Austurland - 05.03.1998, Síða 4
4
FIMMTUDAGUR 5. MARS 1998
follesar mniliwröír
á §ó5w veröi
íslemk frAmleiÖslA
Hagur ehf.
Kirkjubæjarklaustri
sími 487-4650 og 852-9685
Fegurðarsamkeppni Austurlands
Fegurðarsamkeppni Austurlands verður haldin í Valaskjálf á Egilsstöðum laugardaginn 21. mars nk.
Til að hafa veg og vanda að keppninni, sem að vanda verður hin veglegasta, hefur verið ráðin Asta
Matthíasdóttir frá Egilsstöðum . ------------------------------------------------------------
Sjö stúlkur munu keppa um
titilinn en þær eru:
Iris Pálmudóttir,
22 ára frá Homafirði
Auður Jónsdóttir,
18 ára frá Hornafirði
Sigrún Bessý Guðmundsdóttir,
18 ára frá Hornafirði
María Fanney Leifsdóttir,
17 ára frá Neskaupstað
María Jónsdóttir,
17 ára frá Neskaupstað
Jóna Bryndís Eysteinsdóttir,
18 ára frá Egilsstöðum.
Karólína Einarsdóttir,
17 ára frá Neskaupstað. Ásta Matthíasdóttir hefur verið ráðin til að sjá um keppnina
Austurland mun að venju birta „Ungfrú Austurland“ í ár, en keppnin verður haldin í
myndir af keppendum þegar nær Valaskjálf á Egilsstöðum laugardaginn 21. mars. Ljósm. as
líður keppni.
Vísir að aukinni samvinnu vegna sameiningar?
Aðalfundur
Samvinnufélags útgerðarmanna í
Neskaupstað verður haldinn
laugardaginn 14. mars 1998
kl. 13.00 í Egilsbúð
Neskaupstað.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál
Neskaupstað 3. mars 1998
Stjórnin
Glíma á Reyöarfiröi
Dagana 21. og 22. febrúar s.l. kepptu 12 drengir úr gmnnskólanum
á Reyðarfirði á tveimur glímumótum er haldin vora á landsvísu.
Annarsvegar „Grunnskólamótið", sem fram fór á laugardeginum,
og hinsvegar Meistaramót Islands. Er skemmst frá því að segja að
reyðfirsku strákamir stóðu sig mjög vel og komu heim með þrenn
verðlaun: Guðmundur Arni Amason, 7. bekk, varð grunnskóla-
meistari í sínum flokki en hann vann allar sínar glímur. Einnig náði
Guðmundur Þór
Valsson mjög
góðum árangri
en hann varð í 2
sæti á Grunn-
skólamótinu og
einnig á meist-
aramótinu. Aðrir
keppendur stóðu
sig einnig mjög
vel þó þeir hafi
ekki lent í
verðlaunasæti.
Glímumennirnir frá Reyðarfirði fyrir framan
K-in þrjú.
Sparisjóður Norðfjarðar gerir
samning við Reyðarfjarðarhrepp
Sveinn Ámason, sparisjóðsstjóri
Sparisjóðs Norðfjarðar, og Isak
Ólafsson, sveitarstjóri á Reyðar-
firði, skrifuðu í síðustu viku
undir samning þess efnis að
Sparisjóðurinn tæki að sér
innheimtu fasteignagjalda fyrir
Reyðarfjarðarhrepp.
Sparisjóður Norðfjarðar gerði
í fyrra tveggja ára samning við
Bæjarsjóð Neskaupstaðar um
innheimtu fasteginagjalda í bæn-
um og fyrir nokkru bauð Spari-
sjóðurinn Reyðarfjarðarhreppi
og Eskifjarðarkaupstaði að sjá
um innheimtu fasteignagjalda
fyrir þessi sveitarfélög. Skyldi
samningurinn hafa sama gildis-
tíma og samningurinn við Bæjar-
sjóð Neskaupstaðar. Reyðarfjar-
hreppur hefur nú, eins og áður
sagði, þekkst þetta boð en enn
hefur ekki borist svar frá Esk-
firðingum.
Leikskólagjöldin lægst í Neskaupstað
í verðsamanburði á leikskóla-
gjöldum hjá stærstu sveitarfél-
ögunum á landinu sem ASI,
BSRB og Neytendasamtökin
gerðu fyrir stuttu, kemur í ljós að
gjöldin eru áberandi lægst í
Neskaupstað og getur munað
verulegum fjárhæðum. T.d. var
gjald fyrir eitt bam hjóna, eða
sambýlisfólks, í átta stunda leik-
skóla 15.100,- kr. í Neskaupstað
en hæst 21.600.- kr. á Húsavík .
Gjöldin í þessum hópi voru
17.280.- kr. á Egilsstöðum og
18.000,- kr. á Höfn.
Leikskólagjald fyrir for-
gangshóp með eitt barn í átta
stundir var 9.200.- kr í Neskaup-
stað en 16.200.- kr. í Grindavík
þar sem það var hæst. I þessum
hópi þurftu Hornfirðingar að
greiða 11.050.- kr. og Egils-
staðabúar 13.835.- kr.
Önnur austfirsk sveitarfélög
voru ekki með í könnuninni.
Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf.
Aðalfundur Síldarvinnslunnar hf. verður
haldinn laugardaginn 14. mars 1998
kl. 14.00 í Egilsbúð Neskaupstað.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál, löglega upp borin
Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningur félagsins
munu liggja frammi á skrifstofu þess, hluthöfum til
sýnis, viku fyrir aðalfund.
Stjórn Síldarvinnslunnar hf.