Austurland - 29.01.1998, Síða 1
Sírhsvari
878 1474
Skíðaskáli
S. 476 1 466
Skíöamiöstöö Austurlands
í Oddsskaröi
MOLAR
„Nýjan“ opnar í
Mars
„Nýjan“, hin nýja verslun-
armiðstöð á Egilsstöðum
opnar að öllum líkindum í
mars. Byggingaraðilinn skil-
ar af sér um mánaðarmótin
febrúar/mars og í kjölfarið
verður farið að innrétta
húsnæðið.
Búið er að selja 5 einingar
í húsinu og leigja 2, þannig
að einungis er eftir að selja
eða leigja tvær af níu eining-
um. Það er því ljóst að starf-
semi í húsinu fer í gang á
næstu mánuðum.
Megin áherslan á
Stafdal
Skíðasvæðinu á Fjarðar-
brúninni á Fjarðarheiði verð-
ur ekki lokað að sögn Guð-
mundar Steingnmssonar, for-
manns Byggðarsamlags um
rekstur skíðasvæða á vegum
Seyðisfjarðar, Egilsstaðabæj-
ar og Fellahrepps en hugmynd-
ir þess eðlis voru ræddar á
fundi þessara aðila í síðustu
viku. Megin áhersla þessara
aðila verður að reka skíða-
svæðið í Stafdal en svæðið í
Fjarðarbrúninni verður opnað
ef snjóalög leyfa. Hinsvegar
verður ekki farið út í að færa
til snjó, til að opna svæðið
eða halda því opnu, vegna
mikils kostnaðar við slíkt.
Mokfískirí í
dragnótina
Vélbáturinn Jón Bjöm NK
hefur verið að mokfiska í
Norðfirði undanfarna daga.
Afli bátsins hefur verið frá
tveimur upp í tæplega sex
tonn á dag. I síðustu viku var
afli bátsins 17 lestir. Jón
Bjöm er með dragnót og hef-
ur aflinn nánast einvörðungu
verið ufsi, sem seldur hefur
verið í gegnum Fiskmarkað
Homafjarðar. Kaupandi hef-
ur verið Fiskiðjusamlag Húsa-
víkur og hefur fengist gott
verð fyrir aflann þótt smár sé.
Veltuaukning Síldarvinnslunnar hf.
á síðasta ári nam ellefu prósentum
NESKAUPSTAÐUR
Heildarvelta Síld-
arvinnslunnar hf. á síðasta ári
nam 4.7 milljörðum króna sam-
anborið við 4.2 milljarða árið
1996. Veltuaukning því um 11%.
Framleiðsluverðmæti í vinnslu
jókst um 18% þrátt fyrir 9% sam-
drátt í fiskvinnslu en bræðslan
jókst um 38%.
A síðasta ári var 81% aukn-
ing í framleiðslu frystrar loðnu
og loðnuhrogna, 39% aukning á
framleiðslu á frosinni sfld og
28% aukning á framleiðslu
mjöls. Samdráttur var hins vegar
um 32% á framleiðslu saltsfldar
og 14% samdráttur í framleiðslu
saltfisks. Alls nam framleiðsla
fyrirtækisins tæplega 63.000
lestum, þar af voru rúmlega
30.000 lestir mjöl og 15.000
lestir af lýsi.
Afli skipa Sfldarvinnslunnar
hf. nam tæplega eitt hundrað
þúsund lestum á síðasta ári og er
það um fimm þúsund lestum
minna en árið á undan. Heildar-
aflaverðmæti aflans nam hins
vegar tæplega 1.5 milljarði
króna sem er aðeins 1 % lægra en
árið á undan.
Aflaaukning varð hjá Barða
NK um 110%, en afli rækju-
frystitogarans Blængs dróst
saman um tæplega 600 lestir og
afli Barkar um 32% þar sem
skipið var frá veiðum rúmlega
hálft árið vegna endurbyggingar
í Póllandi. Beitir var með mesta
aflaverðmætið á síðasta ári 399
milljónir króna, aflaverðmæti
Barða var 382 millj. kr., Blængs
341 millj. kr., Barkar 185 millj.
kr. og Bjarts 180 millj. kr.
Mikið var um dýrðir í Nes-
kaupstað síðastliðinn föstudag
þegar nýr og endurbættur Börk-
ur NK 122 var til sýnis almenn-
ingi en skipið hafði komið til
heimahafnar kvöldið áður.
Sfldarvinnslan hf. bauð íbú-
um Neskaupstaðar, Eskifjarðar
og Reyðarfjarðar sérstaklega að
koma og skoða skipið. Auk
þeirra var fjöldi gesta lengra að
kominn, þar á meðal forsvars-
menn stórra viðskiptavina Sfld-
arvinnslunnar. A myndinni hér
til hliðar sjást nokkrir ungir,
kannski verðandi sjómenn,
gæða sér á pólsku kóki og
auðvitað hinu ramm pólska
Prins Polo. Fleiri myndir frá
komu Barkar eru á síðu 5. Þar
ber fyrst að nefna skipstjórann
Sturlu Þórðarson, Þórð Þórð-
arson sem hefur komið Stalín á
sinn stað, en þeir hafa verið
klefafélagar um árabil. Stalín
var sem kunnugt er afmunstr-
aður áður en Börkur fór til
Póllands í sumar. Þá er mynd úr
þrekklefanum og önnur af Emil
Thorarensen og fleirum virða
fyrir sér gufubaðið. Fjósm. Eg.
Hótel Hérað opnaði um helgina
Nýtt hótel var opnað á Egils-
stöðum s.l. laugardag og hefur
það fengið nefnið Hótel Hérað.
Asgarður hf. eignarhaldsfélag er
eigandi hótelsins.
Það var í ágúst s.l. sem undir-
ritaður var samningur við bygg-
ingarverktaka sem afhenti hótel-
ið s.l. laugardag. I hinu nýja hót-
eli eru 36 tveggja manna her-
bergi með baði og fundarsalir.
Matsalur tekur um 110 manns í
sæti. Rekstur hótelsins verður
leigður út til næstu 7 ára og eru
það Flugleiðahótelin sem leigja
reksturinn.
Hótel Hérað var til sýnis á
sunnudaginn og er Guðmundur
Kristinsson, hótelstjóri, afar
ánægður með viðtökur gesta.
Um 600 manns skráðu sig í
gestabók en hann sagði að búast
mætti við að gestir hefðu verið
um 100 fleiri. Fyrstu gestimir,
fyrir utan boðsgesti við opnun-
ina, gistu á sunnudaginn og
bókanir fyrir sumarið lofa góðu.
Starfsmenn eru sjö en þeim
verður væntanlega fjölgað eftir
því sem sól hækkar á himni
sagði Guðmundur hótelstjóri.
6k0
Huht tómatfiófia
Pfihfikcx 2 samah 159.
Jakobs tekex 200 gt. 42
Kótilettuf ú 69?.- kg.