Austurland - 22.01.1998, Síða 2
2
FIMMTUDAGUR 22 JANUAR 1998
Austuriand
Málgagn Alþýðubandalagsins á Austurlandi
Utgefandi: Kjördæmisráð AB á Austurlandi
Ritnefnd: Einar Már Sigurðarson, Elma Guðmundsdóttir, Guðmundur
Bjamason, Smári Geirsson og Steinunn L. Aðalsteinsdóttir
Ritstjóri: Aðalbjöm Sigurðsson (ábm) ÍS 4771383og8994363
Blaðamaður: Elma Guðmundsdóttir 8 477 1532 og 894 8850
Auglýsingastjóri: Erla Traustadóttir S 477 1740
Ritstjórn, afgreiðsla og auglýsingar:
Hafnarbraut 4 - Pósthólf 75 - 740 Neskaupstaður
S 477 1750 og 477 1571 - Fax: 477 1756
Netfang: austurla@eldhom.is
Austurland er aðili að Samtökum bœjar- og
héraðsfréttablaða
Umbrot og setning: Austurland
Prentun: Nesprent hf.
Góðærið á Islandi
Ráðamenn þjóðarinnar keppast hver um annan þveran við að
lýsa því yfir að góðæri hafi ríkt á landinu á síðastliðnu ári og allt
útlit sé á því að það haldi áfram á þessu ári. Þeir þakka sér m.a.
minni halla á ríkisbúskapnum. Víst er um það að mörg fyrirtæki
hafa skilað töluvert miklum hagnaði og er það vel. Mikil þensla
er í atvinnulífinu sem tengist helst stóriðjuáformum. En hafa
allir landsmenn orðið varir við góðærið? Eða er það kannski
með það eins og launahækkanir og launaskrið, að það er alltaf
mest hjá þeim sem mest hafa fyrir.
Ætli aldraðir og öryrkjar verði mikið varir við góðærið ?
Hversu mikið verða verkakonur varar við góðærið? Kaupmáttur
verkakvenna hefur hækkað um sex prósent síðastliðin fjögur ár
á sama tíma og kaupmáttur verkakarla hefur hækkað um 30
prósent. Munur á launum verkakvenna og verkakarla var þó
nokkur fyrir. Kallast þetta góðæri? Hefur atvinnuleysi kvenna
minnkað? Á sama tíma og atvinnuleysi karla minnkar þá eykst
atvinnuleysi kvenna. Er það góðæri?
Hvernig er með heilbrigðiskerfið? Nær góðærið þangað? Nú
er svo komið að barnafólk, eldra fólk og öryrkjar leita sér ekki
sérfræðiaðstoðar vegna þess að það hefur ekki efni á því. Deilur
milli sérfræðinga og Tryggingastofnunar ríkisins hafa staðið yfir
síðan á haustdögum. Fleiri og fleiri sérfræðingar hafa sagt upp
samningi við Tryggingastofnun og verður fólk að borga fullt
gjald ef það leitar til þessara sérfræðinga. Nú á allra síðustu
dögum hefur heilbrigðisráðherra gefið það út, geti fólk lagt fram
reikninga muni þeir verða greiddir þegar deilan leysist. Ætli það
séu margir sem geymi reikninga sem Tryggingastofnun er áður
búin að neita að borga?
Hvar er það velferðakerfi statt í dag, sem við höfum hingað
til státað okkur af íslendingar? Margrét Frímannsdóttir,
formaður Alþýðubandalagsins, telur að verið sé að brjóta lögin
um réttindi sjúklinga með því að mismuna fólki á þennan hátt
eins og gert er í dag. Hún hefur boðað að Alþýðubandalagið og
óháðir muni leggja fram á Alþingi frumvarp til laga til að breyta
þessu þannig að staðið verði við lög um heilbrigðisþjónustu og
réttindi sjúklinga, ef ráðherra heilbrigðismála muni ekki gera það.
Hér hefur verið minnst á þá hópa í þjóðfélaginu sem minnst
hafa orðið varir við þetta góðæri. Var ekki slagorð Fram-
sóknarflokksins í síðustu kosningum “Fólk í fyrirrúmi”? Fram-
sóknarmenn stýra þeim ráðuneytum sem málefni þessara hópa
falla undir og eru í aðstöðu til þess að láta góðærið ná til þeirra.
Þama er nú tækifærið til að standa við kosningaloforðin eða
falla þessir minnihlutahópar kannski ekki undir þetta slagorð?
Aðalatriðin hljóta að vera að spoma við fótum varðandi
greiðslu fyrir sérfræðiverk lækna svo að allir hafi jafna mögu-
leika til að nýta sér þau verk, taka á launamun karla og kvenna
og að atvinnutækifæri kvenna verði til jafns við karla.
SLA
GETRAUNALEIKUR
ÞROTTAR
Um síðustu helgi náðu tveir
hópar 11 réttum, það vom TIPP-
VERKUR og WEST END og
þrír hópar náðu 10 réttum,
DÚLLURNAR, BANDIT og
MAMMA OG ÉG. Annars var
árangurinn ekki til að hrópa
húrra yfir. I getraunaleiknum er
TIPPVERKUR í efsta sæti með
60 stig DÚLLURNAR og
WEST END em með 58 stig og
þar á eftir koma GUFURNAR,
TRÖLLADEIG og LEA 0.
Meðal úrslita í deildarkeppn-
inni um síðustu helgi voru að
TIPPVERKUR vann LÆKINN
11-9, DÚLLURNAR unnu
NESBÆ 10-8, LEA 0 vann
TRÖLLADEIG 9-8, WEST
END vann MAMMA OG ÉG og
MÓRARNIR unnu PELE 7-6.
Stað efstu hópanna í deildar-
keppninni eftir 6 umferðir.
TIPPVERKUR er í efsta sæti
með 11 stig, DÚLLURNAR og
LEA 0 em með 9 stig, VIÐ
LÆKINN, TRÖLLI og WEST
END eru með 8 stig, síðan koma
NESBÆR, TRÖLLADEIG, 3
FUGLAR, GUFURNAR, HB
RÁÐGÁTUR, BANDIT og
MÓRARNIR með 7 stig. Þessir
keppa saman um næstu helgi.
TIPPVERKUR LEA 0
DÚLLURNAR VIÐ LÆKINN
TRÖLLI WEST END
NESBÆR TRÖLLADEIG
3 FUGLAR GUFURNAR
HB RÁÐGÁTUR BANDIT
MÓRARNIR MAMMA OG ÉG
SKÓSI BÓLSTRUN
B2 PÍTA MEÐ KEBAB
PELE NÖNSOS
FEÐGARNIR BARÐINN
ENNCO LIVERUNITED
NESTAK SÚNBÚÐIN
OLÍS FULHAM
Tippararnir í TRÖLLA-
DEIGI fengu aukasamkeppni
um síðustu helgi þegar eigin-
konurnar settu saman seðil og
kölluðu hópinn HUNDSVIT.
Gerðu þær sér lítið fyrir og náðu
9 réttum á meðan snillingarnir í
TRÖLLADEIGI náðu aðeins 8
réttum. Það hefur verið gaman
hjá þeim að horfa á enska bolt-
ann á laugardaginn.
Getraunaþjónusta ÞRÓTTAR
er opin föstudaga kl 19-21 og
laugardaga kl 10-13.
Ókeypis smáar
Iðnaðarhúsnæði
Til sölu er iðnaðarhúsnæði
að Naustahvammi 48 Neskaup-
stað. Upplýsingar gefur Heiðar í
síma 4771815
Lada Sport 1600
Til sölu er Lada Sport 1600
árgerð 1994, ekin 36.000 km.
Upplýsingar í síma 477 1333
Bíll til sölu
Mazda 626 árgerð '86,
þarfnast smá lagfæringa. Tilboð
óskast. Uppl. í síma 477 1 799
Ungbarnasund
er að hefjast í sundlaug FSN.
Byrjenda- og framhaldsnám-
skeið
Uppl. gefur Stebba í
477 1944
Bridge
Úrtökumót Bridgesambands Austurlands fyrir íslandsmótið í
sveitakeppni fór fram í golfskálanum að Ekkjufelli 17. og 18. jan.
s.l. Til leiks mættu 9 sveitir víðs vegar af Austurlandi og unnu 4
efstu sveitirnar sér rétt til þátttöku í undankeppni Islandsmótsins
sem haldin verður í mars 1998
Úrslit:
1. Sparisjóður Hornafjarðar 174 stig
Halldór Tryggvason, Þorsteinn Sigjónsson,Gestur Halldórsson,
Þórir Flosason.Ragnar L. Bjömsson, Sigurpáll Ingibergsson (BH)
2. Kaupfélag Héraðsbúa 152 stig
Guðmundur Pálsson, Þorvaldur P. Hjarðar, Sveinn Herjólfsson,
Óttar Ármannsson,Þorsteinn Bergsson (BF).
3-4 Herðir hf. 150 stig
Guttormur Kristmannsson, Sigurjón Stefánsson, Bemhard N.
Bogason, Hlynur Garðarsson,Pálmi Kristmannsson, Stefán
Kristmannsson (BF)).
3-4 Landsbanki íslands Seyðisfirði 150 stig
Ámi Guðmundsson (BRE), Skúli Sveinsson (BBe),Einar H.
Guðmundsson, Unnar Jósepsson (BSey)
Keppnisstjóri og reiknimeistari var Matthías Þorvaldsson.
Austfirðingur vikunnar
er að þessu sinni Hulda Gísladóttir sem sem nú
vinnur ötlulega að nœsta þorrablóti sveitarmanna
Fullt nafn? Hulda Gísladóttir
Fæðingardagur? 9. janúar 1958
Fæðingarstaður? Neskaupstaður
Heimili? Gauksmýri 3, Neskaupstað
Núverandi starf? Ræstingakona
Önnur störf? Engin
Fjölskylduhagir? Er gift og á þrjú börn
Farartæki? Bíll, hjól og tveir jafnfljótir
Uppáhaldsmatur? Rjúpur að hætti Seldælinga
Helsti kostur? Jafnlyndi
Helsti ókostur? Óþolinmæði
Uppáhalds útivistarstaður? Seldalur í góðu veðri
Hvert langar þig mest að fara? Til Ástralíu
Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Þórsmörkin
Áhugamál? Tónlist, bridge, skíði og önnur útivera
Uppáhalds stjórnmálamaður? Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Uppáhalds íþróttafélag? Þróttur
Mottó? Að lifa fyrir líðandi stund
Hvað ætlarðu að gera um helgina? Fara á þorrablót á Kirkjumel