Húsfreyjan - 01.10.1967, Blaðsíða 36

Húsfreyjan - 01.10.1967, Blaðsíða 36
| FRÁ LEIÐBEININGASTÖÐ HÚSMÆÐRA Eins ofí kunnugt er (ól 7. formannafund- ur Kvenfélagasambands Islands stjórn K. I. að undirbúa að komið yrði á fót sýningu á heimilistækjum sem víðast um land á- saml leiðbeiningum um meSferð þeirra. Af þeim ástæðum bað stjórn K. 1. Fé- lag raftækjasala að efna til sýningar á þvottavélum óg saumavélum í tilefni af aðalfundinum, sem baldinn var sl. sumar. Sýningin var haldin í Hallveigarstöðum í því búsnæði, sem Húsinæðrafélag Reykja- víkur hefur til umráða. Ekki var þó unnt að sýna allar þær heiinilisvélar, sem á boð- stólum eru, heldur varð að takmarka sýn- inguna við tvær vélategundir sökum pláss- leysis. Þvottavélar og saumavélar urðu fyr- ir valinu, enda liafa þær vélar orðið fyrir stórfelldum breytingum síðasta áratug. Spurningar þær, sem Leiðbeiningastöð- inni berast benda til þess, að margar hús- mæður liafi liug á að eignast sjálfvirkar jivottavélar. Oft er spurt á þá leið: „Ég er að bugsa um að kaupa þvottavél. Hvaða tegund mælið þið með?“ En þvottavéla- valið er ekki svo einfalt og auðvelt mál. Sennilega eru þvottavélar og aðrar heim- ilisvélar mismunandi að gæðum eins og annar söluvarningur. En álit manna á því, livað bezt sé, er ákaflega misjafnt. Það sem einum finnst gott finnst öðrum kann- ske lítið til koma. Óskir manna og þarfir eru einnig misjafnar. Ein búsmóðir legg- ur kannske mikið upp úr því að þvotta- vélin sé úr endingargóðu efni, önnur að bún bafi sem flestar þvottaaðferðir að bjóða, sú þriðja að vélin sé sem ódýrust og svo framvegis. En kaupandinn þarf að sjálfsögðu að gera sér Ijósa grein fyrir þörfuin sínum og óskum, ella er ekki unnt að velja lieimilistæki við sitt liæfi. En með aukn- um vélategundafjölda eykst vandinn að velja. Það var því ánægjulegt að sjá þarna á einum stað flestar þær þvottavélateg- undir, sem á boðstólum eru hér á landi. Gafst búsmæðrum gott tækifæri til að bera saman hinar ýmsu vélar, því þarna voru til sýnis 30 þvottavélategundir og 8 sauma- vélategundir. Til gamans voru einnig sýnd- ar nokkrar saumavélar frá því um alda- mótin. Voru þær fengnar að láni úr Minja- safni Reykjavíkur. Aðsókn að sýningunni var ákaflega mikil, enda var sýningin mjög falleg og Félagi raftækjasala og Kaupmannasamtökum Islands til sóma. Víða erlendis bafa rafveitur, bygginga- þjónusta eða aðrir aðilar sýningarsali fyr- ir beimilistæki, þar sem þær vélar eru til sýnis, sem á boðstólum eru liverju sinni. Sums staðar eru vélasalir í sambandi við húsmæðraskóla, |>ar sem nemendum og einnig húsmæðrum í vélakaupahugleiðing- um er gefinn kostur á að vinna með þeim vélum sem eru til sýnis. En í svo fámennu og strjálbyggðu landi sem okkar, er senni- lega erfitt að framkvæma slíka þjónustu. En kvenfélögin gætu ef til vill liaft sam- band við umboðsmenn heimilistækja í sínu byggðarlagi og koniið upp hjá sér sýningu lieimilistækja. Með jiví móti væri unnt að auðvelda búsmæðrum bið vandasama vöru- val. Ef til vill skapaðist þá einnig betra tækifæri til að kynna húsmæðrum heim- ilistæki og leiðbeina um notkun og með- ferð jieirra. SigríSur Haraldsdóttir. 30 IIÚSFREYJAN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.