Húsfreyjan - 01.10.1969, Síða 13

Húsfreyjan - 01.10.1969, Síða 13
hugsaði hann, eins himnarnir hefðu opnazt. Hann varð lostinn skelfingu og stóð án þess að mega sig hræra og starði móti ljósinu, sem flæddi titrandi um hvelfinguna — og þarna — bjartari en sjálft ljósið, fegurra en nokkuð, sem hann hafði hugsað sér — sveif engill, sem laut áfram á ljósbárunum og ávarpaði hann. Og engillinn sagði: „Verið óhræddir, því sjá, ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum. Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn í borg Davíðs. Og hafið þetta til marks: Þér munuð sjá ungbarn reif- að og liggjandi í jötu“. 1 næstum fimm ár hafði honum fund- izt kvöl sín slík, að ekki yrði á bætt. En nú varð hann einnig að bergja þenn- an síðasta, beiska bikar, þann, að allt væri um seinan. Nathan var dáinn og sjálfur hafði hann afneitað Drottni sínum. Þá sá hann, að engillinn var ekki einn. Með honum var fjöldi — andlitin öll ung og fögur. En Josodad sá aðeins eitt andlit og heyrði aðeins eina rödd í lof- söngnum: „Dýrð sé Guði í upphæðum og friður á jörðu“. Aðeins eina ástkæra rödd. Svo voru þeir horfnir. Andartak stóð hann blindaður, fagn- andi og iðrandi. 1 fimm löng ár hafði hann syrgt, en öll þau ár hafði Nathan hvílt ungur og fagur í náðarfaðmi Guðs. Hann flýtti sér að bálinu, þar sem Ibri sat ringlaður og utan við sig. „Ég sá ljós“, sagði hann. „Ég heyrði raddir“. Hann virtist halda að þetta hefði verið draumur. „Komdu“, sagði Josodad, „við skul- um fara til Betlehem". Ibri var fús til þess, en Arad átti erfitt með að vakna. Hann hugsaði með sér, að Josodad hefði lengi verið hálf galinn og nú virtist Ibri líka hafa feng- ið snert af geðbilun. S. Th. pýddi. h*********************** ************************************* Ndmskeið fyrir leiðbeinendur í héraðssamböndum Á síðasta landsþingi Kvenfélagasam- bands íslands var samþykkt að endur- taka námskeið fyrir konur utan af landi, sem vilja síðan taka að sér fræðslustarf- semi fyrir félögin á sínu sambands- svæði. Ákveðið hefur verið að halda hálfs mánaðar námskeið, sem hefst mánudag- inn 16. febrúar 1970. Á námskeiðinu verður kennt tauþrykk, kennari er Kristín Jónsdóttir. — Sigríður Haralds- dóttir veitir leiðsögn í námshringastarfi. Þar að auki ýmis konar föndur o. fl„ eftir því sem tök verða á. K.í. greiðir alla kennslu og leggur til kennsluhúsnæði, en þátttakendur verða að greiða allan efniskostnað, væntanlega um 3.000,00 krónur, einnig ferðakostnað og uppihald í Reykjavík meðan á náms- skeiðinu stendur. Skriflegar umsóknir berist til skrif- stofu Kvenfélagasambandsins fyrir 15. janúar 1970. ******************************************************************* HÚSFREYJAN 9

x

Húsfreyjan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.