Austurland - 26.02.1998, Síða 6
6
FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 1998
*
Abending til ökumanna
Af gefnu tilefni hefur Austurland verið beðið að koma þeiiTÍ
ábendingu til ökumanna að gæta fyllstu varúðar þegar ekið er
framhjá umferð nðandi hestamanna. Ekki síst ber að fara
varlega þegar ekið er fram úr ríðandi hestamönnum því þá á
hesturinn ekki gott með að fylgjast með umferðinni og lætur
því enn frekar truflast af hávaða frá ökutækjum.
Ennfremur er rétt að benda, jafnt hestamönnum sem og
þeim íjölmörgu er nota vegi utan þéttbýlis til útivistar, að
frumskilyrði til slíkrar iðkunar er notkun endurskinsmerkja.
Legudeild fyrir heilabilað fólk á Seyðisfirði
Fyrir rúmum tveimur árum var
það kannað á vegum Fjórðungs-
sjúkrahússins í Neskaupstað,
hvort á Austurlandi væri þörf
sérdeildar fyrir heilabilaða sjúkl-
inga. Þörfin reyndist vera fyrir
hendi, en húsnæði sem hentaði
slíkri deild var þá ekki fyrir
hendi í Fjórðungssjúkrahúsinu.
Þetta mál komst svo aftur á
Loðnufrysting í Blængi
hreyfingu fyrir rúmu ári enda er
það stefna Öldrunarráðs Islands
að slík hjúkrunardeild sé í hverj-
um landsfjórðungi. Mjög hent-
ugt húsnæði stóð til boða í Heil-
brigðisstofnuninni á Seyðisfirði
sem nú skal nota í stað sjúkra-
húss.
Undirbúningur hófst því að
stofnun deildarinnar hér og
hefur Hannes Sigmarsson, lækn-
ir verið forystumaður í því starfi.
Læknirinn segir að árleg þörf sé
nú rúm fyrir 2-6 sjúklinga.
Þessi sjúkradeild hér sé raun-
verulega þáttur í starfssamningi
við Heilbrigðisráðuneytið og
styrki því stöðu stofnunarinnar
og var þess mikil þörf eins og
málum er háttað nú.
Leiðbeiningaraðstoð hefur
Sjúkrahús Reykjavíkur veitt og
Hannes læknir hefur átt mjög
gott samstarf við Jón Snædal,
öldrunarlækni, og Pálma Jóns-
son, yfirlækni. Aðstoð hjúkrun-
arfræðinga þaðan, stendur til
boða sé eftir henni leitað.
Þessi deild, sem ber það nafn,
sem er skráð hér að ofan, hefur
þegar tekið til starfa. Hún hefur
verið kynnt læknum og öðru
heilbrigðisstarfsfólki á Austur-
landi.
Öllu þessu fólki er þökkuð
hjálp og stuðningur við undir-
búningsstarfið sem ávallt var
góðfúslega veitt. Aðstoð og
samstarf stjómenda hér heima,
hjúkrunarforstjóra og fram-
kvæmdarstjóra, þeim Þóru Ing-
valdsdóttur og Lárusi Gunn-
laugssyni, þakkar Hannes læknir
að lokum. J.J.
Frá Félagsmálaráði
Neskaupstaðar
Félagsmálaráð Neskaupstaðar
auglýsir eftirfarandi íbúðir til sölu:
Þrjár 4. herbergja íbúðir stærð 95 ferm. í
Starmýri 17-19
2. herbergja íbúð stærð 55 ferm. í
Starmýri 17-19
5. herbergja íbúð stærð 112 ferm. í
Nesbakka 5
5. herbergja íbúð stærð 112 ferm. í
Nesbakka 11
2. herbergja íbúð stærð 68 ferm. í
Nesbakka 19-21
5. herbergja íbúð stærð 122 ferm. að
Hólsgötu 8
Umsækjendur eru háðir skilyrðum laga
Húsnæðisstofnunar um eigna og tekjumörk.
Umsóknum skal skilað á bæjarskrifstofuna fyrir
11. mars 1 998. Umsóknareyðublöð svo og
nánari upplýsingar fást hjá starfsmanni
félagsíbúðakerfisins á bæjarskrifstofunni
Egilsbraut 1
Jafnframt er /aus Búseturéttur í 4. herbergja
íbúð að Nesbakka 15
Mikill handagangur var í öskjunum þegar blaðamenn
Austurlands voru á ferð um Norðfjarðarliöfn í vikunni.
Ljósm. as
Hörður Erlendsson,
yfirvélstjóri á Blœngi,
fylgist vel með vélun-
um í skipinu á meðan
piltarnir hamast við
loðnufrystinguna. Þe§ar é8 heyri nefnt> cða hu8sa
Ljósm as um’ hið s,ic' ^Svæðisútvarp
Austurlands" verður mér líkt
innanbrjósts og Viljálmi Júníus-
syni í Sparisjóðsauglýsingunum
þegar hann þarf að greiða
gluggapóstinn sinn; Ohhhhhhh!
Hrrrrrrrrr! Eg hef því miður eng-
an brosandi og vel málaðan Dav-
íð Þór Jónsson til að létta okinu
af mér og því verð ég að gera
það á þessum vettvangi.
Ef hér er um að ræða svæðis-
útvarp fyrir Austurland er ljóst,
miðað við umfjöllun og efnistök,
að á Egilsstöðum og í nágrenni
búa um 70% Austfirðinga. Reynd-
ar furðulegt að æðsti yfirmaður
Egilsstaða skuli enn bera starfs-
heitið bæjarstjóri en ekki borgar-
stjóri.
Síðastliðið sumar gerði ég
lauslega og óformlega könnun á
því hvaðan af Austurlandi það
efni kæmi sem sent er út og í ljós
kom að á þeim tíma var ríflega
70% af Héraði. Reyndar allt upp
í 100% í sumum útsendingum.
Þetta finnst mér vera móðgun
við íbúa annarra svæða og lýsir
engu öðru en skorti á metnaði og
ófaglegum vinnubrögðum starfs-
manna þessa ríkisrekna fyrir-
tækis. Það þarf enginn að segja
mér að ekkert sé að gerast ann-
arsstaðar en á Héraði.
En það er ekki nóg með að
efnið sé að megninu úr efra,
heldur eru efnistökin á köflum
svo leiðinleg og ófrumleg að það
hálfa væri nóg; endalaus upp-
Gagnrýni/Svarið er nýr þáttur sem nú hefur göngu sína í blaðinu en
þar gefst iölki kostur á að koma á framfæri ábendingum eða
gagnrýni án þess að nafn þess sé birt. Austurland tekur svo að sér að
koma gagnrýninni á framfæri við þá sem henni er beint gegn og
býður þeim að koma með andmæli. Að sjálfsögðu verður að gæta
fyllsta velsæmis í allri gagnrýni og hafa hana málefnalega. Því á
neikvæður áróður og persónulegt skítkast ekkert erindi hér. Er það
von okkar að Austfirðingar taki þessum nýja þætti vel og komi á
framfæri við ritsjóm blaðsins þeirri gagnrýni sem það vill fá
skýringar á. Fyllsta trúnaðar verður gætt varðandi nafnleynd.
Nú kann einhver að spyrja
hvað ég sé að hlusta á þessar út-
sendingar fyrst þær leggjast
svona þungt í mig. Því er til að
svara að ég hef áhuga á því sem
er að gerast á Austurlandi og ég
er dyggur stuðningsmaður svæð-
isútvarps. Eg vil hinsvegar fá
almennilega, faglega og vandaða
dagskrá, sem unnin er af áhuga
og metnaði en ekki með hang-
andi haus eins og, því miður, nú
virðist raunin.
talning á sporðafjölda er næst úr
sjó og stanslaus umfjöllun um
„stórviðburði“ á Héraði.
Það skal þó fúslega játast að
endmm og sinnum er eins og
starfsmenn „svæðisútvarpsins“
hristi af sér slenið og sendi frá
sér ágætlega frambærilegt efni.
Það er bara allt of sjaldan.
Ég hef vanist því viðhorfi að
fólk ætti að standa við orð sín og
gjörðir og kvitta fyrir með eigin
nafni. Eg hef sömuleiðis vanist
því viðhorfi að nafnlaus bréf
væru ekki svara verð. Ég er
undrandi á því að ritstjóm Aust-
urlands skuli hleypa af stokk-
unum dálki af þessu tagi, nafn-
lausri gagnrýni. Hinum nafn-
lausa bréfritara bendi ég á að
líkur á umfjöllun um einstaka
atburði hér í fjórðungi, hvort
sem er í blöðum, útvarpi eða
sjónvarpi, margfaldast ef starfs-
menn viðkomandi fjölmiðils
vita af þeim. Á því er of oft mis-
brestur. Það era margar leiðir til
að koma upplýsingum til frétta-
og dagskrárgerðarfólks svæðis-
útvarpsins á Ausmríandi. Síma-
númerið er 471 2300. Myndsíma-
númer er 471 1996. Farsíma-
númer er 852 5705. Netföng eru:
ruvaust@eldhom.is,
ingarosa@eldhom.is,
hallib@eldhorn.is.
Þá em starfandi átta fréttarit-
arar í fjórðungnum. Upplýsingar
um þá er að finna á heimasíðu
svæðisútvarpsins:
http://www.eldhom.is/mvaust
Því miður er enginn slikur í
Neskaupstað og leit síðustu
mánaða hefur verið árangurs-
laus. Þar sem hinn nafnlausi
bréfritari virðist ágætlega ritfær
og vera sammála starfsmönnum
svæðisútvarpsins um að vilja
dagskrá þess sem mesta og besta
þætti mér vænt um ef hann/hún
íhugaði að taka starfið að sér og
leggja þannig sitt af mörkum til
að ná þeim árangri, sem lýst er
eftir í þessu nafnlausa bréfi. Að
sjálfsögðu þyrfti viðkomandi að
flytja sína pistla undir fullu nafni
eins og aðrir starfsmenn stofn-
unarinnar.
Virðingarfyllst,
Inga Rósa Þórðardóttir,
deildarstjóri Ríkisútvarpsins
á Austurlandi.