Austurland - 30.12.1987, Page 6
Austfjarðaleið hf.
S 71713 l
'v?
SKÓLAFÓLK MUNIÐ
AFSLÁTTARKORTIN
Neskaupstaður
Verslun Óskars
Jónssonar hættir
Nú um áramótin hættir Óskar
Jónsson rekstri verslunar sinnar
að Hafnarbraut 1 í Neskaup-
stað. Hann hefur leigt húsnæðið
Bergþóru Ásgeirsdóttur, sem
hyggur á áframhaldandi rekstur
matvöruverslunar að Hafnar-
braut 1 og keypti hún lagerinn
af Óskari.
Óskar hefur stundað verslun-
arrekstur að Hafnarbraut 1 allt
frá árinu 1962 og komið víða
við. Hann hóf rekstur sjoppu í
hjáverkum en árið 1969 hóf
hann verslun með skó en sú
verslun stóð stutt og Óskar
verslaði því næst með bygginga-
vörur þar til árið 1977 að hann
hóf að versla með matvörur og
síðan hefur fjölbreytni í vöru-
vali matvöruverslunar aukist
jafnt og þétt.
í samtali við AUSTUR-
LAND, sagði Óskar, að hann
hafi nokkuð lengi hugleitt að
hætta verlsunarrekstri. „Þetta
er of mikil og þreytandi vinna
og mikill burður sem fylgir
þessu“, sagði hann og bætti við
að verslunin hefði mest alla tíð
verið nokkurskonar heimilis-
rekstur hjá þeim hjónum og
Óskar Jónsson.
með þeim hætti hefði þeim tek-
ist að halda kostnaði niðri og
því getað boðið lágt vöruverð
alla tíð og benti hann á verð-
kannanir Verðlagsstofnunar
því til staðfestu.
„Ég held að fólk hafi kunnað
að meta þetta hjá okkur og tel
að við höfum eignast marga við-
skiptavini út á vöruverðið",
sagði Óskar Jónsson. hb
80 ára afmæli Ungmennafélags
íslands haldið hátíðlegt
í tilefni af 80 ára afmæli sínu
gekkst Ungmennafélag íslands
fyrir ráðstefnu í Norræna húsinu
í Reykjavík laugardaginn 21.
nóvember sl. Var hún haldin
undir kjörorðinu „Ræktun lýðs
og lands“.
Efni ráðstefnunnar var: Hlut-
verk ungmennafélaganna í nú-
tíð og framtíð.
Ráðstefnan var mjög vel sótt
- þátttakendur voru alls 105.
voru þeir bæði úr Reykjavík og
frá öllum héraðssamböndum
innan UMFÍ.
Birgir ísleifur Gunnarssonar,
menntamálaráðherra og Guð-
mundur Bjarnason, heilbrigðis-
ráðherra, ávörpuðu ráðstefn-
una. Mátti glöggt heyra á máli
þeirra að þeir meta störf hreyf-
ingarinnar mikils og gestir ráð-
stefnunnar fögnuðu tilboði heil-
brigðisráðherra um samstarf við
UMFÍ og ÍSÍ um forvarnir í heil-
brigðismálum.
Eftirtaldir fyrirlesarar fluttu
framsöguerindi á ráðstefnunni:
Helgi Gunnarsson, Bjarne Ibsen,
Árni Johnsen, Pálmi Frímanns-
son, Amór Benónýsson, Óli Þ.
Guðbjartsson, Þórólfur Þórlinds-
son, Hjörleifur Guttormsson,
Þráinn Hafsteinsson og Magndís
Alexandersdóttir.
Sérstaka athygli vakti frásögn
Þórólfs Þórlindssonar, prófess-
ors, af könnunum sem leiddu í
ljós hversu íþróttastarf er mikil-
vægur þáttur í baráttunni gegn
ávana- og fíkniefnum.
Daninn, Bjarne Ibsen, flutti
erindi um fjármögnun íþrótta-
hreyfingarinnar þar í landi og
fróðlegt er að hafa fjármögnun
okkar íþróttahreyfingar til
samanburðar.
Þá fékk hinn félagslegi og
menningarlegi þáttur í starfsemi
UMFÍ góða umfjöllun auk
náttúruverndarmála sem Hjör-
leifur Guttormsson fjallaði um.
Að framsöguerindum lokn-
um var unnið í hópum að ofan-
greindum málaflokkum. Niður-
stöður ráðstefnunnar virðast
undirstrika þá miklu bjartsýni
sem er ríkjandi innan ung-
mennafélagshreyfingarinnar á
þessum tímamótum. ms
íbúum Austurlandskjördæmis árnum viö allra heilla á
ári nýju.
Megi fengsæld ríkja í fjórðungi og farsæld hjá fólki.
Þökkum ágætkynniog kæra samfylgd undangenginna
ára.
Lifið heil.
Hanna og Helgi Seljan.
*
Neskaupstaður
Tónleikar
Daníel og Sigurður.
Þriðjudaginn 5. janúar nk.
verða haldnir tónieikar í safnað-
arheimilinu í Neskaupstað og
hefjast þeir kl. 2100.
Á tónleikunum munu þeir
Sigurður Halldórsson. selló-
leikari og Daníel Þorsteinsson,
píanóleikari, leika verk eftir
Bach, Beethoven, Martinu og
Fauré.
Þeir Sigurður og Daníel hafa
á undanförnum árum haldið
marga tónleika saman og þá ver-
ið með klassík eða jass á efnis-
skránni. Danícl er 24 ára Norð-
firðingur, hann hóf tónlistar-
nám sitt í Tónskóla Neskaup-
staðar en hefur síðan stundað
framhaldsnám í Reykjavík auk
þess sem hann stundar nú
kennslu hjá Tónskóla Sigur-
sveins D. Kristinssonar. Sigurð-
ur er Reykvíkingur og stundaði
nám við Tónlistarskóla Reykja-
víkur en er nú við framhalds-
nám í London. hb
Norðfirðingar
# athugið!
Matvörubúðin Hafnarbraut 1, Neskaupstað
(áður Verslun Óskars Jónssonar) verður
opnuð laugardaginn 2. janúar 1988
Opið frá kl. 10 til 16 þann dag
Opnunartími framvegis:
Mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga frá kl.
9 til 18
Fimmtudaga og föstudaga frá kl. 9 til 19 og
laugardaga frá kl. 10 til 16
Verslunin verður alltaf opin í hádeginu
Gleðilegt nýár
FLJÓT OG GÓÐ ÞJÓNUSTA
OPIÐ FRÁ KL. 13 TIL 17
VG
HREINSUN
S 71288 NESKAUPSTAÐ
1750
1571
Austurland
Hittumst í Sparisjóðnum
í síðdegisafgreiðslunni
kl. 5 - 7 e. h. á fimmtudögum
m
Sparisjóður Norðfjarðar