Austurland - 05.03.1998, Side 8
m"edi
SP/
:=Dönsk hé
svínakótelettjir |
2ÍÍP álege
o*'
^aWadagafrá kl-10.0Q.jg
**A
te£pilsa
^ínagúllash^^S S477 1609 og 897110!
Elsta bæjar- og héraðsfréttablaö landsins,
stofnað 1951
Austuiiand
Neskaupstað 5. mars 1998. Verð í lausasölu kr. 170.
Leitarhundanámskeið í
Neskaupstað
i Menntaskólans á Egilsstöðum
til leitar í
snjó en þar af eru
þrír sem dæmdir hafa
verið „útkallshæfir". Það eru
Barkinn 1998, undankeppni Menntaskólans á Egilsstöðum fyrir
söngkeppni framhaldsskólanna, var haldinn í Valaskjálf
föstudagskvöldið 27. febrúar sl.
Alls tóku 17 keppendur þátt og var fjöl-
breytt lagaval keppenda athyglisvert og
heyrðust lög, allt frá kónginum sjálfum
(Elvis Presley) og Frank Sinatra til
Boyzone og Perl Jam.
Greinilegt er að mikið af hæfileikafólki
stundar nám við Menntaskólann þetta árið og
var dómnefnd ekki öfundsverð af hlutskipti sínu.
Þó náði hún að lokum að komast að niðurstöðu og
varð sigurvegari kvöldsins Páll Ingvar Pálsson, en
hann söng lagið Only you eftir Elvis Preley.
Kynnar kvöldsins voru Magnús Einþór Askelsson og
Þorbjöm Bjömsson.
A stœrri myndinni er Arnar Pétursson en hann flutti
lagið „Killing in the name...“ sem hljómsveitin Rage
Against the Machine gerði frœgt um árið en á minni
myndinni sést sigurvegarinn, Páll Ingvar Pálsson, fagna
sigrinum. Ljósm. as
Framboðsmál
Fréttir af framboðsmálum í nýju
sameinuðu sveitarfélagi þessa
vikuna eru þær helstar að ekkert
nýtt er að frétta. Þó má geta þess
að framsóknarmenn hafa stofnað
sameiginlegt félag fyrir Eski-
fjörð, Neskaupstað og Reyðar-
fjörð. Hafa framsóknarmenn
einnig skipað uppstillingarnefnd
og er gert ráð fyrir að framboðs-
listi hins nýja félags verði kynnt-
ur um miðjan mars.
Félagshyggjufólk, Alþýðu-
bandalag, Alþýðuflokkur og fólk
utanflokka mun í næstu viku
stofna sameiginlegt bæjarmála-
félag og sömuleiðis verður þá
tekin ákvörðun um með hvaða
hætti staðið verði að framboðs-
málum. Þ.e.a.s. hvort haldið
verður prófkjör, skoðanakönnun
eða kosin verði uppstillingar-
nefnd. Mjög líklegt er að sá kost-
ur verði valinn að kjósa uppstill-
ingarnefnd sem síðan mun skila
af sér tillögu að framboðslista.
Framboðslisti sjálfstæðis-
manna er tilbúinn og hefur verið
samþykktur í Sjálfstæðisfélagi
Norðfjarðar en verður lagður
fram til samþykktar eða synjun-
ar á félagsfundum á Eskifirði og
Reyðarfirði í kvöld, fimmtudag,
og á morgun.
Pétur Oskarsson í Neskaup-
stað er enn að kanna möguleika
á sérframboði en eins og áður
hefur komið fram í blaðinu
munu þau mál skýrast um miðj-
an mars.
N.k. laugardag, 7.mars, hefst
vikulangt leitarhundanámskeið í
Neskaupstað og er tilgangurinn
að þjálfa og dæma hæfileika
hundanna til leitar í snjó. Um 25
hundar, ásamt sama fjölda eig-
anda, taka þátt í námskeiðinu og
mun hópurinn gista inn í Seldal,
bæði í bænum þar og í
bæjarsbústaðnum, en konur í
kvennadeild SVFÍ í Neskaup-
stað munu elda kvöldmat fyrir
þátttakendur í húsi björgunar-
sveitar Gerpis að Nesi. Nám-
skeiðið sjálft verður svo haldið í
Oddsskarði og að sögn Guð-
bjartar Hjálmarssonar, eins for-
sprakka námskeiðsins, vonast
þeir eftir góðri ofankomu á
næstu dögum til að ná að skapa
sem eðlilegast leitarumhverfi.
Tveir Austurríkismenn (frá
Austurríki hinu stærra) og einn
Skoti, ásamt nokkrum Islending-
um, munu kenna og dæma á
námskeiðinu.
A Austurlandi eru nú sjö
hundar sem þjálfaðir hafa verið
hundar sem eru orðnir vel
þjálfaðir og sótt hafa sambæri-
legt námskeið og nú á að halda í
Neskaupstað. Tveir þessara „út-
kallshæfu" hunda koma frá Nes-
kaupstað og einn frá Egilsstöð-
um.
„Dragshow" í Neskaupstað
N.k. laugardag verður haldin
„Dragkeppni“ í Hótel Egilsbúð í
Neskaupstað og er keppnin sú
fyrsta af níu sem haldnar verða á
landinu en sigurvegarinn mun
taka þátt í úrslitakeppninni sem
fram fer á Ingólfscafé í Reykja-
vík 9. maí. I keppnina í Egilsbúð
verða a.m.k. sjö keppendur og
koma þeir vítt og breytt af Aust-
urlandi. Þá koma þrjár drag-
drottningar frá Reykjavík er
kenna sig við „Icequeen-hópinn
og“ munu þær stjórna keppninni
og koma fram með ýmis
skemmtiatriði.
A skemmtuninni munu einn-
ig verða kynntar í fyrsta skipti
þær sjö stúlkur er taka þátt í
fegurðarsamkeppni Austurlands
sem fram fer á Egilsstöðum
þann 21. mars en þar af eru þrjár
stúlkur frá Neskaupstað, þrjár
frá Homafirði og ein frá Egils-
stöðum. Munu stúlkurnar bjóða
gestum upp á fordrykk við
opnun hússins kl. 20 en einnig
munu þær koma fram síðar um
kvöldið.
Þá má geta þess að ákveðinn
kvennahópur í Neskaupstað,
sem nefna sig SB, mun ætla að
mæta á skemmtunina, sem í
sjálfu sér væri ekki í frásögur
færandi, nema að þessu sinni
munu þær mæta á staðinn,
klæddar eins og karlmenn.
Slippfélagið
Málningarverksmiðja SIMI: 588 8000