Húsfreyjan - 01.03.1957, Qupperneq 23

Húsfreyjan - 01.03.1957, Qupperneq 23
Náðargj öfin SMÁSAGA eftir LARS AHLIN Kvöld eitt seint í ágústmánuði stóð reiðhjól, hlaðið ýmsu dóti, undarlega lengi fyrir utan náðhúsið í Jumpásbrekk- unni. Fyrir innan lokaðar dyrnar gekk Hans Skóg um gólf. 1 hans augum var þessi daunilla vistarvera síðasta afdrepið til þess að láta ímyndunaraflið njóta sín, enda þótt hvorki klúru áletranirnar á veggjunum né óþefurinn væri honum að skapi. Hann var að reyna að setja sam- an sögu um einhverja skelfilega hættu, sem hann hefði komist í. En því miður gekk þetta erfiðlega. Hann hafði þegar samið svo margar, að erfitt var að finna ný tilbrigði. Enn þá einu sinni hafði „hlaupið í bak- lás“ hjá honum, eins og oft áður. Eink- um hafði svona farið oft síðan hann flutti úr sveitinni í úthverfi Södermalm. Stund- um, meðan hann enn lá í rúminu að morgni dags, fann hann á sér, að svona myndi fara. ,,í dag stendur allt fast,“ hugsaði hann þá. Aðra daga fann hann ekkert á sér fyrr en bara að honum féll allur ketill í eld, þegar hann var kominn inn í bæinn. Þá var eins og þyrmdi yfir hann. Honum fannst þetta líkast þeirri tilfinningu, sem myndi grípa hann, ef hann væri staddur á járnbrautarspori, þungri járnslá væri skotið fyrir hlið að baki honum, en brunandi járnbrautarlest stefndi beint á hann. Allt í hugskoti hans var sem mulið í smátt undir einhvers konar hjóli og hann var ekki lengur með sjálfum sér. ósegjanleg angist og kviði gagntók hann. ,,Ég er einskis virði,“ fannst honum. ,,Eg duga ekki til nokkurs skapaðs hlutar.“ Þegar þessi hugarangist greip hann, gat hann ekki unnið neitt. Hann hafði ekki einu sinni þrek til að byrja á neinu. Þetta var afleitt, því að helzt þurfti hann allt af að vera reiðubú- inn til þess að taka hvaða vinnu, sem byð- ist, til þess að hafa ofan af fyrir sér og sínum. 1 dag, þegar ósköpin komu yfir hann, hafði hann laumast inn í kaffihús og falið sig þar á bak við dagblað, sem hann þóttist vera að lesa. Heim gat hann ekki farið, því að Gréta mátti ekki verða þess áskynja, hvernig ástatt var um hann. Þarna hafði hann svo setið klukkustund- um saman og brotið heilann um, hvað hann ætti að segja Grétu, þegar hann kæmi heim peningalaus. Tíminn leið hægt og treglega, líkt og þegar tjara drýpur úr tunnu. Svo flutti hann sig til bilstjóranna og horfði á spila- mennsku þeirra góða stund. Að því búnu færði hann sig yfir í aðra veitingastofu. Þar sátu nokkrir loðskinnasalar. Hann hafði hlýtt á sögur þeirra og reynt að hlæja að þeim, en ekki hafði kviðinn vik- ið úr huga hans samt. Þá hafði hann reikað inn í kjötbúð og horft þar á stimpl- aða skrokkana og að því búnu ráfað um og horft á varninginn í búðargluggunum. Svo mátti heita, að hann ranglaði um allan bæinn. En allt af snerist hugur hans um þetta sama, hvernig hann ætti að fara að því að sjóða saman einhverja sögu um skelfilegan lifsháska,sem hann hefði lent í. Þegar torgsölunni lauk klukkan sex, var Hans þar staddur með hjólið sitt og körfuna. Þó að „hlaupið væri í bak- lás“ hið innra með honum, hafði hann allt af hingað til haft rænu á að hirða allt, HÚSFREYJAN 23

x

Húsfreyjan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.