Austurland - 12.02.1998, Blaðsíða 8
Neutral ofnæmisprófað
þvottaefní og taumýkír
KEA Londonfamb
Min appelsím
. a\\a dagafrá kl.io.oo.jg
■
NESBAKKI
®477 1609 og 897 1109
°o
Austurland
Neskaupstaö 12. febrúar 1998. Verð í lausasölu kr. 170.
Austfirðir
Byrjað að selja á Fisk-
markaði Austurlands
Unnar Björgúlfsson á Eski-
firði hefur verið ráðinn starfs-
maður hins nýstofnaða Fisk-
markaðs Austurlands. Unnar er
nú í upphafi ráðinn til þriggja
mánaða og er þessi tímabundna
Gallerí Eldhorn.is
Næstkomandi fimmtudag kl.
17.00 verður opnuð málverka-
sýning á Eldsmiðnum. Þessi
netsýning Sería '97 er af
nýjustu myndum Árna Jóns
Hannessonar, sem eru 16,
gerðar með tússlitum.
Frummyndirnar eru í
stærðinni A3 en á vefnum eru
þær í 500 punkta upplausn.
Eins hægt að skoða þær í 250
punkta upplausn. Árni Jón
Hannesson er fæddur 11. apríl
1952 að Grund II Borgarfirði
eystri og ólst þar upp til 16
ára aldurs. Slóðin:
www.eldhorn.is/arthorn/
ráðning fyrst og fremst að hans
sögn gerð til að koma starf-
seminni í gang.
Fyrsti fiskurinn var seldur í
gegn um Fiskmarkað Austur-
lands á fimmtudag í síðustu viku
og síðan hefur verið selt nokkr-
um sinnum og hefur eingöngu
verið um trillufisk að ræða.
Ágætt verð hefur fengist fyrir
fiskinn, 101.- til 110.- fyrir
kílóið af tveggja til tveggja og
hálfs kflóa þorski.
Ákveðið hefur verið að mark-
aðurinn hafi aðstöðu sína á
Eskifirði og verður á næstunni
gengið frá kaupum á húsnæði á
hafnarsvæðinu. Unnar sagði að
hann væri viss um að fyrir t.d.
trillukarla væri þessi fisk-
markaður spuming um líf eða
dauða. Á fiskmarkaðinum væri
þeim tryggt hæsta verð hverju
sinni og það hlyti að tryggja
öryggi þeirra.
Neskaupstaður
Fjarðaferðir kaupa nýjan og stærri bát
Fjarðaferðir hf. hafa undirrit-
að kaupsamning að nýjum báti
sem kemur í stað gamla Mímis.
Neskaupstaður
Fæöingum á FSN fækkaði um 41%
85% nýting á sjúkrarúmum
Fæðingum á Fjórðungssjúkra-
húsinu í Neskaupstað fækkaði
um 41% á milli áranna 1996 og
1997. Alls fæddust 33 börn á
sjúkrahúsinu á síðasta ári en þau
voru 56 árið 1996. Rétt um helm-
ingur þeirra kvenna sem fæddu á
FSN í fyrra voru frá Eskifirði og
Reyðarfirði eða 16, 9 frá Nes-
kaupstað, 4 frá Suðurfjörðum og
aðrar 4 frá Héraði og Seyðis-
firði.
Aukning innlagna sjúklinga
eftir búsetu kemur mest frá síð-
ast talda svæðinu eða 30.5% og
næst mest frá Suðufjörðum eða
23.5%. Rannsóknir urðu alls
18.132 á árinu og er það aukning
um 12.29%. Aðgerðum á skurð-
stofu fjölgaði um rúmlega átján
prósent. Nýting á sjúkrarúmum
var 85% og lækkaði kostnaður á
hverja innlögn um 7.6%. Fjöldi
sjúklinga í eins dags innlögn var
154 og er þar um að ræða
sjúklinga sem koma m.a í meiri-
háttar rannsóknir að morgni og
fara heim að kveldi. Alls urðu
innlagnir á síðasta ári 924 en
voru 797 árið 1996, aukning um
16%.
Ekki er þó búið að ganga endan-
lega frá kaupunum en það verð-
ur að öllum líkindum gert 21.
febrúar nk.
Að sögn Magnúsar Sigurðs-
sonar, eins hlutahafa Fjarða-
ferða, er kaupsamningurinn, sem
nú er búið að skrifa undir, gerður
með þeim fyrirvara að siglingar-
stofnun samþykki breytingar á
skráningu bátsins, því að bátur-
inn er í dag skráður sem
skemmtiskip, en bátur sem rek-
inn er í sambandi við Fjarðaferð-
ir verður að vera skráður sem
atvinnuskip. Ef þetta tekst ekki
verður farið af stað með að leita
að öðrum báti, að hans sögn.
Nýi báturinn er mun stærri en
gamli Mímir, eða 47 fet á móti
31 feti. Þetta þýðir að hægt verð-
ur að taka mun fleiri farþega eða
30 til 35 manns í satð 18 áður.
Helsti kosturinn við þetta er að
nú er hægt að taka „heilar rútur“
í einu, þ.e. í stað þess að tví-
skipta hópum sem komu með
rútum eins og gert hefur verið
fram að þessu er hægt að fara
með alla í einni ferð og er öll
aðstaða betri fyrir farþega.í
bátnum eru tvær aðalvélar sem
hvor um sig er jafn kraftmikil og
vélin í Mími er, en auk þess er
220 volta ljósavél. Skrokkur
bátsins var smíðaður í Bretlandi
árið 1979 og vélamar eru jafn-
gamlar. Hinsvegar er báturinn
allur nýinnréttaður.
Þar skiptir kannski mestu
máli að í nýja bátnum er plássið
miklu meira, ásamt því sem
útsýni úr bátnum er betra. Þessi
stærð býður t.d. upp á að haldnar
verði minni veislur um borð.
Einhverjar breytingar á
rekstri Fjarðaferð munu verða
nauðsynlegar með tilkomu hins
nýja báts. T.d. verða 2 í áhöfn
hans, skipstjóri og vélavörður.
Þetta þýðir að meiri þjónusta
mun verða um borð í bátnum.
Einnig er stefnt á að sigla einu
sinni í mánuði á Seyðisfjörð til
móts við Norrönu með hópa og
einnig til að taka á móti fólki.
Þannig verður búið að hring-
tengja Seyðisfjörð og Neskaup-
stað, sjóleiðina í stað jarðganga.
Á síðasta ári notfærðu um
1300 manns sér ferðir Fjarða-
ferða bæði í hefðbundnum áætl-
unarferðum og leiguferðum og
var það svipað og árið áður.
Slippfélagið
Málningarverksmiðja SIMI: 588 8000
Háþrýstislöngur og vökvatengi -SVN Vélaverkstæði ® 477 1603