Austurland


Austurland - 26.02.1998, Blaðsíða 2

Austurland - 26.02.1998, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1998 Austurland Málgagn Alþýðubandalagsins á Austurlandi Utgefandi: Kjördæmisráð AB á Austurlandi Ritnefnd: Einar Már Sigurðarson, Elma Guðmundsdóttir, Guðmundur Bjamason, Smári Geirsson og Steinunn L. Aðalsteinsdóttir Ritstjóri: Aðalbjöm Sigurðsson (ábm) ® 4771383og8994363 Blaðamaður: Kristján J. Kristjánsson ® 477 1284 og 854 8850 Auglýsingastjóri: Erla Traustadóttir S 477 1740 Ritstjórn, afgreiðsla og auglýsingar: Hafnarbraut 4 - Pósthólf 75 - 740 Neskaupstaður ® 477 1750 og 477 1571 - Fax: 477 1756 Netfang: austurla@eldhom.is Austurland er aðili að Samtökum bœjar- og héraðsfréttablaða Umbrot og setning: Austurland Prentun: Nesprent hf. Sameining til framtíðar Þegar kosið verður til nýrra sveitarstjórna í vor verður mikil breyting á þeim vettvangi. Sveitarfélögunum hefur fækkað til mikilla muna frá því síðast var kosið. Mikil sameiningaralda hefur gengið yfir Island síðustu mánuðina. Sveitarfélögum á íslandi hefur fækkað um tæplega 50 frá síðustu kosningum. Aukin verkefni hafa verið flutt út til sveitarfélaga. Mörg smá og stór sveitarfélög hafa séð að það er erfitt fyrir þau að veita þá þjónustu sem fylgir auknum verkefnum, einnig vilja íbúarnir fá sömu þjónustu og veitt er í stærstu sveitarfélögunum. Sveitarfél- ögin hafa því valið þann kost í æ ríkara mæli að sameinast og verða þar með öflugri einingar. Við hér á Austfjörðum höfum ekki farið varhluta af þessari þróun. Mikil breyting hlýtur t.d að verða á skipulagi Sambands austfirskra sveitarfélaga í haust. íbúar Neskaupstaðar, Eskifjarðar og Reyðartjarðar völdu í haust að taka þátt í þessari þróun og munu ganga til kosninga í nýju sameinuðu sveitarfélagi í vor. Við slíka sameiningu skiptir miklu máli að undirbúningur verði góður. Þess vegna hafa nú- verandi sveitarstjómir m.a. kosið sér nefnd sem fer yfir og ber saman hin ýmsu málefni sveitarfélaganna. Þegar ný sveitarstjórn tekur við mun vera búið að kortleggja t.d. hvaða hluti er nauðsynlegt að samræma svo allir íbúamir sitji við sama borð á sem flestum sviðum. Ýmsir starfshópar hafa verið skipaðir m.a til að fara yfir tölvumál, símamál o.fl. Hópur hefur verið valinn til að velja nöfn fyrir hið nýja sveitarfélag sem íbúamir kjósa svo um samhliða kosningunum í vor. Að velja nafn á sveitarfélagið verður að takast vel og skiptir máli að sem flestir verði sáttir við það. Ýmsar hugmyndir hafa verið uppi t.d Austur- með mismunandi endingum eins og -borg, -byggð og jafnvel -rrki. Hér verður ekki tekin afstaða til þeirra en vonandi kemur fram einhver orðhagur nafnasmiður með nafn sem hæfir hinu nýja sveitarfélagi. Það er ekki bara stjórnkerfið sem tekur breytingum. Þegar fram líða stundir mun munstrið einnig breytast hjá hinum ýmsu félagasamtökum. I hinu nýja sveitarfélagi em t.d þrjú verkalýðs- félög, tvö starfsmannafélög og nokkrir stjórnmálaflokkanna em með félög á hverjum stað o.s.frv. Til að byrja með munu þessi félög eflaust hafa með sér samvinnu í einhverri mynd en með tíð og tíma munu þau líklega sameinast, það er þróunin t.d í stóm verkalýðsfélögunum í Reykjavrk. Stjórnmálafélögin stofna lík- lega flest bæjarmálafélög eða jafnvel ný félög. Alþýðubanda- lagsfélögin hafa ákveðið að stofna bæjarmálafélag. Viðræður eru í gangi við Alþýðuflokkinn og eru talsverðar líkur á að um sameiginlegt framboð verði að ræða og ef einhver óháður hópur vill vera með verður hann boðinn velkominn ef hann kennir sig við félagshyggju. Sameining A- flokkanna virðist ætla að verða niðurstaðan í flestum sveitarfélögum um allt land og er það vonandi byrjunin á því að allt félagshyggjufólk sameinist. í fyrstu kosningunum er margs að gæta. Það getur orðið vandi að koma saman listum svo öllum líki. Það eru miklu færri sæti um að ræða nú en áður. Það verður að gæta þar ýmissa hagsmuna s.s jafnræði bæjarfélaga, flokka, kynja o.fl. En fyrst og fremst verðum við að hugsa sem ein heild, hvað er hinu nýja sveitarfélagi fyrir bestu. Hvernig tryggjum við bjarta framtíð hins nýja sveitarfélags inn í nýja öld. Við gerum það best með því að horfa fram á veginn. Hagsmunir heildarinnar verða að vera í fyrirrúmi en ekki hagsmunir einstaklinga. Getraunaleikur Þróttar og Pizza 67 Þrátt fyrir hagstæð úrslit um síðustu helgi náði enginn hópur 13 réttum, en þrír hópar náðu 12 réttum og sex hópar náðu 11 réttum. Þeir sem náðu 12 réttum voru West End, Pele og stelp- urnar í Hundsvit sem fengu tvær tólfur. I Getraunaleik Þróttar og PIZZA 67 eru Tippverkur og West End jafnir í fyrsta sæti með 111 stig, síðan koma Gufumar með 107 stig, LEA 0 og Dúll- umar með 104 stig, 3 Fuglar Um síðustu helgi fór 18 manna hópur í þriðja flokki KVA til Reykjavíkur til að taka þátt í úrslitakeppninni. Lentu strák- amir í mjög sterkum riðli og töpuðu þremur leikjum en unnu einn. Þeir léku einnig tvo æfingaleiki utanhúss, á gervi- grasinu í Laugardalnum, og gekk þá mun betur. Unnu þeir HK 7 - 2 en töpuðu fyrir KR 3 - 5. í hálfleik á móti KR var staðan 3 - 0 fyrir KVA en í seinni hálf- leik fengu allir að spreyta sig og þá náðu KR-ingar að komast yfir. Aðstöðumunur austfirskra knattspymuliða, og þeirra er æfa á Reykjavíkursvæðinu, kom berlega í ljós í keppninni innan- með 103 stig, Trölli 102 stig og Trölladeig með 101 stig. Nú er aðeins ein vika eftir í þessari keppni og berjast West End og Tippverkur um sigurinn. Þegar búið er að kasta tveimur verstu vikunum frá þá er West End með 95 stig, Tippverkur með 94 stig Gufumar, LEA 0 og 3 Fuglar með 90 stig, Dúllumar og Trölli með 89 stig. í Deildarkeppninni vann West End, Tippverk í uppgjöri efstu liðanna. Dúllurnar og 3 Fuglar gerðu jafntefli Trölli vann Við Lækinn, Mamma og húss en liðið hafði aðeins komist einu sinni í stórt íþróttahús til að undirbúa sig fyrir úrslitakeppn- ina. Þriðji flokkur KVA er hins- vegar firnasterkur og gaman verður að fylgjast með drengjun- um í framtíðinni. ég vann Trölladeig og LEA 0 og Gufumar gerðu jafntefli. Staða efstu liða fyrir síðustu umferðina. 1 West End 17 stig 2 Tippverkur 16 stig 3 Dúllurnar 15 stig 4-6 3 Fuglar 14 stig 4-6 Trölli 14 stig 4-6 Mamma og ég 14 stig 7-9 LEA 0 13 stig Gufurnar 13 stig Liverunited 13 stig Þeir sem keppa saman í nœstu umferð eru: West End Dúllumar Tipverkur 3 Fuglar Trölli LEA 0 Gufumar Mamma og ég Livemnited Við Lækinn Trölladeig Hb ráðgátur Pele Nönsos Bólstmn Bandit Skósi Nesbær B2 Feðgamir Ennco Nestak Móramir Olís Fulham Píta með Kebab Barðinn Sún búðin Getraunaþjónusta Þróttar er opin föstudaga kl 19-21 og Laugardaga kl 10-13 Munið getraunanúmer Þróttar er 740. Menntun Líta ber á manninn sem námu auðuga af ómetanlegum gersemum. Aðeins með menntun opinberast dýrgripirnir til gagns fyrir mannfeynið. Bahá'u lláh Baháíar Nesfeaupstað H Mjög efnilegur hópur KVA í urslitum í þriðja flokki Austfirðingur vikunnar Uppáhaldsmatur? Grænmetispasta Helsti kostur? Það verða aðrir að dæma um Helsti ókostur? Enginn sérstakur Uppáhalds útivistarstaður? Enginn einn ákveðinn en ég hef mjög gaman af gönguferðum um íslenska náttúru Hvert langar þig mest að fara? Skoða Vestfirði Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Hallormsstaður Áhugamál? Blak, hugleiðsla og skíði Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Spila blak Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Ekkert, allt gaman Uppáhalds íþróttafélag? Austri Uppáhalds blakari? Grímur Magnússon, Neskaupstað Hvað ætlarðu að gera um helgina? Fara á skíði og blakæfingu er að þessu sinni Júlíanna Fuiit nafn? Júlíanna Haraidsdóttir Haraldsdóttir, blakari á Eskifirði Fæðingardagur? 03.03.’61 Fæðingarstaður? Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað Heimili? Á Eskifirði Núverandi starf? Fulltrúi hjá Eimskip Önnur störf? Verslun með prjónagarn Fjölskylduhagir? Gift Einari Má Kristinssyni og á 3 böm Farartæki? Nissan Patrol SLA.

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.