Húsfreyjan - 01.10.1967, Side 32
inynd). Bezt er a?í brjóta nokkrar arkir í
einu, og klijjpa svo munstrið í þær liverja
af annarri og líma saman svo margar sem
J)arf. Fallegast er, að sólirnar séu ríflega
felldar, J)á verður léttari blær yfir J)eim.
Svo er dreginn þráður í gegnum allar
fellingarnar að neðan, ef sólin er mjög
stór, þarf jafnvel áð hafa tvo þræði til að
lialda þeim sainan (sjá mynd).
Auðveldast er að klijij)a út einfökl
munstur, eins og J)au sem sýnd eru á þess-
um myndum, en svo má klipjia ný munst-
ur, eftir Jiví sem hugmyndaflugið leyfir.
Kínverskar luktir!
Í þessar Juktir má nota þunnan teikni-
jiappír, eða gylltan og silfraðan paj)j)ír,
eða jafnvel rauðan glanspappír. Sníðið
ræmu, sem er 8x11 sm og leggið liana
tvöfalda. Merkið með blýanti, live langt
á að klippa inn í ræmuna. Klipjiið síðan
fíngerðan kögur frá tvöföldu brúninni að
blýantsstrikinu. Brettið ræmunni í sundur
og límið saman raðirnar að ofan og neðan,
svo að myndist liólkur. Þá er bara eftir að
útbúa hankann úr sama pappír eða með
öðrum lit en luktin sjálf er og b'ma liann
á. Hankinn er úr ræmu sem er 0,5x10 sm.
Luktirnar fara Ijómandi vel á jólatréi eða
á grenigreinum, sem hengdar eru npj) bér
og þar til skrauts.
26
HÚSFREYJAN