Birtingur - 01.06.1966, Page 35
sannleikann og það, að halda honum leyndum
fyrir því, vaíri sama Og aS móSga það með van-
trausti.
Þó að óg hefði nokkra hugmynd um sök Stal-
íns, gat ég ekki ímyndað mér, hve stórkostleg
hún var, fyrr en Khrústsjov flutti ræðu sína.
Flestir höfðu þessa sömu sögu að segja. Eftir
að ræðan hafði verið lesin fyrir þeim á flokks-
fundum, gengu þeir burt, höggdofa og niður-
lútir. Kannski hafa margir af þeim sem eldri
voru kvalið sig með spurningunni: höfum við
þá lifað lífi okkar til einskis? Sá gáfaði höfund-
ur Fadejev skaut sig með byssunni sem hann
hafði borið sem skæruliði í Borgarastyrjöld-
inni. Dauði hans var enn einn glæpur Stalíns.
Nokkrir af ungu kynslóðinni litu auðvitað
með tortryggni ekki aðeins á Stalín heldur á
allt hið liðna, og þetta jók raunir foreldranna
um helming. En það voru foreldrar og foreldr-
ar, börn og börn.
Eldri kynslóðin skiptist í tvennt: hina trúu,
sannfærðu kommúnista sem héldu áfram
vinnu sinni án þess að missa kjarkinn, reiðu-
búnir að leggja gömul afglöp á minnið til þess
að geta bætt úr þeim; og hina kredduföstu
sem auðvitað töldu sig betri kommúnista en
alla aðra.
Hinir kredduföstu fylgdu aðeins í orði kveðnu
þeim ákörðunum Tuttugasta flokksþingsins
að „endurvekja lenínskar lífsreglur". Eitt
saman orðið „endurvekja" var ákæra á Stalín-
ismann — menn endurvekja aðeins upp af
svefni. En þá skorti félagslegt hugrekki til að
viðurkenna þessa staðreynd, svo hræddir voru
þeir um stöður sínar.
Þeir beittu öllum brögðum til að jafna reikn-
inga Stalíntímans, þeir reyndu í störfum sín-
um að spilla fyrir hinni efnahagslegu viðreisn;
þeir spyrntu á móti afnámi fríðinda sem hátt-
settir embættismenn nutu, eins og „bláu pökk-
unum“* og bíl til „einkanota". Þeir nöldr-
uðu og sökuðu yngri kynslóðina, næstum alla
eins og hún lagði sig, um að vera „nihilistar"
Og bera enga virðingu fyrir arfleifð byltingar-
innar. Það, að ungir menn gengu í þröngum
buxum og höfðu gaman af djassi eða jafnvel
það, að þeir lásu Hemingway og voru hrifnir
af Picasso, var sönnun fyrir „nihilisma" þeirra
— og sýnd sivart á hvítu spillinguna sem leiddi
af borgaralegum áhrifum.
Hvernig var þá unga fólkið í raun og veru?
Það er satt, að sumt af þessu unga fólki for-
hertist. Það er satt, að þessir ungu piltar og
stúlkur sem lifðu í siðferðislegu tómarúmi
fóru að tyggja tyggigúmí, safna stæl-peysum,
stæl-skóm og hljómplötum og dansa rock
• Aukagrciðslur ( pcningum; þcssir menn nutu einnig
þeirra fríðinda að opinberar stofnanir lögðu þeim til bíla
scm þeir ináttu nota að vild.
birtingur
33