Austurland


Austurland - 22.04.1998, Side 8

Austurland - 22.04.1998, Side 8
K£A )cttrex\ktur hrx\$$ur Krwbt>viÖ Kvcnnxrföt 05 íslctislwvr A^wrkwr frá Stixfe 11í is dðQ9 frð ki. l O.OO j 0 @477 1609 og 897 1109 Elsta bæjar- og héraðsfréttablað landsins, stofnað 1951 Austurland Neskaupstað 22. apríl 1998. Verð í lausasölu kr. 170. Fyrsta ferðamálaþing Austurlands Það var hátíð á Seyðisfirði föstu- daginn 17. apríl og hófst hún kl. 13.00. Um morguninn hafði ver- ið haldinn aðalfundur Ferða- málasamtaka Austurlands. As- mundur Gíslason, formaður Ferða- málasamtakanna, setti þingið. Flann sagði það enga tilviljun, að þetta fyrsta Ferðamálaþing væri haldið á Seyðisfirði. Seyðfirð- ingar hefðu í meira en tvo ára- tugi verið í fararbroddi og bæri þar hæst ferjusiglingar Norrænu. Flann benti á að viðurkenning og stuðningur stjórnvalda hefði verið í lágmarki sem sæist á því hve langan tíma uppbygging þjónustuhúsnæðis hefði tekið, eða tæpa tvo áratugi. Einnig hefði ekki komið bundið slitlag á Fjarðarheiði fyrr en á sl. ári. Aðalmálin á dagskrá fundar- ins voru: a) Gönguleiðir á Austurlandi. b) Ahrif virkjana norðan Vatnajökuls á ferðamennsku á Austurlandi. c) Ferðaþjónusta á Austur- landi í nútíð og framtíð. Alls voru frummælendur á fundinum 10. Eftir hvern þessara dagskrár- liða svöruðu frummælendur fyrirspurnum. Margt kom fram í öllum þessum málaflutningi og ólík viðhorf, s.s. í virkjunarmál- um og áhrifum þeirra á þennan atvinnuveg. Almennt voru ræðu- menn þó bjartsýnir á vöxt og viðgang þessarar atvinnugreinar, beri menn gæfu til að stilla saman strengi og líta til heildar- hagsmuna. Síðastur frummæl- enda talaði Jónas Hallgrímsson, og flutti kröftuga hvatningartölu. Asmundur formaður sagði að loknum fundi að hann væri mjög ánægður. Þetta fyrsta Ferða- málaþing hefði tekist vel, aðsókn hefði verið góð, móttökur frábærar, málflutning- ur vandaður og hvetjandi og stefnan sett í rétta átt. J.J. ME frumsýnir Hárið Leikfélag Menntaskólans á Egilsstöðum frumsýndi söngleikinn Hárið í leikgerð Baltasars Kormáks og Davíðs Þórs Jónssonar og þýðingu Davíðs síðastliðið sunnudagskvöld og var uppselt á sýninguna. Fimmtán leikarar taka þátt í sýningunni, ásamt fjögurra manna hljómsveit og öðrum, en alls er það um 25 manna hópur sem stendur að verkinu. Æfingar hafa staðið yfir síðustu fjórar vikur. Vegna hins stutta æfingatíma sem leikfélagið hafði, hefur verið unnið myrkranna á milli og oft hefur verið handagangur í öskjunum. Leikstjóri sýningarinnar er Gunnar Gunnsteinsson, sem leikstýrði á síðasta skólaári verkinu „Þetta snýst ekki um ykkur“. Aðstoðarleikstjórn, framkvæmdastjórn og sýningarstjórn er í höndum Unnars Geirs Unnarssonar. A myndinni sjást þeir Guðmundur Magni Asgeirsson og Sindri Þorkelsson í hlutverkum George Berger og Claude. Ljósm. as Yngsti framboðslisti landsins Óskalistinn á Fáskrúðsfirði hefur tilkynnt framboðslista sinn. Fyrsta sæti listans skipar Helgi Guðjónsson, vélvirkja- nemi. Önnur sæti skipa: 2. Ólafur Níels Eiríksson, vélvirkjanemi. 3. Eygló Ægisdóttir, snyrti- fræðingur. 4. Kristmundur Sverrir Gestsson, sjómaður. 5. Sunna Lind Smáradóttir, verkamaður. 6. Málfríður Hafdís Ægis- dóttir, húsmóðir. 7. Steinar Grétarsson, vél- virkjanemi. 8. Sólveig Þ. Sigurðardóttir, húsmóðir. 9. Guðjón Baldursson, verka- maður. 10. Hanna Guðbjörg Þor- grímsdóttir, verkamaður. 11. Gunnar Óli Ólafsson, nemi. 12. Haraldur Leó Pétursson, verkamaður. 13. Grétar Helgi Geirsson, vélvirkji. 14. Bjami Sigurðsson, verka- maður. Ólafur Níels Eiríksson sagði í samtali við blaðið að það væri mikil stemmning í kringum listann og það væri víst að hann kæmi manni að og jafnvel gæti farið svo að bæjarfulltrúar Óska- listans yrðu tveir að kosningum loknum. En við stefnum fyrst og fremst að því að koma manni að, sagði Ólafur Níels, fulltrúi yngsta framboðslista landsins í kom- andi sveitarstjórnarkosningum, en meðalaldur frambjóðendanna er liðlega 21 ár. Slippfélagið Málningarverksmiðja QskaÝ oiðskitoiaoinuni sínuttt 00 /4íiS£fiiÝðif10UM ÖUtiM 0ÍeðUc.0s sumaýs SIMI: 588 8000 1 Nýsmíði úr stáli og áli -SVN Vélaverkstæði M 477 1603

x

Austurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.