Austurland - 30.04.1998, Síða 11
FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1998
11
1. maí ávarp stéttarfélaganna í Neskaupstað 1998
Stéttarfélögin í Neskaupstað flytja íslenskri alþýðu baráttukveðjur í dag, 1. maí
í dag, á alþjóðlegum baráttudegi
verkafólks, sameinast launafólk
um allan heim í baráttunni fyrir
betri framtíð. Hvert land hlýtur
þó alltaf að hafa sérstakar og
misjafnar aðstæður, og kröfur
dagsins að taka mið af því.
Grunntónninn getur þó aldrei
orðið annar en sá, að vera krafa
um mannsæmandi kjör og skil-
yrðislausan rétt til að lifa með
reisn. Inntak dagsins hefur að
þessu leyti ekkert breyst frá því
að hann var gerður alþjóðlegur
baráttudagur verkalýðshreyfing-
arinnar fyrir rúmum 100 árum.
Vert er að minnast þessa að
verkalýðshreyfingin hefur í gegn-
um tíðina unnið mikilvæga sigra
sem meðal annars hafa lagt
grunninn að öryggi og velferð
þjóðarinnar en í dag virðumst
við í síauknum mæli þurfa að
verja lágmarkskjör okkar með
kjafti og klóm. Við sjáum þetta í
mörgum myndum, meðal annars
eru kjarasamningar til sjós og
lands brotnir. Þegar skoðuð eru
samskipti atvinnurekenda eða
forsvarsmanna þeirra, og verka-
fólks á vinnustöðunum sjálfum,
sést þessi staðreynd vel. Aukin
harka hefur færst í túlkun kjara-
samninga og framkvæmd ýmissa
réttinda sem eiga að vera tryggð
samkvæmt lögum. Otal dæmi
væri hægt að taka til, en til
marks um eitt þeirra má nefna
síaukna ásókn atvinnurekenda í
að ráða til sín fólk sem gervi-
verktaka í þeim tilgangi að
minnka eiginkostnað og áhættu
og varpa henni yfir á launa-
manninn. Meðal annars hefur
þetta birst á undanförum árum
gagnvart sjómönnum í svoköll-
uðu kvótabraski útgerðarmanna
þar sem útgerðarmenn hafa látið
sjómenn taka þátt í kvótakaup-
um þrátt fyrir að slíkt sé bannað
samkvæmt lögum og kjarasamn-
ingum. Mikið hefur verið rætt og
ritað um sukk og svínarí í ýmsum
peningastofnunum landsmanna
undanfarið og eru ábyggilega
ekki öll kurl komin til grafar í
þeim málum. Vonandi fá þeir
réttu að svara til saka þó að síðar
verði. Að afstöðnu sjómanna-
verkfalli hefur vælukjóahætti
útgerðarmanna ekki linnt. Þeir
segjast hafa tapað svo og svo
miklu á verkfalli sjómanna,
jafnvel hafa sést tölur frá þeim
uppá minnkaða veltu um 140
milljónir og afkomurýmun um
40 - 50 milljónir vegna þessa.
Forstjóri útgerðarfyrirtækis
belgdi sig ógurlega út eftir aðal-
fund sinn og sagði í fjölmiðlum
að laun sjómanna sinna kæmu í
veg fyrir að hægt væri að endur-
nýja og fylgjast með tækninýj-
ungum í flotanum sínum. Hann
minntist ekki einu orði á hvað
fyrirtækið fékk í sinn hlut. Þessi
annars harðduglegi og framsýni
útgerðarmaður byrjaði ekki fyrir
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug við andlát og útför
bróður okkar
Guðgeirs Guðjónssonar.
Herdís Guðjónsdóttir,
Sigrún Guðjónsdóttir
og fjölskyldur.
Starfsmaður í heimaþjónustu
Félagsmálastjórinn í Neskaupstað
óskar eftir að ráða starfsmann í
sumarafleysingar í heimaþjónustu
í Neskaupstað frá 1. júlí - 15. september.
Upplýsingar í síma 477 1700
Félagsmálastjórinn
í Neskaupstað
svo ýkja mörgum ámm með einn
gamlan og ryðgaða togara, en í
dag er fyrirtækið útgerðarrisi
sem með hlutabréfavæðingu
teygir sig um allt land og langt út
fyrir landsteinana. Við hljótum
að spyrja okkur hvers vegna
þessir bröttu kallar kusu frekar
að tapa svona miklum fjármun-
um en að ganga til samninga.
Þeirra var valið, og höfðu hátt í
tvö ár til þess en aldrei kom kom
annað en nei frá þeim, eða
forustu þeirra. Einhver hefði
verið látinn flakka fyrir minna
tap og færri nei. Hjá vel reknum
útgerðum og þegar vel fiskast
hafa sjómenn afburða góð laun,
því verður ekki neitað, en hjá
landverkafólkinu verður lítil
breyting. Landverkafólk verður
að gera sér grein fyrir því að
samstaða og barátta fyrir launum
og kjömm verður að koma dl.
Samkvæmt upplýsingum tíma-
ritsins Frjálsrar verzlunar saman-
stendur framkvæmdastjóm Vinnu-
veitendasambands íslands af
einstaklingum sem eru með
tekjur á bilinu frá 800 þús. til
tvær milljónir á mánuði, fyrir
utan alls konar fríðindi. Það
getur vel verið að þeir eigi það
skilið, ekki ætlum við að dæma
um það að svo komnu máli, en
þessir einstaklingar em auðvitað
ekki í stakk búnir eða færir um
að dæma að það sé nóg fyrir
verkamann að hafa 70 þúsund í
mánaðarlaun fyrir dagvinnu.
Verkafólk og annað starfsfólk
atvinnurekenda, sjúkir og
aldraðir: við verðum að sækja
það sem okkur ber af þjóðar-
auðnum. Þjóðfélagsumræðan
hefur sýnt það undanfarið svo
ekki verður um villst að nógir
peningar eru til í þjóðfélaginu
fyrir alla. Höfnum niðurskurðar-
hnífi stjómvalda.
Gleðilega hátíð
1. maí nefnd stéttarfélaganna
í Neskaupstað
Samkeppni um veggspjald í tilefni af ári hafsins
í lok síðasta árs skipaði
sjávarútvegsráðherra
starfshóp til að koma
með tillögur um við-
burði í tilefni af því að
Sameinuðu þjóðirnar
ákváðu að árið 1998
skyldi verða ár hafsins.
A vegum hópsins var
efnt til opinnar sam-
keppni um veggspjald
undir yfirskriftinni, „Haf-
ið - líf á okkar ábyrgð".
Samkeppnin var haldin í
samvinnu við Félag ísl-
enskra teiknara og var
öllum heimil þátttaka.
Hinn 15. apríl var haldin sýning á innsendum
tillögum og úrslit tilkynnt. Sérstök dómnefnd var
skipuð og var hún einhuga um að velja tillögu
merkta „Öngull" en höfundur hennar er Björn
Jónsson, grafískur hönnuður.
Björn Jónsson með veggspjaldið sem sigraði í
keppninni.
Rökstuðningur dóm-
nefndar
Tillaga „Önguls“ er góð
útfærsla á góðri hug-
mynd, skýr og einföld,
skilaboðin augljós og
grafískt yfirbragð nú-
tímalegt og sterkt. Lífið
verður til í hafinu, fram-
tíð mannkyns og hafs er
samtvinnuð. Hafið er
undirstaðan, uppspretta
lífsins. Textaborði mynd-
ar ölduform sem skilur
að mann og fisk. Litimir
eru einfaldir og táknræn-
ir; hafið kalt, mannlífið
heitt. Tillagan nýtur sín einnig vel í smærra formi
sem póstkort. Myndefnið vekur jákvæð hughrif
hjá skoðandanum og eykur skilning hans á
mikilvægi þess að ganga vel um lífríki hafsins.
Sendum starfiólki okkar og
launafólki um land allt
heillakveðjur
á baráttudegi
verkalýðsins
1. maí
HRAÐFRYSTIHUS ESKIFJARÐAR HF
Strandgata 39 - 735 EskiQörtur