Austurland - 19.03.1998, Qupperneq 1
48. árgangur
Neskaupstað, 19. mars 1998.
11. tölublað.
Símsvari
878 1474
Skíðaskáli
S. 476 1 465
Skíðamiðsíöð Ausíurlands
í Oddsskarði
MOLAR
Bruni í Fljótsdal
Stórtjón varð snemma á
mánudagsmorguninn síðast-
liðinn þegar fbúðarhúsið að
Víðivöllum ytri í Fljótsdal
brann til kaldra kola, ásamt
öllu innbúi. Þrennt var í
húsinu þegar eldurinn kom
upp, hjón ásamt 10 ára syni
sínum. Tókst þeim að bjarga
sér út úr brennandi húsinu á
nærklæðunum einum en
skömmu síðar varð mikil
eldsprenging inni í húsinu.
Það var reykskynjari í
húsinu sem vakti íbúana og
líklega hefur hann bjargað
því að ekki varð manntjón í
brunanum.
Síldarflökun í
Neskaupstað
Þessa dagana er verið að
flaka síld hjá Síldarvinnsl-
unni í Neskaupstað en síldin
hafði áður verið söltuð í
tunnur í haust. Að sögn Har-
aldar Jörgensen, verkstjóra
hjá SVN, stendur til að flaka
úr um 4.000 tunnum og verð-
ur síldin síðan seld til Sví-
þjóðar og Finnlands.
Nýjungar hjá KHB
I síðustu viku var tekið í
notkun nýtt tölvukerfi hjá
Kaupfélagi Héraðsbúa en
með því tengjast saman
flestar deildir félagsins. Má
þar nefna matvörubúðir á
Egilsstöðum og Reyðarfirði,
byggingavörudeildir á sömu
stöðum, mjólkursamlag,
aðalskrifstofu og Hraðbúðina
(Essóskálann) á Egilsstöðum.
Gerir þessi samtenging öll
samskipti starfsmanna mun
þægilegri og einfaldari auk
þess sem öll tilboð verða
samrýmd.
Þá hefur KHB komið upp
nýrri heimasíðu á Netinu en
þar er hægt að nálgast ýmsar
upplýsingar um fyrirtækið
s.s. ársskýrsluna o.fl.
Spurningakeppni
framhaldsskólanna
Kl. 16.00 í dag, fimmtudag,
fer fram í íþróttahúsinu á
Egilsstöðum upptaka á viður-
eign Menntaskólans á Egils-
stöðum og Menntaskólans í
Reykjavík í spurningakeppni
framhaldsskólanna. Austfirð-
ingar eru kvattir til að mæta
og styðja sitt lið.
Framboðsmál í nýju
sveitarfélagi
Þreifingar
um
sérframboð
Þegar Austurlandfór íprentun stóð verkfall sjómanna ennþáyfir og ekki útséð um hvernig málum
lyki. A myndinni hér fyrir ofan eru, frá vinstri, Gunnar Ólafsson, sjómaður á Berki, Skúli
Aðalsteinsson og Dagbjartur Gunnarsson, báðir á Barða. Þeir félagar voru að spóka sig á
bryggjunni í verkfallinu og rœða stöðu niála. Með þeim á myndinni er tíkin Táta, verkfallsvörður
sjómanna í Neskaupstað. Ljósm. Krist. J. Krist.
Félaashyaaiufólk í sameinuðu sveitarfélaai
Stofnfundur Fjarðallstans
Stofnfundur Fjarðalistans, fólks
úr Alþýðubandalagi, Alþýðu-
flokki og óflokksbundinna, var
haldinn síðastliðinn þriðjudag í
Valhöll á Eskifirði. Þar var
samþykkt að bjóða fram lista til
komandi sveitarstjómakosninga
í nafni Fjarðalistans. Ennfremur
var á fundinum kosin fimm
manna uppstillingarnefnd sem
gera skal tillögu að skipan
framboðslista Fjarðarlistans og
skal tillaga nefndarinnar lögð
fyrir félagsfund til samþykktar
eða synjunar. Þá var stjóminni
falið að hafa yfirumsjón með
stefnuskrárvinnu listans þar til
kosin verði sérstök stefnuskrár-
nefnd en hún verður væntalega
kosin á félagsfundi þar sem
listinn verður kynntur.
I lögum Fjarðalistans, sem
samþykkt voru á fundinum,
segir m.a: „Markmið félagsins er
að standa fyrir umræðu um
málefni sveitarfélagsins og
bjóða fram til sveitarstjórnar."
Ennfremur segir: „Rétt til
aðildar að félaginu eiga íbúar á
starfssvæðinu [Eskifirði, Nes-
kaupstað og Reyðarfirði] sem
samþykkja stefnu þess og náð
hafa 16 ára aldri.“
A fundinum var einnig sam-
þykkt stefnuyfirlýsing í 15 lið-
um en þar segir m.a: „Fjarða-
listinn byggir á hugsjónum um
réttlátt samfélag þar sem jöfnuð-
ur, jafnrétti og virkt lýðræði er í
fyrirrúmi." Einnig segir þar:
„Fjarðalistinn vill að gjaldtöku
fyrir þjónustu sveitarfélagsins
verði stillt í hóf ‘ og „Fjarðalist-
inn leggur áherslu á markvissa
fjármálastjórnun hins nýja sveit-
arfélags þar sem saman fari
ábyrgð, festa en jafnframt áræði
til nýrrar sóknar."
Kranakaup á Eskifirði
Nýlega var keyptur nýr, stór og
öflugur löndunarkrani á Eski-
fjörð og kostar hann með steypt-
um undirstöðum um 10 milljónir
króna. Þá voru um leið keyptir
nýir kranar í Hólmatind og Jón
Kjartansson að verðmæti 5,5
milljónir króna og sömuleiðis
fékk netagerðin á Eskifirði nýjan
krana og kostaði hann um 2
milljónir króna.
Það er því Ijóst að þeir
„miðbæingar" í nýju og samein-
uðu sveitarfélagi geta heldur
betur lyft sér upp á næstunni.
Eins og komið hefur fram í
Austurlandi hefur Pétur
Oskarsson í Neskaupstað verið
að vinna að hugsanlegu sér-
framboði vegna sveitarstjóma-
kosninganna í vor. Samkvæmt
heimildum blaðsins eru einnig
þreifmgar í gangi í „innbænum
og miðbænum", þ.e.a.s. á Reyð-
arfirði og Eskifirði.
Einstaklingar á þessum stöð-
um eru þessa dagana að kanna
möguleika á framboði og hafa
nöfn þriggja manna borið hæst í
þessu sambandi. Eru það nöfn
Þorvaldar Aðalsteinssonar og
Sigurbjörns Marinóssonar á
Reyðarfirði og Emils Thoraren-
sen á Eskifirði. Blaðið hefur
einnig öruggar heimildir fyrir
því að þessir aðilar hafi verið í
sambandi við Pétur Óskarsson í
Neskaupstað og ekki er loku
fyrir það skotið að hann sláist í
hóp hina fyrrnefndu, ef af
framboði þeirra verður.
r
Helgartilboð
Svírtakótilettur kr. 998.- pr. kg
Svínalae.risneiðar kr. 599.- pr. kg
Kjötfars kr. 392..- pr. kg
Vínber blá kr. 2.98.- pr. kg
Vínber rauð kr. 2.98.- pr. kg.
Bóndabrie kr. 119.- stk.
WC pappír 8 rúllur kr. 169.
Klór 1.5 I. kr. 99.
9 477 1301