Húsfreyjan - 01.04.1962, Side 36

Húsfreyjan - 01.04.1962, Side 36
Loðvíðir (sem ýmsir kalla grávíði) er af- ar skemmtilegur runni fyrir garða, hvort sem hann er notaður á stein- beð, fláa í stöllum eða fremst í runna- beð. Þingvíðir er mikið notaður í skjólbelti og limgerði. Hann vex hratt eins og körfuvíðir, en hættir jafnframt tölu- vert við kali og er lússækinn. Viðja er víðitegund sem hefur náð all- mikilli útbreiðslu hin síðari ár sem skjólgjafi. Viðja virðist frekar harð- gerð og heilbrigð víðitegund. Svoköll- uðum dökkvíði, svipar mjög til viðju, enda náskyldur henni. Sama gildir um svartvíðir. Um víðitegundir má segja, að sumar verða stór tré, aðrar eru lágvaxnar, eða jafnvel skriðular, (t. d. smjörvíðir, sem hentar vel á steinbeð). Hávöxnu tegund- irnar eru fyrst og fremst notaðar sem fóstrur eða skjólgjafi fyrir viðkvæmari og hægvaxnari gróður, og er rétt að reikna með því, þegar gróðursett er, að fjar- lægja þær að einhverju leyti fljótlega, þegar annar gróður er kominn vel á legg. Lágvaxnari tegundirnar henta vel í beð innan um aðra runna, á steinbeð eða í limgerði. Margar víðitegundir eru afar lússæknar og þarf að úða þær 2—3svar á sumri, t. d. með Lindasect ella er hætt við að þær verði sannkallaðar lúsastíur fyrir annan gróður. næst birki, hvað útbreiðslu snertir. Viðkvæmur fyrir reyniátu, einkum þar sem mikilla umhleypinga gætir. Að öðru leyti harðgerður. Bezt er að nota ilmreynir í þyrpingar (nokkur tré saman) eða sem stakstætt tré. I norðurhluta Svíþjóðar er nokkuð gert að því að nota ilmreyni í há lim- gerði. Silfurreynir: Er vart fáanlegur hér í gróðrarstöðvum. Silfurreynir er harð- gerður og talinn mjög vindþolinn. Sums staðar erlendis er hann notaður í limgerði. Fer vel sem stakstætt tré. ÍJlfareynir (Sorbus hostii): Lágvaxin og runnkenndur. Blómgast á unga aldri og ber daufbleik blóm í stórum hálfsveipum. Berin mjög stór, fagur- rauð og gljáandi. Vex frekar hægt. Bezt að nota í þyrpingar með runn- um. Heggur: Oftast margstofna runni. Hér eru vafalaust misjafnlega harðgerðir stofnar. Ber hvít blóm í stuttum, frek- ar uppstæðum klösum. Má nota í þyrpingar og limgerði eða sem stak- stæða brúska utarlega á grasflötum. Lítið er um hegg í gróðrarstöðvum. Hlynur: Getur orðið hávaxinn og krónumikill. Viðkvæmur í uppeldi. Aðallega mælt með sem stakstæðu tré í stærri garða. Víðir: Margar víðitegundir eru hér i ræktun. Hér skulu aðeins taldar upp þær helztu: Bjarmavíðir er lágvaxin runni með græn- gulum árssprotum og frekar smáum dökkgrænum, gljáandi blöðum. Gljávíðir getur orðið hávaxinn. Er með stórum, gljáandi blöðum. Mun örugg- lega fallegasta víðitegundin, sem hér er í ræktun, og ekki lússækin. Gulvíðir er notaður nokkuð í limgerði og sem stakstæður brúskur hér og þar í görðum. Til eru mjög beinvaxnir stofn- ar af gulvíði (t. d. ,,Þorgrímsvíðir“). Körfuvíðir sést sumsstaðar. Er grófgerð- ur, lússækin og tilkomulítill. Hættir auk þess mikið við kali. 36 Barrtré Blágreni (Picca engelmanni): Harðgert, en hægvaxta greni. Ákjósanlegt garða- tré með blæfögru, blágráu mjúku barri. Broddgreni (Picca pungens): Hefur stingandi, blágrænt barr. Til eru ein- staklingar með miklum bláma á barri. Sem garðatré þyltir broddagreni lakara en blágreni en er hins vegar algengara í ræktun ennþá. Hvítgreni: Þolir vel storma og næðinga. Heppilegt í skjólbelti í þurrviðra- samari byggðarlögum landsins. Mun einnig skemmtilegt sem stakstætt tré. H ú s I r ey j u n J

x

Húsfreyjan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.