Austurland - 15.01.1998, Side 5
FIMMTUDAGUR 15 JANÚAR 1998
5
Ormsteiti var haldið á Héraði. Þar var meðal
annars grillað yfir hœgum eldi eitt stykki
hreindýr á svipaðan hátt og oft sést í
amerískum bíómyndum. Ljósm. as
Hið árlega fjarðarball var haldið í Egilsbúð í
Neskaupstað en það var hljómsveitin Quarashi
sem sá um að allir vœru í stuði. Ljósm. as
Héraði vantaði í fyrsta skipti um
langt skeið fólk, t.d. við slátrun á
Fossvöllum og í fleiri störf.
Ormsteiti var haldið með pompi
og prakt á Egilsstöðum og meðal
dagskrárliða var markaðsdagur
þar sem einstaklingum og fyrir-
tækjum var boðið að selja vörur
sínar.
September
Samþykkt var með yfirgnæf-
andi meirihluta atkvæða að gera
Austur Hérað að einu sveitarfél-
agi með sameiningu Egilsstaða,
Eiðahrepps, Hjaltastaðarhrepps,
Skriðdalshrepps og Vallahrepps.
Við sameininguna varð til 2100
manna sveitarfélag en af þeim búa
um 1600 manns á Egilsstöðum.
Einn stærsti fiskur ársins
barst á land í Neskaupstað en
það var túnfiskur sem reyndist
alls 350 kg. eftir að hann var
slægður. Örlög þessa risafisks
urðu að lokum að vera settur á
markað og seldur til Englands.
Stærsti íþróttaviðburður árs-
ins á Austurland var vafalaust
landsleikur Islands og Danmerk-
ur í handbolta sem haldinn var 6.
september í íþróttahúsinu í Nes-
kaupstað. Þar lutu Islendingar í
lægra haldi fyrir Dönum í fyrsta
landsleik í handbolta á Austur-
landi. Tæplega 900 manns hvöttu
íslenska liðið óspart og kátt var í
höllinni þrátt fyrir tapið.
Utlit í læknamálum var svart
og stefndi í að um 4000 íbúar
fjórðungsins yrðu læknalausir.
Aðeins einn sveitarstjórnarmað-
ur var á móti þegar ákveðið var
að ganga til kosninga um sam-
einingu Reyðarfjarðar, Eski-
fjarðar og Neskaup-
staðar á aukafund-
um bæjarstjórna
staðanna þann 11.
sept. A sömu fund-
um var einnig kosið
í undirbúningsráð
en það skipaði Þor-
valdur Aðalsteins-
son, Reyðarfirði,
Sigurður Hólm
Freysson, Eskifirði
og Smári Geirsson,
Neskaupstað.
Ferðafélag Fljóts-
dalshéraðs ásamt
Félagi um verndun hálendis
Austurlands stóð fyrir ferð um
fyrirhugað virkjunarsvæði norð-
an Vatnajökuls. Ferðin var farin
til að gefa almenningi kost á að
fara á þessar slóðir og virða
svæðið fyrir sér. Ef af virkjana-
framkvæmdum verður munu þrjú
vötn myndast sem samtals verða
á stærð við tvö Þingvallavötn.
Skortur var á dagvistunar-
plássi í Neskaupstað. Ástæðan
var sú að breytingar höfðu staðið
yfir á húsnæði leikskólans og
hófst starfsemi því ekki á tilsett-
um tíma. Einnig var starfsemin
aukin, boðið upp á dagvistun
fyrir eins árs böm. Þetta ásamt
aukinni ásókn í dagvistunarpláss
hafði þau áhrif að ekki var pláss
fyrir öll þau börn sem sóttu um.
Austurland birti þann 25. sept-
ember frétt undir fyrirsögninni
„meirihluti íbúanna hlynntur
sameiningu" og var þar vitnað í
mjög óformlega könnun blaðsins
ásamt tilfinningu starfsmanna
blaðsins um viðhorf íbúa Reyð-
arfjarðar, Eskifjarðar og Nes-
kaupstaðar til sameiningu þess-
ara staða. Ljóst er að þessi, að
margra mati glæfralega fyrir-
sögn, var ekki svo glæfraleg eftir
allt saman.
Kennarasamband Austurlands
hélt aðalfund sinn á Eiðum og
þar var þungt hljóð í kennurum
vegna stöðu í kjaradeilu þeirra
og yfirvofandi verkfalls. Seinna
leystist kjaradeila þeirra við
sveitarfélögin farsællega eftir
aðeins eins dags verkfall.
Austfjarðaleið sótti um að
byggja umferðarmiðstöð í mið-
bæ Neskaupstaðar. Um var að
ræða 330 fm hús á tveimur hæð-
um. Mjög skiptar skoðanir voru
um ágæti slíkrar byggingar og
þeir sem voru á
móti sögðu m.a.
að um væri að
ræða viðgerðar-
verkstæði og
geymslu fyrir bíla
fyrirtækisins og
slík starfsemi falli
ekki að því um-
hverfi sem verið
sé að skapa í mið-
bæ Neskaupstaðar.
Peningaleg staða
Neskaupstaðar var
best allra sveitar-
félaga landsins og
er það ekki síst að þakka góðri
stöðu Síldarvinnslunnar hf.
Október
Kvóti Alla ríka var sam-
kvæmt bók Frjálsrar verslunar -
„100 stærstu“, metinn á um 600
- 700 milljónir kr. Sendinefnd
frá Norsk Hydro heimsótti
Austurland til að kanna aðstæður
hún hafði verið flokkuð hjá
Síldarvinnslunni hf. Allt að 50%
af síldinni var síðan keyrt til
baka í bræðslu í Neskaupstað.
Flutningaaðilar voru auðvitað
hæst ánægðir með aukin verk-
efni. Um 30 milljón króna tap
var af rekstri Borgeyjar hf. fyrstu
sex mánuði ársins.
Unglist ‘97 á Egilsstöðum var
haldin dagana 25 -
31 október. Hug-
myndin bak við
hátíðina var að
koma ungu lista-
fólki á framfæri.
Fjölbreytt dagskrá
var í boði, t.d.
fjöldi myndlistar-
sýninga, ljóða-
kvöld o.s.frv.
Fjarðaball, sam-
eiginlegt ball
framhaldsskól-
anna á Austur-
landi, var haldið
þar sem um 350 krakkar víðs-
vegar að úr fjórðungnum skemmtu
sér hið besta við undirleik hljóm-
sveitarinnar Quarashi. Olíuslys
varð í Seyðis-
fjarðarhöfn þegar
togskipið Hólma-
drangur var að
taka olíu þar, en
vegna einhverra
mistaka um borð í
skipinu streymdi
olía í sjóinn úr
yfirfallsröri á þil-
farinu.
Banaslys varð á
brúnni yfir Norð-
fjarðará þegar
sendiferðabíll sem
var að koma frá
Neskaupstað og
fólksbíll sem
kom frá Eskifirði
lentu saman.
Eldri kona, sem
var í fólksbílnum
lést af sárum sín-
um um kvöldið.
Hæsta tré íslands
er í Hallorms-
staðarskógi sam-
kvæmt vísinda-
legri mælingu.
Samvinnu var
komið á milli
framhaldsskólanna á Austur-
landi um innritun og kynningu á
námsframboði á Austurlandi og
unnið var að breyttu skipulagi í
heilbrigðisþjónustu og er mark-
miðið að búa til eina heilbrigðis-
stofnun fyrir allt Austurland.
Nóvember
I fyrsta blaði nóvembermánað-
ar var sagt frá því að áhugi
Hydro Aluminium standi til
720.000 tonna álbræðslu á fsl-
andi en ekki 400.000 tonna eins
og almennt hafði verið talað um.
Einnig var sagt frá fyrirhugaðri
bygginu olíuhreinsistöðvar hér-
lendis og að Austurland hafi
verið rnjög inni í myndinni í því
sambandi. Leikfélag Reyðar-
fjarðar setti upp leikritið „Kjöt“
e. Olaf Hauk Símonarson í
leikstjórn Ottars Guðmundsson-
ar, Málfríður Benediktsdóttir
ásamt dætrum settu upp samsýn-
ingu á Kaffi Nielsen á Egils-
stöðum og hársnyrtideild Verk-
menntaskóla Austurlands var
formlega opnuð.
Framhald á bls 7.
Það mœtti halda að Jóhannes Pálsson vœri að
kenna Norsk Hydro mönnum hvernig fara eigi
að þessu í heimsókn þeirra síðarnefndu í SVN.
Ljósm. as
Við Dimmugljúfur en mórauð áin mun hœtta
að renna um þau ef af virkjanaframkvœmdum
Landsvirkjunar verður. Ljósm. as
Miklir síldarflutningar voru yfir Oddsskarð í
vetur og stundum mátti sjá 2 - 3 flutningabíla í
röð, hver wn sigfullur af síld. Ljósm. Eg.
Þrátt fyrir góðan stuðning þurfti íslenska liðið að lúta í grasfyrir
því danska í fyrsta landsleik í handbolta sem haldinn er á
Austurlandi. Ljósm. as
fyrir fyrirhugað álver í Reyðar-
firði. Meðal annars var Sfldar-
vinnslan hf. skoðuð en starfs-
menn SVN eru álíka margir og
þarf í 200 þúsund tonna álver.
Á milli 50 og 60 starfsmenn
SVN voru stungnir gegn tóbaks-
fíkn í boði fyrirtækisins. Það var
Jia Chang Wen frá Kína,
meistari í kínverskum náttúru-
lækningum sem sá um potið.
Skipaklettur stóð fyrir námskeiði
fyrir sjómenn og maka þeirra
sem gekk út á að gera fólk sátt-
ara við stöðu sína.
Allri síld sem fór til verkunar
hjá Samherja á Eskifirði var
keyrt frá Neskaupstað eftir að
tlgti j&a
. itc 1-ÁbTT’
-41 * Jöj
v - JHBPppIBÖk 1 kJ'^u m&ul
12 nemendur stunduðu nám við hársnyrtibraut Verkmenntaskóla
Austurlands sem var starfrœkt nú í fyrsta sinn og opnuð með
viðhöfn 4. nóv. s.l. Ljósm. as