Húsfreyjan - 01.10.1969, Blaðsíða 34
Verður
íslenzkur
kveníatnaður
útflutningsvara
?
■
Á síðasta landsþingi K.I. var sam-
þykkt áskorun á húsfreyjur að nota sem
mest íslenzkar iðnaðarvörur og stuðla
þannig að bættum þjóðarhag. Víst er,
að spara má æði mikinn erlendan gjald-
eyri með þessu, en hitt er líka ljóst, að
lífsnauðsyn er að afla gjaldeyristekna
til þess að ynna af hendi þær greiðslur,
sem óhjákvæmilega verða að greiðast í
erlendri mynt. Því skiptir það miklu
máli, að auka sem mest í landinu verð-
mæti allrar vöru, sem út er flutt og nota
til þess hugkvæmni og verkkunnáttu
landsmanna.
Undanfarin ár hefur Félag íslenzkra
iðnrekenda beitt sér fyrir kaupstefnum,
þar sem framleiðendum gefst kostur á
að kynna vörur sínar og einnig fer það
mjög í vöxt, að íslenzkar vörur séu sýnd-
ar á kaupstefnum erlendis.
I september s. 1. var síðast haldin
kaupstefna í Laugardagshöllinni í
Reykjavík, þar sem 17 fyrirtæki sýndu
fatnaðarvörur, ætlaðar fyrir innlendan
og erlendan markað. Eru hér birtar
þrjár myndir af flíkum, sem þar voru
sýndar og virðast vera samkvæmt tízk-
unni og mjög smekklegar. Buxnadragt-
irnar eru frá Model-Magazin, en loð-
feldirnir frá ísfeldi hf., og eru þeir úr
íslenzkum gærum. Er hafinn útflutn-
ingur á þeim. Undanfarna áratugi hefur
mikið verið flutt út af óverkuðum gær-
um, sem aðrar þjóðir hafa breytt í loð-
feldi og segir það sig sjálft, að það
verður meiri verðmætismyndun innan-
lands með því að flytja út fullsaumaðan
loðfeld, heldur en saltaða gæru.
Þó að tízkan sé hverful og erfitt að
komast inn á markaði með tízkuvarn-
ing, ættu íslenzkir framleiðendur ekki
að þurfa að standa öðrum að baki í
vöruvöndun og smekkvísi.
S. Th.
HÚSFREYJAN
30