtingi uppi, Einar Bragi,
hefur verið dæmdur í stórsektir fyrir hlut-
deild sína í því að fletta ofan af spillingu í
þjóðfélaginu, þegar hann var ábyrgðarmaður
Frjálsrar þjóðar. Sannast sagt finnst mér und-
arlegt að fjalla sérstaklega um ádeilu í sam-
bandi við íslenzka rithöfunda, án þess að
minnast á þetta atómskáld sem hefur árum
saman beitt penna sínum gegn hersetu Banda-
ríkjamanna hér á landi og svikahneigð ís-
lenzkra valdhafa, þótt oft hafi hann lagt penn-
birtingur
5