Austurland


Austurland - 26.02.1998, Page 8

Austurland - 26.02.1998, Page 8
Tilboð: Fæðubó torefni ,ö a\\a daga frá kl.lo.oo.jo oV ■ °o NESBAKKI @477 1609 og 897 1109 Elsta bæjar- og héraðsfréttablaö landsins, stofnað 1951 „Met loðnuvertíð“ Segir Jón Gunnar Sigurjónsson, yfirverkstjóri SVN Nú er loðnufrysting í fullum gangi á Austfjörðum og spáir Jón Gunnar Sigurjónsson, yfir- verkstjóri í frystihúsi Síldar- vinnslunnar í Neskaupstað, að nýtt met verði sett í frystingunni. „Hún er bara aðeins seinna á ferðinni en oft áður en hún mun skila sér og lofar vertíðin góðu“ sagði hann í samtali við Austur- land á þriðjudaginn. Það var Súlan sem kom með fyrsta alvöru skammtinn sem hægt var að frysta fyrir Japans- markað á mánudaginn s.l. en fram að því hafði mest verið fryst fyrir Rússlandsmarkað. Sagðist Jón Gunnar reikna með loðnufrystingu í hálfan mánuð í viðbót eða til 10 mars. Nú er unnið á vöktum allan sólarhringinn við loðnufrystingu hjá Síldarvinnslunni en alls er hægt að frysta um 390 tonn hjá SVN og er það langmesta magn sem eitt fyrirtæki getur fryst á sólarhring að sögn Jóns Gunnars. A myndinni hér til hliðar sést Beitir taka nót s.l. laugardag en liann lenti í því að rífa nótina þegar hann fékk risakast. A myndinni fyrir neðan sést Súlan koma fullhlaðin til löndunar en Beitir heldur tómur á miðin eftir löndun. Ljósm. as og Krist. J. Krist. Fullkominn vélahermir vígður S.l. laugardag var vígður nýr vélahermir í Verkmenntaskóla Austurlands í Neskaupstað en slíkur hermir hefur ekki verið fyrir hendi í skólanum. Hermir- inn mun fyrst og fremst nýtast þeim nemendum sem stunda munu vélstjórnamám en á næstu önn er ráðgert að hefja slíka kennslu við skólann. Þá mun hermirinn einnig nýtast þeim nemendum sem eru í grunndeild málmiðna. Hermirinn er mjög fullkom- inn og nákvæmur og líkir hann eftir allri starfssemi vélar sem er 1500 kw, eða vél eins og er í minni togurum og mörgum fiskiskipum. Hann er tengdur við tölvu og sýnir hún hvemig öll kerfi vélarinnar virka og hvert ástand vélarinnar er hverju sinni. Hægt er að setja inn „bilanir" og með því kenna nemendum hvernig bregðast skal við á réttan hátt. Jóhann Zoega, kennari við Verkmennta- skólann, hefur íslenskað texta- hluta forritsins sem fylgir herm- inum og gert kennsluna þannig mun aðgengilegri fyrir nemendur. Vélahermirinn var keyptur frá Englandi og kostaði hann á þriðju milljón króna. Samskonar hermir var keyptur í þrjá aðra skóla á landinu og þannig náðist 25% sparnaður. Sífellt er verið að bæta aðstöðuna við verkkennslu í skólanum og í því sambandi er skólinn nú að leita að 2 - 300 kw fjórgengisvél. Sagði Jóhann að allar ábendingar um slíka vél væm vel þegnar en vél af þeirri stærð eru algengar í 60 til 70 tonna bátum. Skólinn á fyrir eina tvígengisvél og eina eldgamla fjórgengisvél. Rúmur mánuður frá opnun Hótels Héraðs Fáar gistinætur en góð veitingasala Jóhann Zoega kennari og Guðmundur Arnason, nemandi. Nú hefur hið nýja hótel á Egils- stöðum, Hótel Hérað, verið rekið í rúmlega einn mánuð og sagðist Guðmundur Kristinsson. hótelstjóri, vera mjög ánægður með móttökurnar sem hótelið hefði fengið. Hann sagði að mik- il aðsókn hafi verið á hlaðborð sem verið hefur á boðstólunum, sem og önnur tilboð í veitingum. Aftur á móti hefur lítil nýting verið á þeim 36 herbergjum sem era á hótelinu enda dauft yfir ferðaiðnaði á Austurlandi á þessum árstíma. Auglýsinga- átakið „Gjugg í bæ“, sem Flug- leiðir standa fyrir og beint er til Egilsstaða að þessu sinni, hefur nánast engu skilað að sögn Guðmundar. Ennfremur sagði hann að þau gistitilboð, sem sett hafa verið upp fyrir fjarðarbúa, hafi litlu skilað en þeir aftur nýtt sér vel hlaðborðið og veitingatil- boðin. Gistibókanir fyrir sumar- ið lofa hinsvegar góðu. Slippfélagið Málningarverksmiðja SÍMI: 588 8000 Háþrýstislöngur og vökvatengi -SVN Vélaverkstæði M 477 1603

x

Austurland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.