Húsfreyjan - 01.03.1957, Page 8
r
Rannveig Þorsteinsdóttir:
Okkar á milli sagt
Á siðasta landsþingi Kvenfélagasam-
bands Islands var rætt um orlof
húsmæðra. — Þingið skilaði áliti um
málið og kaus í það milliþinganefnd,
sem í áttu sæti tvær Reykjavikurkon-
ur og þrjár konur búsettar utan
Reykjavíkur. Þessi nefnd átti að hefja
undirbúning að málinu á vegum Kven-
félagasambandsins og átti fyrsta skref-
ið í þeim undirbúningi að vera að skila
áliti til formannafundar, sem haldinn
var í haust sem leið. Þetta gat þó ekki
orðið vegna vandkvæða á því, að ná
öllum nefndarkonum til fundar, en nú
mun nefndin leggja málið fyrir næsta
landsþing, eftir þær athuganir, sem
hún gerir, og verður málið þá rætt og
gerðar tillögur um, hvernig á því skuli
haldið þar á eftir.
Þetta mál, orlof húsmæðra, eða
hvernig skuli að því unnið, verður að
kynnast og ræða í kvenfélögunum og
í samböndunum, því að hvernig sem
málinu verður fyrirkomið að öðru
leyti, hlýtur það að verða að njóta
fyrirgreiðslu heima í héruðum.
Nú er það áreiðanlegt, að þótt sums
staðar hafi verið um þetta mál talað,
og þótt það hafi verið rætt á síðasta
þingi, þá er þetta þó ekki svo kunnugt
öllum félagskonum sem skyldi. Það ber
því mikla nauðsyn til þess, að farið sé
að koma af stað umræðum um það
og gefa um það upplýsingar, eftir því
sem unnt er.
Það er viðurkennt, að öllum sé nauð-
synlegt að fá við og við frí og hvíld
frá daglegum störfum, fá tilbreytingu
og upplyftingu. Að því er launþega
snertir, þá er þetta viðurkennt með
lögum um orlof, og í samningum milli
starfsmanna og vinnuveitenda er or-
lofið ætíð mikill þáttur. Orlofstíminn
hjá fastlaunafólki er ætíð að verða
lengri, eftir því sem kjörin batna.
Utan við þetta falla allir þeir, sem
eru eigin húsbændur, þar á meðal all-
ir smáatvinnurekendur og einyrkjar,
en ef út i það væri farið, myndi verða
að líta svo á, að þessir aðilar verði
að fá það mikið fyrir störf sín og fram-
leiðslu, að þeir þoli það að taka orlof
tilsvarandi við launþega.
Hitt er annað, að bóndi á oft ekki
heimangengt frá búi sínu né smáat-
vinnurekandi frá atvinnurekstri sínum.
Húsmæðurnar eru fjölmennasti
starfshópur þjóðarinnar og heimilis-
störfin eru ekki reiknuð til launa né
tekna. Húsmæðrum er þvi aldrei reikn-
að orlof eftir almennum reglum, enda
munu engir hafa jafn langan vinnu-
dag og fáar frístundir og húsmæðurn-
ar yfirleitt. Það er líka öllum ljóst, að
fjarlægt sé að ætla að telja störf hús-
móðurinnar við heimili sitt og umönn-
un barna sinna hárnákvæmt eftir
vinnustundum.
Þrátt fyrir þetta hafa margir kom-
ið auga á það, að húsmæðurnar þurfi
ekki siður en aðrir á hvíld og upp-
lyptingu að halda, til þess að geta unn-
ið hin fjölbreyttu og timafreku störf
sín, og það er út frá því, sem hugmynd-
8 HÚSFREYJAN