Austurland - 29.01.1998, Síða 2
2
FIMMTUDAGUR 29 JANÚAR 1998
Austurland
Málgagn Alþýðubandalagsins á Austurlandi
Útgefandi: Kjördæmisráð AB á Austurlandi
Ritnefnd: Einar Már Sigurðarson, Elma Guðmundsdóttir, Guðmundur
Bjamason, Smári Geirsson og Steinunn L. Aðalsteinsdóttir
Ritstjóri: Aðalbjöm Sigurðsson (ábm) S 4771383og8994363
Blaðamaður: Elma Guðmundsdóttir 8 477 1532 og 894 8850
Auglýsingastjóri: Erla Traustadóttir S 477 1740
Ritstjórn, afgreiðsla og auglýsingar:
Hafnarbraut 4 - Pósthólf 75 - 740 Neskaupstaður
S 477 1750 og 477 1571 - Fax: 477 1756
Netfang: austurla@eldhom.is
Austurland er aðili að Samtökum bœjar- og
héraðsfréttablaða
Umbrot og setning: Austurland
Prentun: Nesprent hf.
Sveitarstjórnarkosningar
Næstu vikur og mánuðir munu væntanlega bera þess
merki að sveitarstjórnarkosningar fara fram í maí n.k.
Þjóðmálaumræðan mun taka mið af kosningunum og í
einstaka sveitarfélögum munu menn takast á um menn og
málefni. Tvennt gerir þessar kosningar athyglisverðari en
margar fyrri sveitarstjórnarkosningar. f fyrsta lagi er nú
verið að kjósa sveitarstjórnir í mörgum nýjum
sveitarfélögum og í öðru lagi bendir flest til þess að
samvinna félagshyggjufólks verði algengari í þessum
kosningum en áður hefur verið.
Á Austurlandi hafa hreinar flokkslínur ráði mestu í
framboðum í þéttbýli en lítið sem ekkert komið við sögu
utan þess. Tvær áberandi undantekningar hafa þó verið þar
sem félagshyggjufólk hefur borið fram sameiginlega með
góðum árangri. Annarsvegar hefur félagshyggjufólk borið
fram á Hornafirði undir nafni Kríunnar og hinsvegar
félagshyggjufólk á Seyðisfirði undir nafni Tinda. Bæði
þessi framboð munu halda ótrauð áfram í vor og telja
verður líklegt að svipað samstarf verði í fleiri
sveitarfélögum hér eystra án þess að slíkt hafi verið
ákveðið.
Kosningar í nýjum sveitarfélögum hafa yfir sér þann
sérstaka sjarma að óvissuþættir eru yfirleitt fleiri en þegar
kosið er í gömlum rótgrónum sveitarfélögum. Á
Austurlandi eru þrjú stærstu sveitarfélögin ný í þeim
skilningi að í vor verður kosið til sveitarstjórna í
sameinuðum sveitarfélögum. Þessi sameining hefur
væntanlega mismikil áhrif á úrslit kosninga en allsstaðar
verður hún einhver. Þá skapar sameiningin möguleika til
að horfa bjartari augum til framtíðar um leið og hún gerir
auknar kröfur til framboðsaðila um jákvæða stefnu til
framtíðar.
Að loknum kosningum munu Austfirðingar eiga þrjú
öflugri sveitarfélög en þeir eiga í dag. Mikilvægt er að vel
takist til í komandi kosningum í öllum sveitarfélögum
fjórðungsins en ekki síst í þessum öflugustu
sveitarfélögum sem munu væntanlega hafa mest áhrif á
þróun fjórðungsins í framtíðinni. Komandi vikur og
mánuðir munu ráða miklu um framtíð fjórðungsins og
þess vegna brýnt að félagshyggjufólk í fjórðungnum vandi
mjög til undirbúnings komandi sveitarstjórnarkosninga.
Um leið og félagshyggjufólk er hvatt til dáða er sú ósk
fram sett að árangurinn verði sem bestur í komandi
sveitarstjómarkosningum þannig að áhrif félagshyggju
megi verða sem mest í fjórðungnum. Þannig verður
framtíð fjórðungsins best tryggð.
ems
Getraunir
1X2
GETRAUNALEIKUR
ÞRÓTTAR OG PIZZA 67
Nú er lokið sjö vikum af tólf í
getraunaleik Þróttar og PIZZA
67, og er þátttakan svipuð og
fyrir áramót. Nokkrir hópar eru
að ná mjög góðum árangri, sér-
staklega síðustu vikumar. Hjá
Islenskum getraunum er einnig
hópleikur í gangi, en þar eru
aðeins búnar þrjár vikur. Þar er
deildarskipting þar sem fjöldi
raða ræður því hvort maður er í
fyrstu, annari eða þriðju deild.
Norðfirskir tipparar eru á
toppnum í þriðju deild, hópurinn
„Mamma og ég“ er þar í fyrsta
sæti og hefur náð frábærum
þremur vikum, 12-10-12 samtals
34 stig. Hópurinn „West end“ er
í öðm sæti í sömu deild með 33
stig, 11-11-11. Fleiri hópar frá
okkur em í toppbaráttunni, eins
og „Tippverkur" og „Dúllumar“.
Einn hópur náði 12 réttum og
fimm hópar náðu 11 réttum um
síðustu helgi og virðist manni að
norðfirskir tipparar vera aðeins
að koma til upp á síðkastið og
bíðum við aðeins eftir þeim
stóra. I Getraunaleik Þróttar og
Pizza 67 heldur Tippverkur
öruggri forustu með 71 stig
West End er í öðm sæti með 69
og Dúllumar í þriðja með 68
stig. Síðan koma Gufurnar,
Trölladeig, LEA 0 og 3 Fuglar.
I Deildarkeppninni urðu úrslit
eftirfarandi.
Tippverkur 11 LEA 0 10
Dúllumar 10 Við Lækinn 9
Tölli 10 Westendll
Nesbær 10 Trölladeig 11
3 Fuglar 11 Gufumar 10
HB ráðgátur 8 Bandits 8
Mórarnir 7 Mamma og ég 12
Skósi 9 Bólstrun 7
B2 10 Píta með Kebab 10
Pele 11 NÖNSOS 6
Feðgamir 8 Barðinn 8
Ennco 9 Liverunited 9
Nestak 7 SÚNbúðin 8
OLÍS 9 Fulham 10
Staða efstu hópa í Deildar-
keppninni:
Tippverkur 13, Dúllurnar 11,
West end 10, LEA 0 9, 3 Fuglar
9 og Trölladeig 9 stig . Þess má
geta að Tippverkur og Dúllumar
keppa saman um næstu helgi.
Getraunaþjónusta ÞRÓTTAR
er opin föstudaga kl 19-21 og
laugardaga 10-13.
Blak
Jóna Harpa mei^dist
í leiknum gegn IS
Kvennalið Þróttar laut í lægra
haldi fyrir erkifjendunum sínum,
ÍS í íþróttahúsi Hagaskóla s.l.
laugardag, 0-3. Hrinumar fóru
15-5,15-5 og 15-12. Jóna Harpa
Viggósdóttir meiddist á hné í
upphafi leiksins og náði liðið sér
aldrei á strik eftir það. Það var
aðeins í þriðju hrinu sem liðið
fór að bíta frá sér.
Víkingur er efst í deildinni
með 21 stig eftir 8 leiki og hefur
liðið komið vemlega á óvart í
vetur. IS er í öðm sæti með 18
stig eftir 7 leiki og Þróttur í
þriðja sæti með 14 stig einnig
eftir 7 leiki. Undanrásum í bik-
arkeppni kvenna er lokið. Þar
Leiðrétting
Þau leiðu mistök urðu
þegar Finnbogi Jónsson, fram-
kvæmdarstjóri Síldarvinnsl-
unnar hf. var maður vikunnar
hjá blaðinu að sagt var að
Finnbogi ætti engan uppáhalds
tónlistarmann.
Hið rétta er að Finnbogi á
engan uppáhalds stjómmála-
mann. I samtali við blaðið
vegna þessa sagðist hann eiga
marga uppáhalds tónlistar-
menn og ef hann ætti að tiltaka
einn sérstaklega þá myndi
hann nefna Bubba Morteins.
Austurland biðst velvirð-
ingar á þessum mistökum.
fara áfram; ÍS, Þróttur, Völs-
ungur og Víkingur.
Annað fjölliðamót yngri
flokkanna fer fram í Reykjavík
um aðra helgi og mun Þróttur
senda lið til keppni í öllum
flokkum. Á sama tíma leikur
karlaliðið syðra. í 1. deild karla
er staðan þannig að Þróttur R. er
í 1. sæti með 23 stig eftir 8 leiki,
Þróttur N. er í öðm sæti með 19
stig eftir 10 leiki og ÍS er í þriðja
sæti deildarinnar með 18 stig
eftir 9 leiki.
Fjögur efstu liðin í báðum
deildunum munu síðan berjast
innbyrðis um íslandsmeistara-
titilinn og má fullvíst telja að
bæði Þróttarliðin verði í þeirri
baráttu svo og í fjögurra liða
úrslitunum í Bikarkeppni BLI.
Þess vegna er stuðningur bæjar-
búa m.a. brýnni en nokkru sinni
fyrr.
Austfirðingur vikunnar
er að þessu sinni Sturla Þórðarson
skipstjóri á Berki NK 122
Fullt nafn? Sturla Þórðarson
Fæðingardagur? 14. júlí 1956
Fæðingarstaður? Neskaupstaður
Heimili? Marbakki 1 Neskaupstað
Núverandi starf? Skipstjóri á Berki NK 122
Önnur störf? Engin
Fjölskylduhagir? Eiginkona og 4 börn
Farartæki? Toyota 4 Runner
Uppáhaldsmatur? Allt kjöt
Helsti kostur? Um það verða aðrir að dæma
Helsti ókostur? „Dittó“
Uppáhalds útivistarstaður? Heima í garði
Hvert langar þig mest að fara? Grænlands
Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Neskaupstaður
Áhugamál? Vinnan
Uppáhalds íþróttamaður? Enginn sérstakur
Uppáhalds íþróttafélag? Þróttur Neskaupstað
Hvað ætlarðu að gera um helgina? Vinna ef veður leyfir