Austurland - 08.01.1998, Page 2
2
FIMMTUDAGUR 8 JANÚAR 1998
Austurland
Málgagn Alþýðubandalagsins á Austurlandi
Útgef'andi: Kjördæmisráð AB á Austurlandi
Ritncfnd: Einar Már Sigurðarson, Elma Guðmundsdóttir, Guðmundur
Bjarnason, Smári Geirsson og Steinunn L. Aðalsteinsdóttir
Kitstjóri: Aðalbjöm Sigurðsson (ábm) 8 4771383og8994363
Blaðamaður: Elma Guðmundsdóttir S 477 1532 og 894 8850
Auglýsingastjóri: Erla Traustadóttir S 477 1740
Ritstjórn, afgreiðsla og augiýsingar:
Hafnarbraut 4 - Pósthólf 75 - 740 Neskaupstaður
S 477 1750 og 477 1571 - Fax: 477 1756
Netfang: austurla@eldhorn.is
Austurland er aðili að Samtökum bœjar- og
héraðsfréttablaða
Umbrot og setning: Austurland
Prentun: Nesprent hf.
Aukum áherslu á baráttu gegn vímuefnum
Aramótaávarp forseta Islands, herra Ólafs Ragnars
Grímssonar, hefur vakið verðskuldaða athygli. í ávarpi sínu
fjallaði forsetinn m.a. um vímuefnavandann og sagði m.a.:
“Við höfum verið stolt af friðsæld og öryggi í samfélagi
okkar. Börn og unglingar gátu óttalaust farið allra sinna ferða.
Ofbeldi og eiturlyf voru svo fjarri íslenskum veruleika að varla
virtist hér þörf á viðnámi sem aðrar þjóðir töldu nauðsynlegt.
Hin friðsæla fjölskylda var í raun myndlýsing á þjóðfélaginu
öllu. Því miður verðum við nú að horfast í augu við þá staðreynd
að friðsemd og öryggi samfélags og einstaklinga er ógnað úr
mörgum áttum. Framandi vágestir reyna á þolrif okkar með nýj-
um hætti og kunna að breyta gerð íslensks samfélags verði vam-
araðgerðir ekki efldar í tæka tíð. Nýlega voru birtar niðurstöður
rannsókna sem sýna hve ört eiturlyfjaneysla unglinga hefur vax-
ið á síðari árum. Um þriðjungur 17 ára ungmenna í höfuð-
borginni hefur prófað hass og helmingur þeirra sem það gerðu
14 ára að aldri hafði þremur árum síðar neytt amfetamíns...
Rannsóknir hafa sýnt að efling fræðslu og forvama skilar
ótvíræðum árangri. Aukin þátttaka í íþróttum og heilbrigðu
tómstundastarfi forðar mörgum frá glapstigum. Því fleiri ár sem
líða án þess að unglingur eða æskumaður neyti tóbaks eða
áfengis, þeim mun líklegra er að hann eða hún komist í gegnum
lífið án þess að verða fórnarlamb eiturlyfja.
Við verðum að efla framlag foreldra og skóla, styrkja
íþróttafélög til að auka þátttöku ungmenna í almennings-
íþróttum. Rétta hjálparhönd samtökum sem leitast við að leiða
fíkla og áfengissjúka um á brautir heilbrigðs lífs....
Við verðum að breyta forgangsröð stjórnvalda, Alþingis,
sveitarstjórna og annarra áhrifaafla á þann veg að baráttan gegn
eiturlyfjum, gegn aukinni áfengisneyslu og reykingum æsku-
fólks, og óheilbrigðum lífsháttum þeirra sem eldri eru, verði
fremst í forgangsröð íslendinga”.
Austurland tekur heilshugar undir orð forseta íslands um leið
og það árnar Austfirðingum alls hins besta á nýbyrjuðu ári.
G.B.
Einn fullkomnasti
innhringibúnaður sem völ er á
Aðeins það besta
^ fyrir Austfirðinga!
^ ELDSMIÐURIIMIM
^^fe Traust
^ samband
BmaBBii
limUIWIlHMWIWil
íþróttamaður Austurlands árið 1997
Vikublaðið Austurland gefur lesendum sínum
annað árið í röð kost á að velja íþróttamann
Austurlands og nú fyrir árið 1997. Allir austfirskir
íþróttamenn eru gjaldgengir og hvetjum við hér
með lesendur blaðsins til að taka þátt í kjörinu.
íþróttamaður Austurlands 1997:
íþróttafélag:
íþróttagrein:
Atkvæðaseðlar sendist til:
Vikublaðið Austurland
Hafnarbraut 4
740 Neskaupstaður
Blak
Stórskemmtilegt blakmót,
„Fitubrennslumótið", fór fram í
íþróttahúsinu í Neskaupstað milli
jóla og nýárs. Þar var keppt í 4
manna liðum í tveimur flokkum
og tóku alls um 60 manns þátt í
mótinu. Dregið var saman í lið
og í betri spilara flokknum var
leitast við að hafa tvo karlmenn
og tvo kvenmenn saman í liði. I
opnum flokki spiluðu öldungar
og leikmenn í 3. aldursflokki.
Sigurvegarar í þeim flokki urðu
Benedikt Sigurjónsson. Laufey
Oddsdóttir, Sigurður Sveinsson
og Sólveig Einarsdóttir. I flokki
1. deildar spilara og 2. flokks
karla sigruðu Apostol Apost-
alov, Jóna Harpa Viggósdóttir,
Matthías Haraldsson og Migl-
ena Apostalova.
Tækifærið hér skal notað og
bent á að öldungablak í karla-
flokki er loksins hafið. Æfingar
eru á mánudögum og fimmtu-
dögum og eru allir velkomnir
og notuð skulu orð karlanna
sjálfra:
Bara við að iðka blak
breytist fita í svita.
Strekkist magi, styrkist bak.
Strákar! Þetta eigið þið að vita.
Grímur heiðraður og
Þróttur Iíka
I 25 ára afmælishófi Blak-
sambands Islands sem haldið
var 14. desember s.l. var Grímur
Magnússon sæmdur gullmerki
sambandsins og er það æðsta
heiðursmerki sem sambandið
veitir fyrir ómetanlegt framlag í
þágu blakíþróttarinnar eins og
segir í fréttatilkynningu frá BLÍ.
I fyrsta skipti var veitt sérstök
félagsmálaviðurkenning og féll
hún í hlut Þróttar Neskaupstað
fyrir framúrskarandi stefnu og
framkvæmd í málefnum yngri
flokka og um leið viðurkenning
á miklu starfi þeirra Olafs Sig-
urðssonar og Gríms Magnús-
sonar.
Dagga blakari ársins
Norðfirðingurinn Dagbjört
Víglundsdóttir var af hálfu
Blaksambands Islands valin
blakmaður ársins 1997. Öll
sérsamböndin innan ÍSÍ tilnefna
sinn íþrótta- og afreksmann og
var Dagga sem fyrr segir fyrir
valinu hjá Blaksambandinu.
Dagbjört Víglundsdótdr stund-
ar nú nám í Reykjavík og hefur
verið leikmaður með Iþrótta-
félagi stúdenta síðusti tvö
keppnistímabil en áður lék hún
með sínu heimafélagi, Þrótti.
Austurland óskar Döggu til
haminju með dtilinn.
Næstu Ieikir
Þróttur leikur við Sindra í
fyrstu umferð Bikarkeppninnar
og fara leikirnir fram á Homa-
firði á laugardaginn. Þróttur R.
leikur svo hér 16. og 17. janúar
og hefst þá síðari hluti keppnis-
tímabilsins.
Austfiröingur vikunnar
Fullt nafn? Finnbogi Jónsson
Fæðingardagur? 18. janúar 1950
Fæðingarstaður? Akureyri
Heimili? Þiljuvellir
Núverandi starf? Framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar
Önnur störf? Engin
Fjölskylduhagir? Kvæntur Sveinborgu Helgu Sveins-
dóttur og eigum tvær dætur, Ester og Rögnu.
Einnig dóttursonurinn Finnbogi
Bifreið? Ford Explorer árg. 1993
Uppáhaldsmatur? Rjúpa
Helsti kostur? Vinnusemi og jafnlyndi
Helsti ókostur? Vinnusemi og er stundum utan við mig
Uppáhalds útivistarstaður? Við góða veiðiá
Hvert langar þig mest að fara? Ganga Laugaveginn í Þórsmörk og sigla á skútu
milli grísku eyjanna.
Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Norðurdalur í Breiðdal
Ahugamál? Vinna og veiði
Uppáhalds tónlistarmaður? Enginn
Uppáhalds íþróttafélag? Kvennadeild Þróttar í blaki
Hvað ætlarðu að gera um helgina? Fara í prufusiglingu með Berki í Póllandi