Austurland - 19.02.1998, Page 1
Simsvari
878 1474
Skföaskáli
S. 476 1 465
Skíðamiðstöð Austurlands
í Oddsskarði
MOLAR
ME í 8 liða úrslitum
Lið Menntaskólans á Egils-
stöðum er kornið í 8 liða úrslit
í spurningakeppni framhalds-
skólanna en liðið lagði Fjöl-
brautaskóla Austur-Skafta-
fellssýslu með 27 stigum
gegn 8 í 20 liða úrslitum. Lið-
ið mun næstkomandi fímmtu-
dag keppa við Fjölbrauta-
skólann í Breiðholti og verð-
ur viðureignin sýnd í sjón-
varpinu næstkomandi föstu-
dagk. 21.00.
Hólmatindur og
Hólmanes á rækju
Eskifjarðartogaramir Hólma-
tindur og Hólmanes hafa ver-
ið á rækjuveiðunt fyrir vestan
frá því að sjómannaverkl'alli
var frestað og verða á meðan
loðnufrystingu stendur. Hólrn-
atindur leggur upp í Súðavík
og Hólmanes á Bolungarvík.
Óþarfa umferð á
hafnarsvæðinu
Talsverð óánægja er á meðal
starfsmanna SVN sem vinna
á hafnarsvæðinu við nýja
frystihúsið í Neskaupstað
vegna mikillar bílaumferðar
óviðkomandi. Báðu starfs-
mennirnir Austurland að
koma því á framfæri að
leggja leið sína ekki niður á
höfn nema viðkomandi eigi
þangað erindi. Mikil umferð
urn höfnina getur skapað
stórhættu, jafnt fyrir starfs-
rnenn sem almenning.
Frábær sunnudagur í
fjallinu
Nú er kominn mjög góður
skíðasnjór í skíðaparadísina í
Oddsskarði og aðstæður allar
mjög góðar. Að sögn Omars
Skarphéðinssonar, umsjónar-
manns skíðasvæðisins, var
aðsókn mjög góð s.l. sunnu-
dag og frábær stemmning í
fjallinu. Ómar sagðist nú
verða var við mikla fjölgun
yngstu iðkenda, átta ára og
yngri. Rakti hann það til þess
að nú væru böm þeirra for-
eldra, sem voru unglingar
þegar skíðamiðstöðin fyrst
var opnuð, farin að skila sér í
fjallið.
Helgi Geir Valdimarsson, skipstjóri á Blœngi, er einn hlekkurinn íþeirri keðju seni stuðlað hefur að
góðum árangri Síldarvinnslunnar hf. á undanförnum árum. Hér sést hann stjórna löndun á loðnu
í Blœng nána í vikunni en þá liófst loðnufrysting um borð í Blœngi og Barða. Ljósm. Krist. J. Krist.
Neskaupstaður
Miðfirðir
Ný barnalyfta
í Oddsskarði
Skíðamiðstöðin í Oddsskarði,
SKO, hefur ákveðið að kaupa
nýja barnalyftu og hafa kaupin
verið samþykkt af sveitarfélög-
unum þremur: Eskifirði, Nes-
kaupstað og Reyðarfirði. Nýja
lyftan er sömu gerðar og stóru
lyftumar sem eru fyrir í fjallinu
og því mun hentugri í alla staði
en gamla lyftan. Hún getur flutt
750 notendur en sú gamla gat
flutt 500. Ætlunin er að setja
lyftuna upp næsta sumar og
verður hún því tilbúin fyrir
næstu skíðavertíð. Samfara
uppsetningu nýju lyftunnar
verður sett lýsing á
barnasvæðið. Heildarkostnaður
við kaupin og uppsetningu er
um 12 milljónir króna.
Launagreiðslur SVN aldrel
verið melrl en árlð 1997
Hagnaður af rekstri Síldar-
vinnslunnar hf. á árinu 1997
nam 332 milljónum króna og er
það heldur lakari afkoma en árið
á undan en þá skilaði félagið 475
milljón króna hagnaði. Ástæður
mismunandi aíkomu milli ára
liggja fyrst og fremst í auknum
skattskuldbindingum. Hagnuður
fyrir skatta nam nú 494 millj-
Neskaupstaður
Plzzabíll rændur
Veski með allri pizzusölu sunnu-
dagsins síðastliðins var stolið úr
sendibíl Pizza 67 í Neskaupstað.
Málið er í rannsókn hjá lögregl-
unni í Neskaupstað en þegar
blaðið fór í prentun hafði ekki
tekist að hafa uppi á þjófinum
eða þjófunum.
Bíllinn stóð mannlaus í
brekkunni við starfsmannadyr
Hótels Egilsbúðar og hafði
starfsmaður gleymt að taka
veskið með sér inn. Þjófnaður-
inn átti sér stað á milli 21 og 22
á sunnudagskvöldið og eru þeir
sem einhverjar upplýsingar geta
veitt um málið beðnir að snúa
sér til lögreglunnar í Neskaup-
stað eða rekstraraðila Pizza 67.
Að sögn Guðmundar R. Gísla-
sonar, annars rekstraraðila Pizza
67, er í boði vegleg pizzuveisla
fyrir þá sem geta veitt upplýs-
ingar er leiða til lausnar málsins.
ónum króna en var 498 milljónir
metárið 1996.
Rekstrartekjur námu alls
4.122 milljónum króna og hækk-
uðu þær um 16% frá árinu á und-
an. Að meðtöldum innlögðum
eigin afla nam heildarvelta fél-
agsins um 4, 8 milljörðum króna.
Eigið fé félagsins í árslok var
2. 494 milljónir króna og jókst
eiginfjárhlutfallið á árinu úr 36%
í ársbyrjun í 46% í árslok. Arð-
semi eigin fjár á árinu var 17%.
Veltufé frá rekstri var 631
milljón króna samanborið við
tæpar fimm hundruð milljónir
árið áður.Veltufjárhlutfall í árs-
lok var 1,4.
Á aðalfundi félagsins, sem
halda á laugardaginn 14. mars
n.k., mun stjómin leggja til að
greiddur verði 7% arður til hlut-
hafa en þeir vom alls 964 í árslok.
Launagreiðslur til þeirra 360
starfsmanna sem að meðaltali
starfa hjá fyrirtækinu hafa aldrei
verið meiri og voru nú 1.020
milljónir króna. Er þetta í fyrsta
skipti sem heildarlaunagreiðslur
ná að sprengja milljarð króna
markið.
sviðu
'Hr
sPre
Saltkjöt kr. 159.- per. kg.' er,3i(fc
Gular baunir 500 gr. kr. 49.-
Heígartilboð
Rauð epli kr. 149.- pr. kg.
Rautt grape kr. 129.- per. kg.
Komflex 750 gr. kr. 298.-
Kynning á ABC mjólk jrá Mjólkurstöðinni föstudag frá kl. 14 e.h. ^jjjf 477 1301