Austurland


Austurland - 22.04.1998, Síða 2

Austurland - 22.04.1998, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 22. APRIL 1998 Austurland Málgagn Alþýðubandalagsins á Austurlandi Utgefandi: Kjördæmisráð AB á Austurlandi Ritnefnd: Einar Már Sigurðarson, Elma Guðmundsdóttir, Guðmundur Bjamason, Smári Geirsson og Steinunn L. Aðalsteinsdóttir Ritstjóri: Aðalbjörn Sigurðsson (ábm) f£ ATl 1383og8994363 Blaðamaður: Elma Guðmundsdóttir S 477 1532 og 894 8850 Auglýsingastjóri: Erla Traustadóttir S 477 1740 Ritstjórn, afgrciðsla og auglýsingar: Hafnarbraut 4 - Pósthólf 75 - 740 Neskaupstaður S 477 1750 og 477 1571 - Fax: 477 1756 Netfang: austurla@eldhom.is Austurland er aðili að Samtökum bœjar- og héraðsfréttablaða Umbrot og hönnun: Austurland Prentun: Nesprent hf. „Stóri bróðir“ gerist æ ágengari Tölvuskráning persónulegra upplýsinga um hagi einstaklinga, heilsufar, skoðanir og hneigðir er stöðugt að verða áleitnari án þess að afstaða sé tekin til þess, hversu langt stjómvöld og ríki geta hugsað sér eða telja rétt að ganga. Tvö nærtæk dæmi eru á dagskrá um þessar mundir hérlendis: Gerð gagna- grunns með heilsufarsupplýsingum um alla Islend- inga, látna og lifandi, og tölvuskráning um einstakl- inga í miðtölvu upplýsingakerfis Schengen, en því kerfi er ætlað að þjóna löggæsluyftrvöldum í nánast allri Vestur-Evrópu. Ríkisstjórn íslands með heilbrigðisráðherra í fararbroddi hefur lagt fyrir Alþingi frumvarp til laga um gagnagrunn á heilbrigðissviði. Fmmvarpið er rammi utan um einkaleyfi til ákveðins fyrirtækis, Islenskrar erfðagreining- ar hf., „sem gæti þannig sett saman gagnagmnn sem t.d. hefði að geyma allar aðgengilegar upplýsingar síðustu tveggja til þriggja áratuga úr íslensku heilbrigðiskerfi í ónafngreindu formi og síðan safnað viðbótar- upplýsingum úr heilbrigðiskerfinu um leið og þær yrðu til. Dæmi um það hvemig gagnagrunnur gæti nýst eru kannanir á því hvemig nota megi upplýsingar um erfðir til þess að sníða aðgerðir í heilsuvemd og fyrirbyggjandi læknisfræði að þörfum einstaklinga." Þessi lýsing er sótt í greinargerð með fmmvarpi heilbrigðisráðherra, sem nú er rætt á Alþingi og af mörgum í þjóðfélaginu. Við málsmeðferð og hugmyndir stjórnvalda með umræddum gagnagrunni og einkaleyfi til ens fyrirtækis er margt að athuga. * Frumvarpið er samið í náinni samvinnu við fyrirtækið sem ætlað er að hljóta einkaleyfið og sniðið að þörfum þess. * Skýringar á bakgrunni málsins og líklegum afleiðingum, jákvæðum sem neikvæðum, eru af afar skomum skammti og ekki var haft samráð við tölvunefnd og vísindasiðanefnd. * Sá kostur að hið opinbera sjái um slíka skráningu eins og tíðkað er eða fyrirhugað annars staðar á Norðurlöndum var ekki ræddur í alvöru við undirbúning málsins. * Fmmvarpið veitir einum aðila forskot á alla aðra og getur orðið til að takmarka vísindarannsóknir annarra í þágu viðskiptahagsmuna Islenskrar erfðagreiningar. * Fullyrðingar um að tryggt sé að upplýsingarnar séu „aftengdar persónugreindum og persónugreinanlegum einstaklingum" fá að mati þeirra sem best þekkja til tölvukerfa ekki staðist. Ríkisstjómin stefndi að því að lögfesta þetta mál nú á örfáum vikum en sú fyrirætlan hefur eðlilega mætt mikilli andstöðu. Ótal spuningum er ósvarað um þessi efni og þjóðin á rétt á að taka þátt í umræðunni áður en óafturkræfar ákvarðanir em teknar. Þrýstingur lyfjarisans Hoffmann-La Roche, sem stendur að baki íslenskri erfðagreiningu hf. má ekki svipta íslendinga þeim rétti að reyna að sjá fótum sínum forráð. Fátt er brýnna nú um stundir en að skyggnast inn í framtíð og afkima upplýsingasamfélagsins. I því sambandi verða menn að setja upp ákveðin siglingaljós og svara gmndvallarspumingum, sem eðli máls snúast um siðferðileg álitamál, áður en tölvunni og þeim sem henni stýra er treyst fyrir allri forsjá. Það er skammt síðan aðferðir austur-þýsku leyniþjónustunnar Stasi voru á allra vömm og réttilega fordæmdar. Er hugsanlegt að menn séu á leið inn í svipaðan heim óafvitandi og að lítt athuguðu máli undir yfirskyni vísinda og framfara? Gleðilegt sumar Sá fmmlegi íslenski siður að fagna sumarkomu á tilteknum degi snemma vors er ein besta hefð í landi okkar. Sumargjafir eru miklu eldri siður en jólagjafir. Hér verða að nægja frómar óskir um gleðilegt sumar. Þökk fyrir veturinn. Hjörleifur Guttormsson Getraunaleikur Þrottar og Pizza 67 Tveir hópar náðu 12 réttum um helgina, það voru 3 Fuglar og Gufurnar. Fuglarnir vora með öll merkin rétt en kerfið gekk ekki upp og 12 réttir var niður- staðan, leikurinn sem klikkaði hjá Gufunum var Stockport - Nott.Forest, þeir settu 1 og 2 en leikurinn endaði með jafntefli og þeir misstu af þeim stóra. Efsti hópurinn, Tippverkur náði 11 réttum þannig að forasta þeirra minnkaði um eitt stig, þeir eru með 53 stig en 3 Fuglar eru með 52 stig. Aðrir hópar sem náðu 11 Gleðílegt sumar Daglegar ferðir Neskaupstaður s. 477 1190 Eskiijörður s. 476 1203 Reyðarijörður s. 474 1255 VíggÓ « V öruf lutningar 0)477 1190 réttum voru Trölladeig og Læk- urinn. Þróttur var með tæp 2% af heildarsölu getraunaraða á land- inu um síðustu helgi og vora lang- söluhæstir á Austurlandi. Nú era fimm vikur eftir af þessum hóp- leik sem er sá síðasti á þessum vetri, verða tipparar sem ætla að blanda sér í toppbaráttuna að leggja sig fram þessar síðustu vikur og leggja allt í sölurnar. Nú eru búnar fjórar vikur af félagakeppni UIA í getraunum. Þróttur og Huginn skera sig nokkuð úr og Austri fylgir nokkuð á eftir: Þróttaramir hafa náð góðum árangri, einu sinni 13 réttum, einu sinni 12 réttum og tvisvar 11 réttum. Huginn hefur náð einu sinni 12 réttum og þrisvar 11 réttum. Þróttur var með tæp 2% af heildarsölu getraunaraða á landinu í síðustu viku og voru söluhæstir á Staðan eftir fínnn vikur er þannig: 1 Tippverkur 53 2 3 Fuglar 52 3 Gufumar 50 4 Liverunited 49 5-8 Mónes 48 5-8 Mamma og ég 48 5-8 Nönsos 48 5-8 Trölladeig 48 Getraunaþjónusta Þróttar er opinn föstudaga kl. 19 - 21 og laugardag kl. 10 - 12.30 Getraunanúmer Þróttar er 740. Austurlandi, Huginn seldi næst mest á Austurlandi. Það er alveg ljóst að því meira sem tippað er því fleiri og betri vinningar. Við skoram á alla að tippa og taka þátt í skemmtilegum leik, og styðja þar með við bakið á sínu félagi. Röðin kostar aðeins 10 kr. Staðan eftir 4 vikur: 1 Þróttur 47 2 Huginn 45 3 Austri 41 4 Höttur 38 5-6 Einherji 37 5-6 Neisti 37 (^afhrétti "s O mannartna börn! Vitiðþér eigi hvers vegna vér skópum yður af einu og sama dufti? Til þess að enginn skyldi upphefja sigyfir annan. m ■■■■ Félagakeppni ÚÍA Austfiróingur vikunnar Fullt nafn? Birgir Þ. Kjartansson Fæðingardagur? 17. mars 1947 Fæðingarstaður? Reykjavík Heimili? Sæbakki 28 Neskaupstað Núverandi starf? Félagsmálastjóri Önnur störf? Forstöðumaður, áfengis- og vímuefnaráðgj afi Fjölskylduhagir? Sex barna faðir, sambúð með Ingibjörgu K. Ingólfsdóttur Farartæki? Golf árgerð 1994 Uppáhaldsmatur? Lambahryggur Helsti kostur? Jafnlyndi Helsti ókostur? Þrjóskur Uppáhalds útivistarstaður? Fannardalur Hvert langar þig mest að fara? Frakklands Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Arnarstapi á Snæfellsnesi Áhugamál? Mannrækt Uppáhalds tónlistarmaður? K.K. Uppáhalds íþróttafélag? Fram Hvað ætlarðu að gera um helgina? Vera með fjölskyldunni er að þessu sinni Birgir Þ. Kjartansson félagsmálastjóri í Neskaupstað, sem er fyrir hópnum sem stendur að ráðstefnunni Við getum betur, á föstudaginn.

x

Austurland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.