Austurland - 19.02.1998, Síða 6
6
FIMMTUDAGUR 19. FEBRUAR 1998
Neskaupstaður:
Fjárhagsáætlun 1998 lögð fram í bæjarstjórn
Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs Nes-
kaupstaðar og undirfyrirtækja
var lögð fram í bæjarstjórn til
fyrri umræðu 10. febrúar sl.
Þrátt fyrir væntanlega samein-
ingu sveitarfélaganna þriggja
sem tekur gildi 7. júní þá gerir
hver sveitarstjóm fyrir sig fjár-
hagsáætlun fyrir allt árið 1998.
Skatttekjur bæjarsjóðs nema
303,1 milljónum króna og
rekstrargjöld málaflokka að
frádregnum tekjum nema 230,6
milljónum eða 76% af skatttekj-
um. Mestar tekjur fást í bæjar-
kassann af útsvöram eða 240,4
milljónir og fasteignaskattur nem-
ur alls 34,2 milljónum króna.
Afborganir langtímaskulda era
26,5 milljónir króna og greiðslu-
byrði lána nettó nemur 33,2
milljónum króna...
Gert er ráð fyrir nýjum lán-
tökum að upphæð 7,2 milljónum
króna. Samkvæmt rekstrar- og
framkvæmdayfirliti þá fer af
heildarútgjöldum nettó langmest
til fræðslumála eða 51%, til fél-
agsþjónustu 14,8%, til æskulýðs
og íþróttamála 11 % og í yfirstjórn
kaupstaðarins fara 8,6% svo
stærstu liðimir séu nefndir. Sé
aðeins litið á reksturinn þá fer
35,9% til fræðslumála,14% til
félagsþjónustu,ll% til æskulýðs
og íþróttamála og 10 % til yfir-
stjómar.
Helstu framkvæmdir
Lang-stærsta framkvæmd
ársins er 1. áfangi viðbyggingar
við Nesskóla. í þeim áfanga er
gert ráð fyrir að byggja yfir
norður álmu skólans auk fulln-
aðarhönnunar allrar viðbygging-
ar við skólann. Þar verða til 3
kennslustofur auk snyrtinga og
kennaraaðstaða verður stækkuð
og endurskipulögð. Heildarkostn-
aður er áætlaður 60 milljónir
króna og er gert ráð fyrir sölu
eigna upp á 48 milljónir til að
mæta þeim kostnaði. Gert er ráð
fyrir að þessar framkvæmdir
verði hafnar strax í maí og þeim
lokið fyrir byrjun skólahalds í
haust. Lokið verður við endur-
byggingu leikskólans Sólvalla
og er 9,3 milljónum króna varið
til þess verkefnis. Sú fram-
kvæmd verður unnin í sumarfríi
leikskólans og að henni lokinni
er endursmíði hússins lokið á
þremur áram og heildarkostnað-
ur rúmar 30 milljónir króna. 7,0
milljónir króna fara til byggingar
Verknámshúss Verkmenntaskól-
ans og er það lokaframlag bæjar-
sjóðs til þeirrar framkvæmdar,
sem tekin var í notkun á síðasta
ári og er hlutur Neskaupstaðar í
Verknámshúsinu um 20 milljón-
ir króna. Þá er varið 4,0 milljón-
um í lóðaframkvæmdir við
íþróttahúsið og til að ljúka ýms-
um smærri verkum í húsinu.
Lokið verður við slökkvistöð
ofl. I gatnagerð ber hæst að lagt
verður bundið slitlag á Hafnar-
naust og Borgarnaust. Yfirlögn
verður lögð á efsta og neðsta
hluta Nesgötu. Gangstétt við
Strandgötu verður malbikuð.
Lagður kantsteinn og gengið frá
gangstéttum við Hlíðargötu og
ytri hluta Melagötu. í nýbygg-
ingu holræsa er gert ráð fyrir að
ljúka við útrás frá Bakkahverfi
en sú framkvæmd hefur verið á
áætlun sl. tvö ár án þess að tekist
hafi að ljúka henni. Helstu fram-
kvæmdir Hafnarsjóðs era þær að
... að þeir sem telja sig komna til vits og ára lesi hið fyrsta
bókina „Hverjum klukkan glymur" eftir Emest Hemmingway.
Bók þessi er óumdeilanlega eitt af snilldarverkum
bókmenntasögunnar á 20. öldinni.
... að fólk horfi á spumingakeppni framhaldsskólanna n.k.
föstudag í sjónvarpinu en þá keppir hið sigursæla lið ME.
Ennfremur að sjónvarpsáhorfendur flykkist framan við tækin um
helgina þegar Kristinn OKKAR Bjömsson keppir í svigi í Japan.
... að Austfirðingar fjölmenni á blakleikina sem fram fara í
Neskaupstað á föstudag og laugardag og styðji að sjálfsögðu lið
Þróttar til sigurs.
... að allir þeir er hafa aðgang að netinu skoði hinn nýja vef
Morgunblaðsins en aðgangur að honum er ókeypis. Veffangið
er: www.mbl.is
... að fólk kynni sér og taki þátt í menningardagskrá sem fram
fer í safnastofnuninni á Egilsstöðum um helgina.
... að austfirskir karlmenn (rjóminn af íslenskum
karlmönnum) sýni elskunni sinni hvers þeir eru megnugir á
sunnudaginn með því að færa henni blóm á konudaginn og taka
að sér að baka fyrir bolludaginn sem er á mánudaginn.
áætlað er að verja 14,8 milljón-
um til malbikunar gámavallar og
frágangs á hafnarsvæðinu. Raf-
magn verður tengt á kantinn
sunnan loðnuverksmiðju,lýsing
sett á enda hafnargarðsins sunn-
an frystigeymslu og gengið verð-
ur frá næsta umhverfi Norðfjarð-
arvita og vitinn merktur.
Nánar verður sagt frá fjár-
hagsáætlunum bæjarsjóðs og
undirfyrirtækja við lokaaf-
greiðslu þeirra.
Þorrablót eldri borgara í Neskaupstað
Síðastliðinn laugardag blótuðu
eldri borgarar í Neskaupstað
þorrann í Hótel Egilsbúð. Eins
og myndimar bera með sér var
glatt á hjalla í Egilsbúð, menn
tóku lagið og ekki hægt að sjá
annað en allir hafi skemmt sér
ljómandi vel.
Til hœgri: Þau Kristín Frið-
björnsdóttir, Sigurbjörg Sigur-
jónsdóttir, Anna Sigurjóns-
dóttir, Unnur Bjarnadóttir og
Asgeir Lárusson voru nieðal
þeirra sem tóku þátt í gleð-
skapnum. Ljósm. Eg.
Fa11c5<m* irmiliurðir
á 5ÓÖH vcr&i
ísknsk frAmleiöslA
Hagur ehf.
Kirkjubæjarklaustri
sími 487-4650 og 852-9685
Einbýlishús til sölu
(----------------------
Til sölu húseignin að
Breiðabliki 1 Neskaupstað
Einbýlishús á einni hæð,
4 svefnherbergi. Góð lóð.
Uppl. ísíma 477 1490