Austurland - 22.04.1998, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 1998
5
Hvernig ég sé bæinn minn
Austurland
«5* óskar lesendum sínum
og öðrum viðskiptavinum
gleðilegs sumars
Verkalýðsfélag Norðfirðinga
óskar Norðfirðingum öllum
gleðilegs sumars
Krakkarnir hennar Önnu Láru voru að vonum spenntir yfir myndatökunni en sumir vildu frekar
vita hvort vitnað vœri til skrifa þeirra. Ljósm. Eg.
Á dögunum lagði Anna Lára
Pálsdóttir, kennari í Nesskóla í
Neskaupstað, verkefni fyrir 9 ára
gamla nemendur í 4. bekk A.
Nemendur voru beðnir um að
skrifa bréf þar sem þeir segðu frá
bænum sínum, t.d. því hvað
helst væri um að vera hér o.s.frv.
Anna Lára sagði að markmið
verkefnisins hefði verið að láta
bömin að kynna bæinn sinn fyrir
einhverjum sem ekki hefði
komið hingað.
Ljóst er að hinir 9 ára gömlu
krakkar höfðu frá ýmsu að segja
og þeirra sýn á bæinn var mjög
mismunandi. Við getum því
miður ekki birt öll bréfin en í
staðinn grípum við niður í
nokkrum þeirra.
...Ég ætla að skrifa um bæinn
minn sem heitir Neskaupstaður,
en þar búa u.þ.b. 1600 íbúar.
Bærinn fékk kaupstaðarréttindi í
janúar árið 1929... Hér er stórt
og nýtt íþróttahús og íþróttafél-
agið heitir Þróttur. Hér er líka
stórt Fjórðungssjúkrahús og
ýmis önnur þjónusta s.s. verslan-
ir, verkstæði, hárgreiðslustofur
og tannlæknir. Hér er oft mjög
gott veður og því hafa allir
Það er ódýrara að
vera áskrifandi!
Ársfjórðungsáskrift að
blaðinu kostar aðeins
1.470,-
Hringdu Í477 1571
og þú færð blaðið sent
heim á hverjum
fimmtudegi.
Austurland
gaman af því að vera hér.
...Ég ætla að segja þér frá
bænum mínum. Hér búa 1.600
manns. Beint fyrir ofan bæinn
eru brött fjöll. Bærinn stendur
við fjörð sem heitir Norðfjörður.
Flestir vinna við sjávarútveg.
Hér eru 5 stór fiskiskip og nokk-
uð margar trillur... Hér eru 2
skólar - grunnskóli og verk-
menntaskóli. Nú er nýbyrjaður
tölvuskóli fyrir krakka. Tónlist-
arskóli er hér líka... I vor verða
Reyðarfjörður, Eskifjörður og
Neskaupstaður einn bær með
einn bæjarstjóra. Ég vil láta nýja
bæinn heita Austurríki.
...Það er hægt að labba út í
Urðir og það er hægt að labba
inn í sveit. Það er gott að búa hér
eða mér finnst það. Sumir vinna
í frystihúsi eða á sjó eða í
Bræðslunni.
... I bænum mínum eru tvær
búðir og tvær sjoppur og búðirn-
ar heita Bakkabúð en hin Mela-
búð og íbúafjöldinn er u.þ.b.
1.600 og er mjög fallegt í skóg-
inum og bæjarstjórinn heitir
Guðmundur Bjamason og bát-
arnir heita Barði, Beitir, Blæng-
ur, Bjartur og Börkur og það er
frystihús, vélaverkstæði, salt-
fiskverkun og skemma og það er
mikið landað og mikið að gera í
frystihúsinu...
... í Neskaupstað búa 1.600
og það eru margir atvinnulausir
hér og það vinna bara sumir í
frystihúsinu. Það er mest veitt af
loðnu og þorski... Bæjarstjórinn
minn heitir Guðmundur Bjama-
son. Neskaupstaður fékk kaup-
staðarréttindi 1. janúar árið
1929.
... í Neskaupstað er skíðaskáli
uppi í fjalli. Þar er stór lyfta, lítil
lyfta og líka gilið, rússíbaninn
og yfir göngin og svo eru 2
sundlaugar, ein venjuleg og ein
uppi í sjúkrahúsi fyrir fatlaða...
Það er mikið að gera í skólanum
og það eru margir að fara að
fermast í vor, pálmasunnudag,
hvítasunnu og skírdag og margt
fleira.
...Neskaupstaður er kaupstað-
ur á Austurlandi. I Neskaupstað
em u.þ.b. 1.600 íbúar. Fallegur
fjallahringur, á sumrin er gott að
tína ber.
...besta vinnan hér er í loðn-
unni. Neskaupstaður er kaup-
staður. Bátamir eru margir...
...og það er hátíð hér í
Neskaupstað sem heitir Neista-
flug og það búa 1600 manns í
Neskaupstað og það er gaman í
Neskaupstað. Endilega komdu.
Hársnyrtistofa Maríu Hafnarbraut3
Neskaupstað s.477 1850
Hraðfiystihiís Eskifjarðar óskar
starfsfólki sínu og öllum
Eskíirðiugum
gleðilegs sumars
HRAÐFRYSTIHUS ESKIFJARÐAR HF
Strandgata 39 - 735 Eskifjörður