Austurland


Austurland - 19.02.1998, Síða 2

Austurland - 19.02.1998, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 19. FEBRUAR 1998 Austurland Málgagn Alþýðubandalagsins á Austurlandi Útgcfandi: Kjördæmisráð AB á Austurlandi Ritnefnd: Einar Már Sigurðarson, Elma Guðmundsdóttir, Guðmundur Bjamason, Smári Geirsson og Steinunn L. Aðalsteinsdóttir Ritstjóri: Aðalbjöm Sigurðsson (ábm) S 4771383 og8994363 Blaðamaður: Kristján J. Kristjánsson S 477 1284 og 854 8850 Auglýsingastjóri: Erla Traustadóttir S 477 1740 Ritstjórn, afgreiðsla og auglýsingar: Hafnarbraut 4 - Pósthólf 75 - 740 Neskaupstaður S 477 1750 og 477 1571 - Fax: 477 1756 Netfang: austurla@eldhom.is Austurland er aðili að Samtökum bœjar- og héraðsfréttablaða Umbrot og setning: Austurland Prentun: Nesprent hf. Mikilvægi lista- og félagslífsins Oft ræðir eldra fólk um blómlegt félagslíf fyrri tíma. Þá er greint frá kraftmiklu félagsstarfi á ýmsum sviðum og frásagnirnar lýsa þrekvirkjum sem oft voru unnin í fámennum byggðarlögum. Fyrir ungt fólk hljóma lýsingar á fyrri tíma félagsstarfi nánast sem ýkjusögur, svo framandi eru þær og svo fjarri þeirri hugsun sem einkennir ungt fólk í dag. Aður fyrr blómstruðu félög eins og leikfélög, kvenfélög og bindindisfélög og ýmis félög voru þá kraftmeiri en þau eru nú. Nú eiga félög sem þessi erfitt uppdráttar og á mörgum þeirra er hálfgerður feigðarsvipur ef þau eru þá ekki algerlega horfin úr félagaflóru byggðarlaganna. Það sem einkenndi félagsstarfsemi fyrri tíma voru þær kröfur sem gerðar voru til félagsmanna. Ef einstaklingur ætlaði að vera virkur í félagsstarfi þurfti hann að vera tilbúinn að leggja mikið á sig. Það var og er tímafrekt að taka þátt í uppfærslu á leikriti og hin fjölþættu störf félaga á borð við kvenfélög byggðust á áhuga og fórnfýsi. Á árum áður virðist fólk hafa haft meiri tíma til þátttöku í skapandi og krefjandi félagsstarfi. Aðrir tómstundamöguleikar voru takmarkaðir og því nutu margir þess að sinna félagsstörfum af áhuga. Samfélag nútímans býður hinsvegar upp á ótrúlega fjölbreytta neyslu tómstundaefnis og hlýtur sú neysla óhjá- kvæmilega að bitna á hefðbundnu félagsstarfi. Það er ólíkt þægi- legra og fyrirhafnarminna að liggja heima í stofu og horfa á sjónvarpsdagskrá eða myndband en að taka þátt í krefjandi starf- semi á sviði leiklistar, tónlistar eða annarra listgreina. Það virð- ist líka sífellt verða algengara að yngra fólk geri kröfu um að ýmis starfsemi á hinu félagslega sviði sé innt af hendi án þess að það sjálft komi þar nálægt. Niðurstaðan er semsagt sú að áður fyrr tók fólk þátt í skapandi starfi í tómstundum sínum en það færist sífellt í aukana að fólk vilji eingöngu vera neytendur í frítím- anum. Og að langmestu leyti neyta menn erlendrar framleiðslu. Þrátt fyrir það sem hér er sagt að framan má benda á félags- starfsemi sem hefur vaxið og er nú mun umfangsmeiri en á fyrri tíð. Hér er t.d. átt við starfsemi björgunarsveita, félagsstarf aldraðra og síðast en ekki síst íþróttastarfsemina sem er víða mjög öflug og nýtur mikilla vinsælda, einkum á meðal bama og unglinga. Sýnt hefur verið fram á að þeir sem stunda íþróttir hneigist síður en aðrir til að hefja reykingar, áfengisdrykkju og notkun annarra vímuefna og því hefur iþróttastarfsemi mikið gildi í samfélagi nútímans. Færa má rök fyrir því að afar erfitt sé að bera saman félagsstarfsemi á fyrri tíð og slíka starfsemi nú á tímum. Samfélagið allt hefur tekið svo miklum stakkaskiptum að slíkur samanburður verður í reynd marklaus. Auðvitað væri gott ef unnt væri að efla hefðbundna félagsstarfsemi þannig að hún næði á ný fyrra gildi en jafnframt verður að kappkosta að tryggja fbúum landsbyggðarinnar alla þá möguleika sem nútímasamfélag veitir þegnum sínum á sviði tómstundalífs. Sveitarfélög gegna mikilvægu hlutverki varðandi báða þessa þætti. Þeim ber að styðja við bakið á heilbrigðri félagsstarfsemi og þeim stofnunum sem geta auðgað listalíf. Eins ber þeim að vinna að því að íbúarnir njóti annarra kosta eins og fjölbreyttrar fjölmiðlunar. Sveitarstjórnir á Austurlandi þurfa t.d. að stuðla að því að helstu útvarpsstöðvar náist hér í fjórðungnum og þá er ekki síður mikilvægt að íbúarnir hér eystra hafi sömu valkosti á sviði sjónvarps og íbúar á höfuðborgarsvæðinu hafa. I því sambandi þarf að knýja á um að sanngjörn verðlagning á dreifingu útvarps- og sjónvarpsefnis sé til staðar. Á þessu sviði er sannarlega verk að vinna. S.G. GETRAUNALEIKUR ÞRÓTTAR OG PIZZA 67 Heldur náðu tipparar að bæta sig um síðustu helgi, þrír hópar náðu 11 réttum, 3 Fuglar, Trölli og Nönsos og nokkrir hópar náðu 10 réttum en betur má ef duga skal. I deildarkeppninni urðu helstu úrslit þannig að Dúllurnar unnu Tippverk 10-9, West End vann Lækinn 10-8, 3 Fuglar unnu Lea O 11-10 og Trölladeig og Gufumar gerðu jafntefli 10-10. Þegar tvær vikur eru eftir eiga fjórir hópar raunhæfa möguleika á sigri, West End, Tippverkur og Dúll- umar em em með 15 stig og 3 Fuglar em með 13 stig. I Getraunaleiknum berjast Tippverkur og West End um sig- urinn, en Gufumar, Lea 0 og 3 Fuglar fylgja fast á eftir. Þegar búið er að kasta tveimur verstu vikunum frá em Tippverkur og West End með 83 stig Gufumar og Lea 0 með 80 stig , 3 Fuglar með 79 stig og Trölladeig, Dúll- umar og Trölli með 78 stig. Það er ljóst að þetta verður keppni fram á síðustu mínútu. Þeir sem keppa saman í Deildarkeppninni um næstu helgi em: West End Tippverkur Dúllumar 3 Fuglar Við Lækinn Trölli Trölladeig Mamma og ég Lea 0 Gufumar Liverunited Skósi Nesbær HB ráðgátur B2 Pele Nönsos Feðgarnir Ennco Bólstmn Bandit Olís Nestak Píta með Kebab Mórarnir Fulham Barðinn Sún búðin Um síðustu helgi fóm 5. 4. og 2. flokkur Þróttar í knattspymu til Reykjavíkur og kepptu til úrslita í Islandsmótinu innanhús. Gekk ferðin mjög vel og stóðu strák- amir sig frábærlega. Nánar verð- ur sagt frá ferðinni í næstu viku. Getraunaþjónusta Þróttar er opin föstudaga 19-21 og laug- ardaga 10-13. Framsóknarmenn - Framsóknarmenn Stofnfundur Framsóknarfélags „Miðfjarða", Norðfjarðar, Eskifjarðar og Reyðarfjarðar, verður haldinn í Félagslundi Reyðarfirði miðvikudaginn 25. febrúar kl. 20:30 Dagskrá: 1. Tillaga að lögum fyrir félagið 2. Kosning stjórnar 3. Sveitarstjórnarkosningar 4. Onnur mál Nefndin - Sköpunin O verundarsonur! Voldugum höndum gerði ég þig og styrkum fingrum sfeóp ég þig og í brjóst þér hef ég lagt fejarna Ijóss míns. Bahá 'u Uáh Baháíar Nesfeaupstað ■■ Austfirðingur vikunnar Fullt nafn? Björgvin Þór Pálsson Björgvin ÞÓr Pálsson, Fæðingardagur? 23.08’66 verslunarstjóri KHB á Reyðarfirði Fæðingarstaður? Reykjavík Heimili? Reyðarfjörður Núverandi starf? Verslunarstjóri KHB, Reyðarfirði Önnur störf? Sjúkraflutningamaður Fjölskylduhagir? Giftur Sigrúnu Huldu Sæmundsdóttur og á tvö börn Farartæki? Nissan Sunny ‘92 og Subaru ‘88 Uppáhaldsmatur? Rjúpur og nýr silungur Helsti kostur? Léttur í lund Helsti ókostur? Tapsár Uppáhalds útivistarstaður? Austurland vítt og breitt Hvert langar þig mest að fara? Afríku Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Undir sænginni hjá konunni Áhugamál? Stang- og skotveiði Stærsti fiskur sem þú hefur veitt? 12 p. lax í Elliðaá Uppáhalds veiðifiuga? Moskító að hætti Eika Sör Uppáhalds íþróttafélag? KVA Hvað ætlarðu að gera um helgina? Ekki farinn að hugsa svo langt

x

Austurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.