Austurland - 17.08.1995, Qupperneq 4
4
FIMMTUDAGUR, 17. ÁGÚST 1995.
Umhverfi Neskaupstaðar - Mikið gróðursett í sumar
Mikið starf hefur
verið unnið í fegrun bæjarins í
surnar. Sjaldan eða aldrei hefur
verið plantað jafn miklu magni
af trjáplöntum og í sumar og
hafa unglingarnir í bæjarvinn-
unni lagt þar sitt af mörkunum.
Um það bil 100 unglingar hafa
starfað hjá bænum og það starf
hefur borið góðan ávöxt. Bæjar-
h'reinsunin í vor tókst með ágæt-
um og er það ánægjuefni að al-
menn vakning virðist vera með-
al bæjarbúa að halda bænum vel
útlítandi.
í upphafi starfsárs unglinga-
vinnunnar voru opin svæði lag-
færð og síðan tók plöntunin við.
7500 skógarplöntum, 150 stór-
um trjám og 700 víðiplöntum
var plantað á vegum bæjarins í
sumar.
Fræðslustígur í fólkvangi
Bæjarstjórn Neskaupstaðar
hefur samþykkt að fela Náttúru-
stofu Austurlands að gera tillög-
ur um útfærslu svokallaðs
fræðslustígs í fólkvangi bæjarins
utan við vitann. Hugmyndin að
fræðslustíg er upphaflega komin
frá Hjörleifi Guttormssyni en
fræðslustígur er merkt göngu-
leið þar sem það sem fyrir augu
ber á göngunni er útskýrt með
skiltum. Þannig verður hægt að
ganga um fólkvanginn og lesa
sér til um náttúrufyrirbæri,
hvort heldur er jarðfræðilegs
eðlis eða gróður, og sögu
svæðisins einnig. Samþykkt
bæjarstjórnar gerir ráð fyrir að
hafist verði handa við fram-
kvæmdir vegna fræðslustígs
jafnskjótt og Náttúrustofa
Austurlands hefur skilað áliti.
undanförnu hefur verið unnið
að því að stika gönguleið með
ströndinni frá Norðfirði í Við-
fjörð og um fjallaskörð til
Vöðlavíkur og Sandvíkur. Þetta
er samstarfsverkefni sveitarfé-
Umhverfisviðurkenningar
Umhverfismálaráð Neskaup-
staðar mun, eins og í fyrra, veita
viðurkenningar fyrir fallegasta
garðinn, fallegustu götuna og
fallegasta atvinnusvæðið. Það er
laganna tveggja og að hluta fjár-
magnað með styrk frá ferða-
málaráði.
Skúli Hjaltason, sem fenginn
var til að stika leiðina, tjáði
blaðinu að búið væri að stika frá
Grænanesi í Norðfirði og í
Viðfjörð. Leiðirnar í Sandvík
og Vöðlavík hafa verið merktar
að hluta en Skúii sagðist reikna
með að verkinu yrði lokið fyrir
haustið.
Leiðirnar voru valdar með
hliðsjón af því að nýta götur og
slóða sem fyrir eru og þar sem
mat ráðsins að vel hafi tekist til
í fyrra og að verðlaunin hafi
virkað mjög hvetjandi. Á síðu
3 í blaðinu er eyðublað sem fólk
getur skrifað á ábendingar um
garða, götur eða atvinnusvæði
sem það telur að ættu skilið að
hljóta viðurkenningu.
slíku var ekki til að dreifa voru
valdar öruggar leiðir þar sem
sneitt er hjá mýrlendi og öðrum
hættum. Stikurnar eru grænar og
hugmyndin sú að þær sjáist ekki
í landslagi langt að. Þær eru settar
með u.þ.b. 70 metra millibili
nema þar sem götur eru greini-
legar en þar er bilið haft lengra.
f fjallaskörðunum þar sem oft er
þoka eru stikumar gular og í
Sandvíkurskarði eru þær hærri en
annarsstaðar svo þær standi upp
úr snjó en þar er gert ráð fyrir
ferðum að vetrarlagi.
Ferðaþjónustubraut við
Menntaskólann á Egilsstöðum
Gönguleiðir milli Neskaupstaðar og Eskifjarðar
ESKIFJÓRDUR NESKAUPSTAÐUR
Undirbúningur á lokastigi - Kennsla hefst í haust
EGILSSTAÐIR
__________| í haust hefst kennsla
við nýja ferðaþjónustubraut við
Menntaskólann á Egilsstöðum.
Þar verður boðið upp á tveggja
ára starfsnám, sem er alveg nýr
valkostur í ferðaþjónustunámi
hérlendis. Markmið námsins er
að kynna nemendum grunn-
þætti ferðaþjónustunnar, og
búa þá undir almenn hótelstörf
eða önnur sambærileg störf í at-
vinnugreininni. Sigurborg Kr.
Hannesdóttir, ferðamála-
fræðingur hefur umsjón með
brautinni.
Á fyrstu önn em nemendur
aðallega í hefðbundnum kjama-
námsgreinum nema hvað við
bætist 3ja eininga áfangi í ferða-
fræðum. Námskeiðinu er ætlað
að veita innsýn í grunnþætti
ferðaþjónustunnar, sögu hennar
og skilgreiningar. Miðað er því
að veita nemendum tilfinningu
fyrir ferðaþjónustu sem atvinnu-
grein og hvernig hlutimir ganga
fyrir sig innan greinarinnar.
Starfsnám
Hluti námsins, þ. e. 180
klukkustundir, eða 4 einingar
fer fram á vinnustað. Skólinn út-
vegar nemendum pláss í starfs-
þjálfun og hefur um það sam-
starf við nokkur hótel, svo sem
Hótel Eddu, Hótel Valaskjálf á
Egilsstöðum og Hótel Áningu á
Selfossi. Sigurborg segir vera út-
lit fyrir mjög gott samstarf við
þessa aðila.
Kennslustaöir
Séráfangar verða kenndir á
Eiðum en nemendur geta valið
um að taka kjarnaáfanga þar
eða á Egilsstöðum. Boðið verð-
ur upp á reglulegar ferðir milli
Egilsstaða og Eiða.
Þriðja önn fer fram í Hús-
stjórnarskólanum á Hallorms-
stað sem gefur brautinni mikla
sérstöðu miðað við annað ferða-
þjónustunámsem í boði hefur
verið til þessa.
Reynslan sýnir að nemendur
frá Hússtjórnarskólanum hafa
verið mjög vel undirbúnir fyrir
störf á hótelum og veitingastöð-
um og styrkir þetta fyrirkomu-
lag námið mikið.
Á Hallormsstað verður farið
í veitingatækni og eldhúsvinnu
auk þess sem kostnaðarþáttur
hótelrekstrar er gaumgæfður
þar. Sigurborg vonast einnig til
að hægt verði að sinna þar um-
hverfishlið mála en hótelrekstur
og ferðaþjónusta geta verið
ákaflega mis umhverfisvænn
rekstur eftir því hvernig að hon-
um er staðið. Á Hallormsstað
verður auk þessa farið yfir sér-
þarfir neytenda þessarar þjón-
ustu og fólk búið undir að sinna
þörfum fólks sem t. d. þjáist af
fæðuofnæmi svo dæmi sé tekið.
Framhald og starfsréttindi
Námið er ekki hugsað sem
hliðargrein til stúdentsprófs
heldur er um tveggja ára sjálf-
stætt nám að ræða. Nemendur
geta hins vegar tekið stúdents-
brautir samhliða ferðaþjónustu-
brautinni.
Námið gefur ekki skilgreind
starfsréttindi en ýmsir atvinnu-
rekendur í ferðaþjónustu hafa
hins vegar lýst ánægju sinni með
samsetningu þess og það er því
ljóst að það opnar nemendum
töluverða möguleika inn á
vinnumarkaðinn. í þessu sam-
bandi má reyndar benda á að
stúdentspróf, eða jafnvel há-
skólapróf, veitir ekki tryggingu
fyrir atvinnu.
Ýmsar nýjungar
í ferðaþjónustunáminu er
stefnt að því að virkja frum-
kvæði nemenda sem mest og
verður bryddað upp á margvís-
legum nýjungum í því skyni. Þar
má t. d. nefna að nemendur
munu skipuleggja fræðslufundi
um ferðamál í hverjum mánuði
þar sem þeir velja sjálfir við-
fangsefni og sjá alfarið um um
skipulags- og kynningarmál. Á
fyrstu önnum námsins er gert
ráð fyrir að þessir fundir verði
eingöngu fyrir nemendur á
brautinni en á síðari stigum gæti
vel hugsast að fundirnir verði
öllum opnir. Skipulagning
þeirra, sem verður sem áður
sagði á ábyrgð nemenda, gæti
þá borið nokkurn keim af viss-
um þáttum í skipulagningu ráð-
stefna sem einhverjir nemendur
munu e.t.v. starfa við í framtíð-
inni.
Auk þessa verður bryddað
upp á nýjungum í íþrótta-
kennslu fyrir fólk á ferðaþjón-
ustubrautinni. Önnur tveggja
vikulegra kennslustunda í
íþróttum verður með hefð-
bundnu sniði en einu sinni í viku
verður lögð áhersla á streitu-
stjórnun, öndun, slökun og
fleira sem miðast að því að búa
nemendur undir vinnu undir
miklu álagi. Að sögn Sigurborg-
ar er þetta mikilvægur þáttur
þar sem reynsla fólks í greininni
er sú að mistökin gerast þegar
starfsfólkið stenst ekki álagið.
100 ára afmæli kvikmyndarinnar
Kvikmyndahátíð á Seyðisfirði 19. - 24. ágúst
í tilefni þess að hundrað ár
eru liðin frá sýningu fyrstu kvik-
myndarinnar í heiminum efna
Kvikmyndasafn og Kvikmynda-
sjóður íslands til kvikmynda-
hátíðar um land allt. Á flestum
stöðum er um að ræða hátíð eitt
kvöld en þar sem Seyðisfjarðar-
kaupstaður fagnar einnig aldar-
afmæli verður efnt til vikulangr-
ar dagskrár þar í bæ.
Á dagskránni eru íslenskar
kvikmyndir, ýmist leiknar eða
heimildarmyndir og ýmist 16
mm eða 25 mm filmur. Mynd-
irnar eru sumar í lit, aðrar svart-
hvítar og ýmist þöglar eða með
tali og tónum. Katrín Jónsdóttir
frá Firði mun leika á píanó undir
þöglu myndunum, eins og tíðk-
aðist hér áður fyrr.
Á fimmtudagskvöldið 24. ág-
úst verða sýndar ýmsar stuttar
myndir úr fórum safnsins þar á
meðal gamlar myndir frá Seyð-
isfirði sem sumar hverjar eru
teknar af Leifi Haraldssyni.
Ætlunin er að áhorfendur að-
stoði við að staðgreina atburði
og nefni fólk sem sést á myndun-
um. Aðgangseyrirerenginnþað
kvöld.
Flest sýningarkvöldin eru
tvær mismunandi sýningar á
dagskrá og er aðgangseyrir kr.
100.-, en frítt fyrir börn 12 ára
og yngri. Böðvar Bjarki Péturs-
son, safnvörður Kvikmynda-
safns íslands, kynnir myndirnar
sem sýndar verða.
Laugardaginn 19. ágúst verð-
ur sýnd heimildamynd um lýð-
veldisstofnunina frá 1944 og 79
af stöðinni frá 1962. Sunnudag-
inn 20. ágúst verður á dagskrá
heimildamynd um ísland eftir
Loft Guttormsson og Hvítir
mávar frá 1985.
Á mánudeginum eru tvær
myndir eftir Óskar Gíslason.
Önnur þeirra er Síðasti bærinn
í dalnum frá 1950.
Þriðjudaginn 22. ágúst verða
Gilitrutt og Tunglið tunglið
taktu mig eftir Ásgeir Long til
sýningar og auk þess Hadda
Padda frá árinu 1924 í leikstjórn
Guðmundar Kamban. Á mið-
vikudaginn gefst fólki kostur á
að sjá Reykjavíkurævintýri
Bakkabræðra og Börn Náttúr-
unnar en á fimmtudaginn 24. ág-
úst verða myndir að austan til
sýnis, sem áður sagði. Dagskrá
föstudagsins er óákveðin.