Húsfreyjan - 01.03.1957, Side 3
Husjreyjxm.
Reykjavík,
marz 1957
Útgefandi: Kvenfélagasamband Islands
8. árgangur,
1. tölublað
Frá ævi og starfi
Eins og kunnugt er, varð frú Hulda Stefánsdóttir, skólastjóri kvennaskólans á
Blönduósi, 60 ára siðastliðinn nýársdag. Vegna þess að frú Hulda hefur um margra
ára skeið helgað húsmæðraskólum þessa Iands starfskrafta sína, fýsti mig að láta
„Húsfreyjuna“ flytja lesendum sínum eitthvað um ævi og starf frú Huldu, auk þess
sem fróðlegt væri að heyra álit þessarar gáfuðu og reyndu skólakonu á fyrirkomu-
lagi skólanna og þeim breytingum, sem þeir hafa tekið fró því, er hún hóf þar starf.
Fyrir þvi sendi ég henni nokkrar fyrirspurnir í þessa átt, er hún greiðlega og góð-
fúslcga svaraði með eftirfarandi greinarkorni. Ritstjórinn.
p’G er fœdd á Möðruvöllum í Hörgárdal
1/1. 1897. Var faðir minn kennari við
Möðruvallaskóla og auk þess bjó hann
bar á allri jörðinni, svo að margt var um
hianninn á Möðruvöllum fyrst þegar ég
hian eftir mér. Ef ég œtti að minnast
^ernskuáranna á Möðruvöllum, mætti
^hargt segja. Mér fannst fyrstu árin mín
Se*n einn sólskinsdagur. Heimafólkið var
^iér allt ákaflega gott og ég átti brátt
Vlni á bæjunum í kring, sem gaman var
að heimsækja. Þannig liðu fyrstu árin.
■^n árið 1902 brann skólahúsið; sú mynd
er þá blasti við, er mér ógleymanleg, en
kó tók út yfir árið 1903; þá dó amma
^uðrún, sem hafði verið athvarf mitt frá
bví ég fyrst rankaði við mér. Amma, sem
^unni svo margar sögur og vers, þessi
bogula en hlýja kona, sem öllum vildi
8°tt gera og var manna lægnust á að
tafna deilur, ef upp komu á heimilinu —
var dáin, og mér fannst lífið óbærilegt.
° átti ég hauk í horni, þar sem Ólafur
Davíðsson, fyrsti kennari minn, var eftir
hjá mér, en hann missti ég líka sama ár,
og var þá fokið í flest skjól, að mér
fannst.
Þessar tvær manneskjur lögðu undir-
stöðuna að hugsun minni. Þau voru öll
mín bernskuár efst í huga mér og ég leit-
aðist við að fara að þeirra ráðum, enda
þótt þau væru ekki lengur sýnileg.
Haustið 1904 fór ég með foreldrum
mínum til Akureyrar, því skólinn var þá
fluttur þangað. Saknaði ég sveitarinnar
og fólksins þar. — Hlakkaði til vorsins,
að fá að koma aftur heim i sveitina.
Fluttu foreldrar mínir ekki að öllu leyti
frá Möðruvöllum fyrr en vorið 1910, að
búið var selt.
Haustið 1908 varð faðir minn skóla-
meistari við Gagnfræðaskólann á Akur-
eyri og fluttum við þá í skólann. Hófst
þá nýr þáttur í lífi mínu. Ég varð brátt
hugfangin af skólalífinu. Þarna var fjöl-
menni eins og á Möðruvöllum, skólafólk-
LANDSBuKASATN
213823
■ ÍSLANOS