Austurland - 05.03.1998, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 5. MARS 1998
7
Mikil umskipti í afkomu Tanaa hf. á Vopnafirði
66,5 milljóna króna hagnaður
Hagnaður Tanga hf. á Vopnafirði á síðasta
rekstrarári nam 66,5 milljónum króna en 4,2
milljóna króna tap varð á rekstrinum 1996.
Hagnaður af reglulegri starfsemi var 71,9
milljónir en það svarar til 4,3% af veltu ársins.
Veltufé frá rekstri var 195,5 milljónir á móti 77
milljónum 1996 og jókst því um 153,9% á milli
ára. Rekstrartekjur félagsins námu 1.667,4
milljónum króna en voru 1.155 milljónir árið
áður. Rekstrargjöld voru 1.393,7 milljónir og
hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsgjöld 273,5
milljónir. Eigið fé félagsins var í árslok 624
milljónir króna, eiginfjárhlutfall 29,64% og
veltufjárhlutfall var 1,06.
Astæður góðrar afkomu má fyrst og fremst
rekja til mikillar aukningar í vinnslu uppsjávarafla
en í fyrra tók félagið á móti 72.000 tonnum af
loðnu og sfld. Þar af var fryst um 9.700 tonn á
Rússlandsmarkað en árið 1996 voru ekki fryst
nema um 2.500 tonn af loðnu og sfld.
Aætlanir félagsins fyrir síðasta rekstrarár gerðu
ráð fyrir hagnaði upp á 51 milljón króna og er
afkoman því talsvert betri en gert var ráð fyrir.
Leitin að „föður/móður11 hins sameinaða sveitarfélaas
Hver átti hugmyndina?
Eins og allir vita er búið að
samþykkja að sameina Eski-
fjörð, Neskaupstað og Reyðar-
fjörð í eitt sveitarfélag og nú eru
ekki nema rúmir þrír mánuðir
þangað til sameiningin tekur
formlega gildi.
sett fram hugmyndir um samein-
ingu þessara þriggja sveit-
arfélaga. Vissulega dugar ekki
að segjast hafa rætt þetta yfir
kaffibolla við tengdó fyrir 35
árum heldur verður viðkomandi
að hafa sett hugmyndina fram á
hins nýja sveitarfélags til að hafa
samband við blaðið .
ffhmleql wval afsilkidamask- og satínrúmfatndði.
'Tjilvahd til bnidar- ogfermintjargjtfa.
dfik/9 útval f'Wíjcjnscttmn oq
bamanimfatnabi ífallegam mpnstntm.
GLinnf saenqur, koddar, tepfulök, liandkLtedie.rn.fi.
QSbérsaitmum eftir mdli. cMerkjtm staf í nímft og handklaedi.
Njálsgata 86 8 552 0978
*N
Vegna þessara merku tímamóta, prenti.
þ.e. sameiningarinnar, þykir Því hvetjum við alla sem
Austurlandi forvitnilegt að einhverjar vísbendingar geta
komast að því hver hafi fyrstur gefið um hver sé „faðir/móðir“
Spurningakeppni í fltom
Leikfélag Fljóts-
dalshéraðs er
þessa dagana á
fullu við æfingar
á leikritinu: ,,Ég er
hættur! Farinn!
Eg er ekki með í
svona asnalegu
leikriti.“ Hluti af
kynningu og
markaðssetningu
leikritsins fer fram á netinu og því hefur leikfélagið opnað
heimasíðu. A henni er meðal annars að finna upplýsingar um
leikfélagið, eldri sýningar og leikstjóra „Ég er hættur! Farinn!“,
Guðjón Sigvaldason, ásamt ýmsu öðru.
Slóðin er: http.//www.eldhom.is/leikfljost
Hin árlega spurningakeppni
félagsmiðstöðvarinnar Atom í
Neskaupstað fór fram dagana
18. til 23. febrúar. Keppninni var
skipt í þrjá hluta. Undanúrslit
sem fóru fram dagana 18. og 20.
febrúar og úrslitakeppni sem var
mánudaginn 23. febrúar.
Keppnin fór þannig fram að
keppt var milli bekkjadeilda í
Nesskóla. Hvert lið þurfti að
svara fjölþættum spumingunum,
þ.á.m. hraðaspumingum, hlaupa-
spurningum, tónlistarspurning-
um og fleiru. Ásamt hinni hefð-
bundnu spurningakeppni reyndu
nemendur með sér í bolluáti.
Þann 18. febrúar keppti 8.
bekkur gegn 10. bekk og fóra
leikar þannig að 10. bekkur vann
með 28 stigum gegn 13. Föstu-
daginn 20. febrúar kepptu lið 9.
bekkjar EÁ og 9. bekkjar EK og
unnu þeir síðamefndu.
Mánudaginn 23. febrúar var
síðan úrslitarimman háð. Fóru
leikar þannig að 10. bekkur vann
með 34 stigum gegn 30 stigum
9. bekkjar. Keppnin var hnífjöfn
og t.d. var staðan jöfn þegar ein
vísbendingaspurning var eftir.
Þeir sem skipuðu sigursveit
10. bekkjar voru þeir Jón Einar
Jónsson, Jón Bjarnason og Björn
Axel Jónsson og hlutu þeir rós
og farandbikar að launum.
Greinin var unnin af Helga
Olasyni og Þorbergi Inga Jóns-
syni sem vorit í starfskynningu
hjá blaðinu.
Tekið á í hlaupaspurningunum en þrátt fyrir mikil átök á köflum
sluppu allir óskaddaðir. Ljósm. H.Ó./Þ.l.J.
Hljómflutningssamstceður
Kiljur á ensku voru að berast
Tölvubœkur: Exel 97
Internetið Hyí
Windows ' 95,
Word 7.0
Rússfbanadiskurinn
kominn aftur
Neskaupstað S 477 lc580
Fræðslunefnd félagsmálaráðuneytisins, í
samstarfi við Farskólann á Austurlandi, auglýsir
námskeið fyrir starfsmenn sem vinna að
málefnum fatlaðra og fólk í líkum störfum.
Námskeiðið er 160 kennslustundir og skiptist námið í vor- og haustönn.
Fyrri hluti námskeiðisins hefst þ. 30. mars og lýkur í fyrri hluta maí.
Gert er ráð fyrir að kennsla seinni hluta námsins hefjist 21. sept. n.k. og
henni Ijúki 23. okt.
Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá Farskólanum á Austurlandi í
Neskaupstað og Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra á Egilsstöðum.
Umsóknum skal skilaö fyrir 15. mars n.k.
Upplýsingar eru veittar í:
Farskólanum á Austurlandi, sími 477-1620
og Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra, sími 471-1833