Austurland - 26.03.1998, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR 26. MARS 1998
Austurland
Málgagn Alþýðubandalagsins á Austurlandi
Útgefandi: Kjördæmisráð AB á Austurlandi
Ritnefnd: Einar Már Sigurðarson, Elma Guðmundsdóttir, Guðmundur
Bjamason, Smári Geirsson og Steinunn L. Aðalsteinsdóttir
Ritstjóri: Aðalbjöm Sigurðsson (ábm) ffi 4771383og8994363
Blaðamaður: Kristján J. Kristjánsson ffi 477 1284 og 854 8850
Auglýsingastjóri: Erla Traustadóttir 8 477 1740
Ritstjórn, afgreiðsla og auglýsingar:
Hafnarbraut 4 - Pósthólf 75 - 740 Neskaupstaður
ffi 477 1750 og 477 1571 - Fax: 477 1756
Netfang: austurla@eldhom.is
Austurland er aðili að Samtökum bœjar- og
héraðsfréttablaða
Umbrot og hönnun: Austurland
Prentun: Nesprent hf.
Kjördæmaskipan 09 fylki
Nú standa yfir að frumkvæði forsætisráðherra
áþreifingar milli þingflokka um breytingar á kjör-
dæmaskipan og fjölda þingmanna innan kjör-
dæma. Undirrót þessarar umræðu er mikil til-
færsla fólks frá landbyggð til höfuðborgarsvæðis
undanfarna áratugi og sú umdeilda skoðun að
fjölga beri þingmönnum suðvestanlands af þeim
sökum en fækka þeim sem kjörnir eru á landsbyggðinni. Þótt núverandi
kosningalög tryggi gott samræmi á milli kjörfylgis og þingstyrks
stjórnmálaflokka yfir landið í heild er verulegur og vaxandi munur á
atkvæðafjölda að baki þingmanna eftir kjördæmum. Núverandi kjör-
dæmaskipan hefur haldist óbreytt frá árinu 1959 en kosningalögum
verið breytt nokkrum sinnum síðan til að jafna milli flokka og kjör-
dæma í kjölfar búferlaflutninga.
Nú er að því er virðist í nokkurri alvöru rætt um að breyta sjálfri
kjördæmaskipaninni. Engar fastmótaðar tillögur hafa komið frá nefnd
þingflokkanna sem um þetta fjallar og margar hugmyndir til umræðu.
Flestar lúta að því að stækka landbyggðarkjördæmin til muna frá því
sem nú er og fækka þeim, jafnvel að þau verði aðeins þrjú í stað sex, og
tvö eða fleiri á suðvesturhominu. Ein hugmyndin gengur út á það að
leggja saman Austurlands- og Suðurlandskjördæmi og fækka um leið
þingmönnum frá þessu svæði. Norðurland yrði gert að einu kjördæmi
og Vesturland og Vestfirðir yrðu á sama hátt eitt kjördæmi.
Miklir meinbugir eru á því að stækka kjördæmin að því marki sem
þessar hugmyndir gera ráð fyrir. A þeim fjömtíu árum sem núverandi
kjördæmaskipan hefur haldist, hafa kjördæmin orðið eins konar
félagslegar gmnneiningar, bæði í starfi þingmanna, sem umdæmi í
margháttaðri opinberri stjórnsýslu og sem vettvangur samstarfs
sveitarfélaga. Erfitt verður fyrir þingmenn landbyggðarkjördæma að
sinna mikið stærri svæðum en nú er með persónulegum tengslum við
byggðarlög og kjósendur. Þetta á ekki síst við um stærstu
landsbyggðarkjördæmin eins og Austurland. Menn getur auðvitað
greint á um það, hvers virði slik tengsl séu milli þingmanna og
umbjóðenda þeirra, en líklegt er að þau skipti landbyggðarfólk nú og
framvegis meira máli en fyrir íbúa höfðuborgarsvæðisins.
Verði niðurstaðan sú að stækka landsbyggðarkjördæmin til muna frá
því sem nú er, þyrfti jafnhliða að skipta landinu í fylki og renna þannig
stoðum undir millistig í stjórnsýslunni. Slíkar fastmótaðar stjómsýslu-
einingar eru lykillinn að því að unnt sé að færa umsýslu ríkisins í langt-
um meira mæli en nú er nær fólki á landsbyggðinni. Stækkun sveitar-
félaga ein og sér og tilfærsla verkefna frá ríki til sveitarfélaga leysir
ekki þá þörf sem lengi hefur blasað við í þessu efni. Fylkin gætu í
aðalatriðum tekið mið af núverandi kjördæmamörkum og innan þeirra
væri unnt að treysta það samstarf sem verið hefur um leið og þeim yrðu
lögformlega falin fjölmörg svæðisbundin stjómsýsluverkefni sem nú
eru unnin í ráðuneytum og ríkisstofnunum í höfuðborginni.
Firðir og Austur-Hérað
Um fátt er meira skrafað í nýjum og stærri sveitarfélögum en
væntanleg heiti þeirra. Verið er að breyta löggjöf í frjálsræðisátt um
nafngiftir eins og undirritaður hefur ítrekað lagt til á Alþingi. Miklu
skiptir að vel takist til um nöfn nýrra sveitarfélaga. Þrjú fjarðasamfélög
hafa nú sameinast og fer vel á að kalla þau Firði. Ibúarnir em
Fjarðamenn eða Fjarðabúar.Heitin Norðfjörður, Eskifjörður og
Reyðarfjörður haldast óbreytt. Firðir eru hluti Austfjarða rétt eins og
Suðurfirðir. í efra er að fæðast eitt sameinað sveitarfélag austan
Lagarfljóts. Það hlýtur að kallast Austur-Hérað. Þegar Norður-Hérað
hefur sameinast því stendur eftir Hérað.
Hjörleifur Gutlormsson
Áfram Iff
Síðustu fimm ár hefur undirrit-
aður rekið Útileikhúsið „Hér
fyrir austan“. Fyrst var það á
Eiðum 1993 og síðan í Selskógi.
Leikstjóri var oftast Magnús
Stefánsson frá Fáskrúðsfirði, en
Sigrún Benediktsdóttir og Vil-
hjálmur Einarsson leikstýrðu
einnig sitt sumar hvort. Yfir vet-
urinn var leitað til Austfirðinga
vfða að til að semja leikþætti,
tónlist o.fl. og á sumrin vom
leikþættimir fluttir minnst átta
sinnum.
Að auki voru margar aðrar
dagskrár, sem er of langt mál að
telja upp, svo sem handverks-
sýningar og tónlistarflutningur.
Þegar mest var árið 1995 voru
uppákomur sumarsins alls um
30. Eins og tölumar gefa til
kynna, fékkst margt áhugasamt
fólk til aðstoðar, og Alþingi,
Egilsstaðabær og samstarf sveit-
arfélaga á Héraði og Borgarfirði
styrktu Útileikhúsið flest árin.
Einnig var byggð upp frábær
sýningaraðstaða, að mestu með
hjálp sjálfboðaliða, vorið 1994.
Daglegar
ferðir
Neskaupstaður s. 477 1190
Eskifjörður s. 476 1203
ReyðarQörður s. 474 1255
Víggó £
Vöruflutningaj-
<3)477 1190
og fjör?
Nú er hins vegar svo komið
að undirritaður treystir sér ekki
til að halda áfram á sömu braut.
Sú stefna, að leita til Austfirð-
inga um að semja efni og flytja,
var í anda grænnar ferðaþjón-
ustu og falleg hugsjón í sjálfri
sér, en reyndist ekki eins vinsæl
og búist var við. Niðurstaðan er
um tveggja milljón króna tap á
eigin fé frá byrjun. Síðan í sumar
hef ég hvatt aðra til að spreyta
sig með útisýningar hér, enda
hefur Héraðið þá ímynd um veð-
ursæld sem þarf, auk þess að
skógurinn bætir við skjóli. Nú
hillir undir að a.m.k. tveir aðilar
skipuleggi líf og fjör úti í lend-
um Egilsstaðabæjar þ.á m.
Tjarnargarðinum í sumar, og
óskar undirritaður þeim alls hins
besta. Þetta getur verið mikil
vinna, en auðgar bæði þátttak-
endur og svæðið - Austurland á
að þekkjast fyrir allt annað en að
hér sé ekkert um að vera!
Philip Vogler
Ókeypis smáar
Til sölu
MMC Lancer árgerð 1988.
Uppl. í s. 477-1697
Hefur þú áhuga á börnum?
Gætir þú hugsað þér að taka að
þér liðveislu eða gerast
stuðningsfjölskylda?
Félagamálaráð Neskaupstaðar auglýsir eftir
fólki sem áhuga hefði á að taka að sér liðveislu.
Annarsvegar er um að ræða 4 ára tvíburastúlkur
og hinsvegar 4 mánaða tvíburastúlkur.
Einnig viljum við komast í samband við fólk
sem gæti hugsað sér að vera stuðningsfjölskylda
viðkomandi barna.
Félagsmálastjórinn í Neskaupstað
QMadurinn
Hversu upphafinn er staðan er
maðurinn getur náó ef aðeins
hann kysi að uppfýlla háleitt
œtlunarverk sitt! I hvílík djúp
niðurlœgingar getur hann sokkið,
djtíp sem hinar auðvirðilegustu
meðal skepna hafa ekki kafað!
Austfirðingur vikunnar
Fullt nafn? íris Heiður Jóhannsdóttir er að þessu sinni fegurðardrottning
Fæðingardagur? 13. ágúst 1976 Austurlands 1998
Fæðingarstaður? Reykjavík
Heimili? Austurbraut 13 Höfn
Núverandi starf? Starfa í matvöruverslun
Önnur störf? Aukavinna á Hótel Höfn
Fjölskylduhagir? Er næstelst af 5 systkinum,
móðir og stjúpfaðir
Farartæki? Ekkert nema fæturnir
Uppáhaldsmatur? Jólasteikin, sem
er svínahamborgarahryggur
Helsti kostur? Hreinskilni og ákveðni
Helsti ókostur? Oþolinmæði
Uppáhalds útivistarstaður? Vatnajökull
Hvert langar þig mest að fara?
Nýja Sjálands eða Astralíu
Fallegasti staður sem þú hefur komið á?
Skagen í Danmörku
Framtíðaráform? Ætla að starfa við
eitthvað tengt ferðaþjónustu
Uppáhalds íþróttafélag? Sindri
Hverju breytir þessi titill fyrir þig? Hann gefur
mér sjálfsagt einhver tækifæri, en það á eftir að koma í ljós.
Hvað ætlarðu að gera um helgina? Sýna á tískusýningu á Hótel Höfn og vinna.