Austurland


Austurland - 19.02.1998, Síða 5

Austurland - 19.02.1998, Síða 5
FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1998 5 Samningur Sparisjóðsins og Knattspyrnudeildar Þróttar í síðustu viku undimtuðu forráða- menn Sparisjóðs Norðfjarðar og Knattspymudeildar Þróttar sam- starfssamning. Sparisjóður Norð- fjarðar styrkir sérstaklega bama og unglingastarf Knattspyrnu- deildar Þróttar sem er með mikl- um blóma um þessar mundir. Alls stunda um 120 ungmenni reglu- legar æfíngar yfir veturinn og ijölgar þeim vemlega þegar leikja- og íþróttanámskeið heljast á vor- in. Stjórn Sparisjóðs Norðfjarð- ar gerir sér grein fyrir gildi íþrótta- og æskulýðsstarfs sem hluta af vömum gegn vímuefnum, og að öflugt bama- og unglingastarf skilar okkur betri einstaklingum í framtíðinni. Sparisjóður Norð- fjarðar hefur ákveðið að styrkja þetta starf um kr 600.000 á þessu ári, og mun knattspymu- fólk úr Þrótti í staðinn halda nafni Sparisjóðsins á lofti eins og kostur er. Samstarf Sparisjóðsins og knattspymudeildar hefur staðið yfir í fjölmörg ár og er hægt að segja það með vissu að starf deild- arinnar væri ekki svo öflugt ef samstarfið hefði ekki komið til á sínum tíma. Stjóm Knattspymu- deildar Þróttar vill nota tæki- færið og þakka Sparisjóði Norð- fjarðar fyrir samstarfið og vonar að það haldist sem lengst börn- um okkar til hagsbóta. Þátttakendur í íþrótta og leikjaskóla Þróttar og Sparisjóðs Norðfjarðar sumarið 1997 en á annað hundrað krakkar tóku þátt í skólanum sem mœltist vel fyrir hjá krökkum, jafnt sem foreldrum. Ljósm. as Ferðanefnd launþegasamtakanna hefur samið við Flugleiðir um hagstæð fargjöld til útlanda í sumar. Einnig var gerður samningur við Samvinnuferðir - Landsýn um sölu farmiðanna og aðra þjónustu tengda ferðunum. Alls verða seld 5.000 sæti. Barnaafsláttur miðast við börn á aldrinum 2-11 ára. Börn yngri en 2ja ára greiða 10% af fullu gjaldi. Tímalengd ferða er 7 - 30 dagar. Tímabilið sem um ræðir er frá 8. maí - I 5. september 1 998. Miðað er við flug á mánudegi til föstudags. Sölu stéttarfélagsfargjaldanna til útlanda lýkur 15. mars 1998. Sala farmiða og allar upplýsingar um ferðirnar fara fram hjá Samvinnuferðum- Landsýn og umboðsmönnum þeirra um land allt. Verkalýðsfélag Norðfírðinga er aðili að samningnum og gildir því þetta verð hér fyrir neðan fyrir félagsmenn Áfangastaður fullorðnir börn Kaupmannahöfn 25.340 17.270 Osló 26.030 17.960 Glasgow 22.920 15.650 Stokkhólmur 27.840 18.770 London 27.020 18.250 Lúxemborg 26.850 17.880 Amsterdam 27.370 18.500 París 28.480 19.210 Baitimore 46.090 31.720 Hamborg 29.390 20.520 Boston 39.850 26.680 Halifax 40.520 27.350 Einnig er í gildi sérkjör á innanlandsflugi, gistingu, bílaleigubílum og rútuferðum. Kynnið ykkur sérkjörin ! Upplýsingar um einstök tilboð, gildistíma þeirra og aðra skilmála færðu á skrifstofu Verkalýðsfélags Norðfirðinga í Neskaupstað í s. 477-1230 Verkalýðsfélag Norðfirðinga

x

Austurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.