Húsfreyjan - 01.07.1961, Side 17
14. LANDSÞING KVENFÉLAGASAMBANDS ÍSLANDS
ÁVARP FORMANNS K.
Virðulega forsetafrú, háttvirtir þing-
fulltrúar og aðrir viðstaddir.
Frá því, er síðasta landsþing Kvenfé-
lagasambands Islands var haldið, hefur
látist heiðursforseti sambandsins, frú
Ragnhildur Pétursdóttir. Hún andaðist
hinn 9. janúar s. 1.
Frú Ragnhildar mun ætíð verða minnst
sem einnar mikilhæfustu og merkustu
konu sinnar tíðar, en samband vort hef-
ur alveg sérstaka ástæðu til þess að mínn-
ast hennar, þar sem hún vann allra manna
mest að stofnun þess og var forseti þess
í 17 ár, fyrstu starfsárin, þ. e. meira en
helming þess tíma, sem sambandið hefur
starfað.
Ég vil lítillega rifja upp á þessari stundu
það, sem þó flestir þekkja um líf og starf
frú Ragnhildar Pétursdóttur.
Hún var fædd hinn 10. febrúar 1880
að Engey hér við Reykjavík, og var því
rúmlega áttræð, er hún lézt. Ragnhildur
Pétursdóttir ólst upp í Engey. Hefur því
heimili ætíð verið við brugðið sem mynd-
arheimili og sem þjóðlegu, íslenzku heim-
ili, og virðist mér að upplag og uppeldi
þeirra Engeyjarsystra hafi markað djúp
spor í íslenzku þjóðlífi.
Frú Ragnhildur Pétursdóttir fór ung
til Noregs til þess að afla sér fræðslu í
húsmæðrafræðum — en hugur hennar
virðist snemma hafa beinzt að málum
heimilanna. Eftir heimkomuna gerðist
hún umferðakennari í húsmæðrafræðum
hjá Búnaðarfélagi íslands, en þessi um-
ferðarkennsla var þá alveg á byrjunarstigi
— sem hún ef til vill getur talizt ennþá.
Kom það oft fram siðar, að frú Ragnhild-
ur hafði mikla ánægju af þessu starfi, og
er víst, að í gegnum það hefur hún öðlast
mikla þekkingu á viðhorfi og þörfum
kvenna víðsvegar á landinu viðvíkjandi
húsmæðrafræðslunni.
Frú Ragnhildur gerðist síðar forstöðu-
kona hússtjórnardeildar Kvennaskólans í
Reykjavík, þegar hún var stofnuð, en
hætti því starfi, er hún giftist eftirlifandi
manni sínum, Halldóri Þorsteinssyni. Þau
hjón bjuggu að Háteigi, sem þá var í út-
jaðri Reykjavíkur og gerðu þann garð
frægan á skömmum tíma.
En þótt frú Ragnhildur hefði ærið verk
að vinna sem húsmóðir á stóru, gestrisnu
heimili, hélt hún áfram að vinna með
áhuga að hugðarefnum sínum, sem voru
húsmæðrafræðslan í landinu og efling
heimilisiðnaðarins. Mun það hafa orðið
henni kærkomið tilefni til þess að vinna
að þessum málum, er landsfundur kvenna
kaus hana, ásamt tveim öðrum konum,
árið 1926 til þess að ræða við Búnaðar-
félag Islands um aukin fjárframlög til
húsmæðrafræðslunnar í landinu og frek-
ari skipulagningu þeirra mála. Flutti frú
Ragnhildur mál sitt á Búnaðarþingi 1927
og varð árangur þess málflutnings sá, að
búnaðarþing kaus nefnd, skipaða henni,
Sigurði heitnum Sigurðssyni, búnaðar-
málastjóra og frú Guðrúnu Briem, sem
einnig er látin, til þess að vinna að áliti
um húsmæðrafræðsluna í landinu. Þessi
álitsgerð var lögð fyrir búnaðarþing árið
1929. Er hún hin merkasta og var með
henni lagður grundvöllurinn að hús-
mæðrafræðslunni, eins og hún er fram-
kvæmd enn í dag.
II ú sf r ey j an
17