Austurland


Austurland - 22.01.1998, Síða 7

Austurland - 22.01.1998, Síða 7
FIMMTUDAGUR 22 JANUAR 1998 7 Minning Laufey Vilhjálmsdóttir fædd- ist 8. október 1911. Hún lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Nes- kaupstað 16. janúar s.l. Foreldrar Laufeyjar voru Vilhjálmur Stefánsson, útvegs- bóndi í Hátúni á Norðfirði, og kona hans Kristín Arnadóttir. Laufey var nœstelst 11 alsystk- ina en eldri voru þrjú hálf- systkini sem öll eru látin en sex alsystkinanna lifa. Laufey ólst upp í Hátúni og vandist ung við margvísleg störf en síðar á ævinni stundaði hún einkum verslunar- og skrifstofustörf. Síðustu starfsárin 1961 - 1989, var hún gjaldkeri og bókari í Sjúkrasamlagi Neskaupstaðar, auk húsmóðurstarfa. Fyrri maður Laufeyjar var Jóhann Sigurður Þórðarson f. 16.06. 1908 d. 12.10 1937, sjómaður. Foreldrar hans voru Þórður Benediktsson, sjómaður, og Kristín Björg Jóhannesdóttir verkakona. Synir Laufeyjar frá fyrra hjónabandi eru 1) Þórður Kr. Jóhannsson f. 03.06.33, framhaldsskólakennari, kvœntur undirritaðri. Börn þeirra eru Laufey, nemi við Hl, og Jóhann Þorsteinn, kerfisfrœðingur. Sonur Þórðar og Karenar Sigurðardóttur er Guðmundur Kristinn, húsasmiður í Keflavík. 2)Kristinn V. Jóhannsson framkvœmdastjóri, kvœntur Báru Jóhannsdóttur skrifstofumanni, og eru synir þeirra Jóhann Gunnar, framkvœmdastjóri, og Eysteinn, kennari. Seinni maður Laufeyjar var Hans Ö Stephen- sen, múrarameistari f. 04.11. 1905 d. 15.01. 1959. Foreldrar hans voru Ögmundur Stephen- sen að Hólabrekku á Gríms- staðarholti og kona hans, Ingi- björg Þorsteinsdóttir. Sonur þeirra erJóhann Grétar f. 03.10 1948, húsasmíðameistari og kennari, kvæntur Maríu Arna- dóttur, bankastarfsmanni. Börn þeirra eru Hreinn, nemi við Handíða- og myndlistarskóla Islands, Elísabet Sigríður, snyrtifrœðingur, Hans Ögmundur húsasmiður, og Grétar nemi við H.í. Með nokkrum orðum langar mig að minnast tengdamóður minnar og vinkonu. Hún var aðeins 26 ára þegar fyrri maður hennar drukknaði frá henni og tveimur litlum drengjum, fjögurra og þriggja ára. Þetta voru erfið ár og mikið lagt á unga konu. Hún átti þó því láni Óskum útgerð og áhöfn til hamingju með endurbygginguna á Berki NK 122 Megi gæfa fylgja þessu skipi og áhöfn þess Teiknistofa Karls Þorieifssonar Akureyri að fagna að tengdamóðir hennar, Kristín Björg Jóhannesdóttir, flutti þá til hennar og bjuggu þær síðan saman allt til þess að Kristín fór fjörgömul á elliheimili. Kristín var einstök kona og það var ekki síst hennar hjálp að þakka að Laufey gat unnið úti og haldið heimilinu saman. Laufey lagði á það mikla áherslu að geta komið drengjunum sínum til einhverra mennta og það tókst þrátt fyrir mikla fátækt og veikindi. Saman sáu þær til þess. Síðar eignaðist hún Jóhann Grétar með seinni manni sínum og hann var ekki nema 10 ára þegar faðir hans lést. Jóhann komst einnig til mennta og enn með hjálp Kristínar. Að lokum vil ég þakka þér fyrir tryggðina við mig þegar ég átti í veikindum sem fáir skildu. Þá stóð ekki á stuðningi frá þér. Þú hringdir í mig, hvattir mig og taldir í mig kjark til að gefast ekki upp og halda lífinu áfram. Því gleymi ég aldrei. Við áttum okkur líka alltaf einn góðan sumardag saman, keyrðum saman í Egilsstaði, bara við tvær, fórum í verslanir, borðuðum þar kvöldmat, hlógum og skemmtum okkur fram eftir kvöldi. Oft töluðum við löngum stundum saman í síma því við náðum svo vel saman og gátum talað um hvað sem var. Ég á eftir að sakna þín, elsku Laufey mín. Ég kveð þig núna en að lokum vil ég senda þér spakmæli sem mér finnst eiga vel við um samband okkar. „Af öllum gæðum sem okkur veitir viturleg forsjá til ánægju- auka er vináttan dýrmætust“ (Epicuros) Þín tengdadóttir Steinunn Þorsteinsdóttir (Stella) Óskum útgerð og áhöfn ----til hamingju---- með endurbygginguna á Berki NK ÍSS Vatnagörðum 16 - 104 Reykjavík Símar: 568-6625 og 568-6120 |pLM Hönnum vefsíður fyrir fyritœki, stofnanir og einstaklinga ELDSMIÐURINN Sími: 478-1600 webmaster@eldhorn, is Eldsmiöurinn - austfirskt 21. aldar fyrirtœki Við óskum Síldarvinnslunni og Norðfirðingum öllum til hamineju með breytineuna á k Berki NK 122 nj ,-úr.t ■ , ****** í. ', HÍÉ-

x

Austurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.