Austurland


Austurland - 30.04.1998, Side 7

Austurland - 30.04.1998, Side 7
FIMMTUDAGUR 30. APRIL 1998 7 1. maí ávarp iðnnemasambands Austurlands Fjögur komma sjö prósent af engu er ekkert! Iðnnemasamband Islands, hvað er það spyrja kannski sumir. Iðnnemasambandið er einn lið- urinn í kjarabaráttu Islendinga og berst fyrir kaupum og kjörum Iðnnema. Þegar líða fer að 1. maí fara verkalýðsfélögin að taka upp gömlu kröfuspjöldin og dusta af þeim rykið. En oft þegar farið er í gegnum gömlu spjöldin kemur í ljós að oftar en ekki má nýta þau gömlu aftur. Iðnnemar hafa nú oftast haldið á sömu spjöldunum ár eftir ár. Þrátt fyrir að nýlega hafi verið gerðir kjara- samningar eru iðnnemar enn að súpa seyðið af þeirri svívirðilegu aðför sem gerð var að fram- færslugetu iðnnema árið 1986 þegar hlutfallstenging við sveina- kaup var afnumið. I kjarasamn- ingum það ár seldi Alþýðusam- band Islands nemanda fyrir eitt- hvað bitastæðara og hefur kaup iðnnema rýrnað um 30% á und- anfömum áratug í samanburði við laun sveina. Vinnuveitendasambandið hef- ur aldrei viðurkennt samningsrétt Iðnnemasambandsins og hafa hunsað kröfur iðnnema hvað eft- ir annað. Ljóst er að vinnuveit- endur munu seint sjá sóma sinn í því að greiða nemum lágmarks framfærslulaun. Sú hugsun læð- ist að manni að vinnuveitendur standi í þeirri trú að iðnnemar þurfi ekki sömu lágmarkslaun og aðrir. Það hlýtur því að vera okk- ar metnaðarmál að leiða launa- greiðendur í sannleika um það að iðnnemar þurfa að borða jafn mikið. Iðnnemar borga einnig sömu leigu og annað vinnandi fólk og gera sörnu kröfur til lífs- ins og hinn almenni launþegi. Þær tölur sem þjóðhagsstofnun er að birta um lágmarksframfærslu á líka við um iðnnema. Fjögur komma sjö prósent af engu er ekkert. Þetta geta flestir sem lokið hafa grunndeild í iðnskóla staðfest og sannreynt. Engu að síður er flest- um iðnnemum boðin sama pró- sentuhækkun og öðrum og mega þeir teljast ánægðir að fá fimm- hundruðkall auka í launaumslag- ið. Margir iðnnemar sem þóttust geta veitt sér eina bíóferð í mán- uði að loknum kjarasamningum urðu fyrir vonbrigðum því allir vita að fimmhundruð kall dugar ekki fyrir bíómiða, hvað þá poppi og kóki. Ekki svo að skilja að aðal krafa Iðnnemasambands Islands sé bíóferð fyrir alla iðn- nema, en að geta fætt sig og klætt hefur löngum þótt sjálfsögð mannréttindi. Þau mannréttindi eru brotin á iðnnemum. Um þessar mundir keppast verkalýðsfélögin við að lýsa yfir ágæti samninganna. Alþýðusam- bandið hefur talað um tímamóta- samninga og vinnuveitendur þykjast hafa verið hlunnfamir. Við spyrjum hvað tímamóta- samningar eru það sem gefa verkafólki 70 þúsund króna lágmarkslaun þegar framfærslu- þörfin er 120 þúsund. Þetta eru samningar sem færa verkafólk aðeins nær því að geta lifað af laununum, ekkert meira. Við lif- um í þjóðfélagi þar sem forráða- mennimir em með fleiri hundruð þúsunda króna í mánaðarlaun og skammta sér brauðið eftir henti- semi. Þegar kemur að kjara- samningum hinna almennu laun- þega virðist svo ekkert vera eftir til að spila úr og almenningur þarf að láta sér lynda lúsalaun. Það er veikt þjóðfélag sem sýnir hinu vinnandi fólki slíka lítils- virðingu. Það er veikt þjóðfélag þar sem forystumenn verkalýðs- hreyfingarinnar tala um tíma- mótasamninga þegar fólk þarf að vinna 16 tíma vinnudag til að eiga fyrir brýnustu nauðsynjum. Það hefur lengi þótt kurteisis- leg venja í kosningabaráttu að minnast á bætta iðn- og starfs- menntun en það hefur aldrei þótt til siðs að fylgja því eftir. Þjóðin stendur nú frammi fyrir því að megnið af verkafólki er ófaglært og stendur það ekki til bóta. Reyndar hafa verið byggðir tveir verkmenntaskólar á heimsmæli- kvarða á undanfömum ámm en fjármagnið á þá að sækja beint í vasa nemendanna. Skólagjöld hafa verið hækkuð, efnisgjöld hafa aukist og nú síðast datt Bimi það snjallræði í hug að mkka nemendur sem ekki stand- ast próf um fallskatt. Þegar nem- endur kvarta er þeim bent á að þeir em ekki lengur skyldugir að greiða skólafélagsgjöld og þurfa því ekki að taka neinn þátt í félagsstörfum innan skólans nema þeir hafi efni á því. Iðnnemasambandið hefur lengi bent á þörfina fyrir betri námsráðgjöf í grunnskólum. Til þess að fá hæfustu einstakling- ana til að stunda iðn- og verk- nám þarf að gera nemendum grein fyrir þeim möguleikum sem bjóðast. Nauðsynlegt er að afnema efniskostnað í iðnnámi en dæmi em um að iðnnemar þurfi að greiða allt að 100 þúsund krónur í efniskostnað á ári hverju. Það sjá það því allir að ekki ríkir jafnrétti til iðnnáms frekar en annars framhaldsnáms. Á fyrsta maí 1998 er það krafa Iðnnemasambands íslands að hverjum og einum sé gert mögulegt að stunda það nám sem hugurinn stendur til. Iðn- nemar krefjast þess að vera metnir að verðleikum og fá greitt samkvæmt vinnuframlagi. Við krefjumst þess að geta bæði menntað okkur og borðað. Við munum ekki sætta okkur við þá svívirðu að vera metin ódýrt vinnuafl. Stefnuþing Fjarðalistans Fjarðalistinn boðar til stefnuþings laugardaginn 2. maí nfe. Þingið verður háð í Safnaðarheimilinu á Reyðarfirði og hefst fel. 13.00. Þingið sitja frambjóðendur Fjarðalistans en allir félagsmenn í Fjarðalistanum eru velfeomnir til að tafea þátt í stefnumótun fyrir næsta fejörtímabil. Stefnusferárnefnd Fjarðalistans Iðnaðarhúsnæði Til sölu er iðnaðarhúsnæði að Urðarteigi 22, Nesfeaupstað, um 290 ferm. Eignin selst í einu lagi eða í minni einingum. / 1 > r- l \ Upplýsingar í síma 477 1237 Gunnar 477 1190 Rúnar Sendum starfsfólki okkar og launafólki um land allt heillakveðjur á baráttudegi verkalýðsins 1. maí Hönnum vefsíður fyrir fyritceki, stofnanir og einstaklingq ELDSMIÐURIIXIN Sími: 478-1600 webmaster@eldhorn.is Netagerð Friðriks Vilhjálmssonar hf. Neskaupstað Launþegar Til hamingju meö 1. maí Kusfurland

x

Austurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/808

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.