Austurland - 30.04.1998, Qupperneq 5
FIMMTUDAGUR 30. APRIL 1998
5
ÞRASAÐ VIÐ ÞOKUNA
Þegar dagar, og jafnvel vikur,
líða án þess að fjölmiðlar vorir
kunni að segja oss nokkur
tíðindi af pilsaveiðum
Bandaríkjaforseta, fyrr eða
síðar, hljóta stórir atburðir að
hafa gerst í faðmi fjallkonu
hinnar fríðu norður á
veraldarhjara. Orð að sönnu. Vér
íslendingar höfum fengið um
lítið eitt annað að hugsa um sinn.
Loksins, loksins hefur verið gerð
stór uppgötvun á landi voru, því-
lík óhagganleg staðreynd af-
hjúpuð að hún mun ekki
gleymast nokkrum þeim
Islendingi, sem farinn var að
muna eftir sér á síðasta tugi 20.
aldar, meðan öndin flöktir í
vitum hans. Uppgötvun þessi er
raunar afar einföld, eins og svo
mörg önnur afrek mannsandans
reynast vera þegar öllu er á
botninn hvolft; semsé: Lífið er
alls ekki saltfiskur heldur lax.
Svo er fyrrverandi stjórum
Landsbanka Islands fyrir að
þakka. Þar skutu þeir Laxness og
Sölku Völku ref fyrir rass, og
þarf nokkuð til óneitanlega. Fátt
eitt verður hér tíundað af því
sem þegar hefur verið sagt og
skrifað varðandi uppgötvun
þessa enda fyllti allt það efni
ugglaust væna bók, væri því öllu
smalað í einar kvíar. A hinn
bóginn hlýtur einkennileg þögn
um eitt smáatriði varðandi mál
þetta að vekja nokkra athygli.
Einn af fulltrúum í bankaráði
Landsbanka Islands hefur stað-
hæft að tiltekið ár hafi innan
þess vébanda verið samþykkt „...
að beina því til bankastjómar að
öllum laxveiðum á vegum bank-
ans verði hætt“. Þessu svarar
einn af bankastjórunum í frægu
viðtali í M.b. 17. apríl s.l. svo
segjandi:
„Þetta er rangt. Hið rétta er,
að hún Kristín litla Sigurðardótt-
ir hóf þessa umræðu í bankaráði
og kom með þessa hugmynd úr
prjónaklúbbi Kvennalistans. Það
var hins vegar engin samþykkt
gerð í þessa vem og engu beint
til bankastjómar...“.
Það er vert eftirtektar að
hvorki bankaráðsfulltrúinn né
dírektörinn fyrrverandi vísar í
skriflega heimild um upptöku
þessa máls í ráðinu né afgreiðslu
þess.
Leyfist fáfróðum sveitamanni
að bera fram nokkrar litlar og
einfaldar spurningar viðvíkjandi
máli þessu?
1. A bankaráð Landsbanka
Islands ekki í fórum sínum
fundagerðabók sem hægt er að
fletta upp í og sýna þjóðinni,
nákvæmlega, hvenær mál þetta
var borið upp í ráðinu og hverja
afgreiðslu það hlaut?
2. Hafi nefnt bankaráð enga
slíka bók undir höndum, eru
,Z-í
fundir þess þá haldnir í
einhverskonar prjónaklúbbs-
formi þar sem ekkert er bókað?
Eg hélt að ekki væri til svo
aumur félagsskapur í landinu
eða léleg nefnd að ekki hefði
fundagerðabók í fórum sínum
ellegar sendibréfsfæran mann
innan seilingar er gæti klórað
upp læsilega fundargerð.
3. Og vel á minnst. Hvað
gerði nýfráfarin bankastjóm við
bréf frá endurskoðanda bankans
varðandi tiltekið mál sem hann
hafði oftar en um sinn vakið
athygli hennar á? Áttu fullmekt-
ugir ekki einu sinni til möppu-
tötur í fómm sínum til þess að
halda þvílíkum pappírum til
haga?
Að lokum ein spuming enn
um gerðabók bankaráðs hafí hún
verið til?
Kom kannski einhver lón
Marteinsson á næturþeli og stal
henni? Sé svo er vonandi að
hann skili henni aftur svo að hún
bjargist frá glötun ekki síður en
Skálda forðum úr eldi Kaupin-
hafnar. S.Ó.P.
Lífeyrissjóður
Austurlands
óskar austfirsku alþýðufólki allra
heilla á baráttudegi þess
1. maí
LÍFEYRISSJÓÐUR ‘
AU STURLANDS
Enginn fulltrúi framsóknar á
Seyðisfirði gefur kost á sér
Enginn núverandi bæjarfulltrúi
Framsóknarflokksins á Seyð-
isfirði sækist eftir endurkjöri í
komandi sveitarstjómarkosning-
um en Þorvaldur Jóhannsson
bæjarstjóri er í heiðurssæti
listans. Nú eru níu fulltrúar í
bæjarstjórn Seyðisfjarðar en
verða sjö næsta kjörtímabil.
Meginástæður þess að bæjar-
fulltrúm fækkar er sú að íbúum
kaupstaðarins hefur fækkað
nokkuð og stjórnkerfi bæjarins
hefur verið gert skilvirkara með
fækkun nefnda og stjómsýslan
öll opnari og nútímalegri.
Listi framsóknarmanna verð-
ur þannig skipaður:
1. Friðrik Aðalbergsson,
rennismiður
2. Sigríður Stefánsdóttir, sím-
ritari
3. Vilhjálmur Jónsson, deild-
arstjóri
4. Lára G. Vilhjálmsdóttir,
húsmóðir
5. Ingibjörg Svanbergsdóttir,
skrifstofustjóri
6. Sigríður Heiðdal Friðriks-
dóttir, nuddfræðingur
7. Unnarr B. Friðriksson,
vélsmiður
8. Sigurður Ó. Sigurðsson,
vélsmiður
9. Snorri Jónsson, verkstjóri
10. Bjarney Emilsdóttir,
ræstitæknir
11. Jón Bjartmar Ólafsson,
verkamaður
12. Jóhann Pétur Hansson,
ritstjóri
13. Jónas Hallgrímsson,
framkvæmdastjóri
14. Þorvaldur Jóhannsson,
bæjarstjóri
J.J
S enclum starfs fólki
okkar ogf launafólki
um land allt
keillakveðj ur
á karáttudegfi
verkalýðsins
Síld
lan kf.
arvmnslan
Neskaupstaá