Húsfreyjan - 01.03.1951, Page 28
en hún komst yfir að sinna. Flestum
konum í fjölskyldunni á þessu tímabili
virtust vera í blóðiS borið bæfileikar til
að mála, en að líkindum hefir það verið
sökum þess, að það var eitt af því fáa,
sem þótti við hæfi hefðarmeyja í þá
daga. 4 af 5 systrum móður minnar, mál-
uðu. Sjálf málaði hún líka stundum smá-
myndir, svo góðar, að þær voru á aýn-
ingum. En nú er varla nokkur af minni
kynslóð, sem fæst við að mála.
Einu sinni, þegar við vorum í Peti
Ithon, hafði Janetta frænka meðferðis
bók um ætisveppi. Þá tók hún bókina
og allan krakkahópinn með sér út um
grundir og móa og græna skóga, til að
tína sveppi. Svo voru þeir nákvæmlega
athugaðir samkvæmt bókinni. Hún hélt
því fram að sveppir væm ákaflega liollir
og góðir, það þyrfti bara svolítið hug-
rekki til þess að reyna þá. Hún sagði
fyrir um, hvernig ætti að matreiða þá.
En þegar þeir komu á kvöldborðið, á
stóru fati, alla vega litir og alla vega
í laginu, hrópuðu börnin af fögnuði, en
mæðurnar sátu með öndina í hálsinum,
en þorðu þó ekki neitt að segja, því
Janetta frænka var elzt, og allir litu
upp til liennar. Börnin hámuðu í sig
sveppina, og það sýndi sig, að Janetta
liafði rétt fyrir sér, því enginn veiktist
hvorki af eitrun né öðru.
Janetta hafði tröllatrú á Jaeger prjóna-
fötum. Dætur hennar voru frá hvirfli
til ilja og yst til innst klæddar í Jaeger
prjónaföt og notuðu prjónavasaklúta. Hún
þvoði sjálf öll fötin sín (þó hafði hún
þvottakonu, fyrir annan þvott), en hún
gat ekki liugsað sér að láta blanda föt-
um sínum innan um annarra föt, jafn-
vel þó að það væri þvottur fjölskyld-
unnnar.
Framli.
HtSFREYJAN
kemur út 4 sinnum á ári.
Rit8tjóri:
Guðrún Sveinsdóttir, Fjólugötu 5, Reykjavík.
Brcfaviðskifti varðandi afgreiðslu og inn-
heimtu til áskrifenda og útsölumanna utan
Reykjavíkur annast skrifstofa Kvenfélaga-
sambands íslands, Laugavegi 18. Simi 80205.
Verð árg. fyrir áskrifendur cr 15 krónur.
1 lausasölu kostar hvert hefti 5 krónur.
•
Gjalddagi er fyrir 1. desember.
Prcntsmiðja Jóns Helgasonar.
Vefnaðar-
og útsaumsgerðir.
milli 30—40 uppdrættir.
Verð kr. 15,00.
Hentugt að panta 5 eintök j
eða fleiri saman. Þá fæst j
25% afsláttur.
Skrifið til
' I
Heimilis-
iðnarfélagg íslands
Skólavörðustíg 4 B
Reykjavík
j
S
I
28 húsfreyjan