Austurland - 06.05.1998, Blaðsíða 6
6
FIMMTUDAGUR 6. MAI 1998
Næsta Öldungamót í blakl haldlð í Neskaupstað
Lið Austra og Þróttar við Strákagöngin. Þegar karlalið Þróttar hœtti á síðustu stundu við þátttöku
urðu norðanmenn nijög reiðir og haft var á orði að nœsta mót yrði ekki fyrir austan. Búið var að
gera skiltið fyrir ofan göngin, sem á stendur: Þökkum komuna, sjáumst fyrir austan, og sagði
málarameistarinn á Siglufirði að hann gerði sko ekki annað. Mótið verður þvífyrir austan á nœsta
ári. Ljósm. Grímur
Næsta Öldungamót í blaki verð-
ur haldið í Neskaupstað á næsta
ári. Þetta var samþykkt á Öld-
ungaþinginu á Siglufirði í síð-
ustu viku en þá fór 23. Öldunga-
mótið í blaki fram þar í bæ. Mót-
ið, sem er stærsta blakmót sem
haldið er á landinu, hefur enn
ekki verið tímasett en trúlega
verður það haldið unt mánaða-
mótin apríl - maí. Þetta verður í
fyrsta skipti sem þetta mót er
haldið á Austurlandi enda hefur
ekki fyrr en á síðasta ári verið
hægt að halda þessa stærð af
mótum hér eystra vegna þess
húsakosts sem var. A Siglufirði
tilkynntu 70 lið þátttöku og er
það mesta þátttaka frá upphafi
en þegar mótið var haldið á
Siglufirði fyrir 6 árum voru liðin
42. Af þessu má sjá á hverju er
von á næsta ári.
Öldungamót var fyrst haldið í
Reykjavík árið 1976. Þá mættu
til leiks 11 lið í karlaflokki.
Næstu árin var þátttakan svipið
og aðeins leikið í karlaflokki.
Árið 1980 koma kvennaflokk-
arnir inn og sex árum seinna eru
þátttökuliðin orðin 31, nítján
karlalið og tólf kvennalið. Síðan
hefur kvenfólkinu fjölgað mjög
mikið og í ár voru karlaliðin 23
en kvennaliðin 47.
Austfirðingar áttu fjögur
kvennalið á mótinu, tvö frá Nes-
kaupstað og sitt hvort liðið frá
Eskifirði og Hornafirði. Ekkert
þessara liða vann til verðlauna.
Á Öldungamóti er keppt í
tveimur karladeildum og fjórum
deildum kvenna auk Öldunga-
og Ljúflingadeildum karla og
kvenna. Allir sem eru 30 ára og
eldri eru gjaldgengir í lið hafi
þeir ekki leikið í fyrstu deild
karla eða kvenna á keppnistíma-
bilinu nema þeir séu 35 ára eða
eldri á keppnisárinu.
Öldungamótið í blaki er kap-
ítuli út af fyrir sig. Mótið er
stærra en hið hefðbundna ís-
landsmót og að auki er verið að
halda Öldungamót víðs vegar
um landið allan veturinn. Haft
Kristján Möller og Öldungurinn Hörður Júlíusson á góðum degi,
en þeir báru hita og þunga afmótinu á Sigló. Ljósm. Eg.
Lofa sæluvist með Erni Inga
Sjálfstæðismenn og kennarar
Félagar í Listasmiðju Norð-
fjarða, lofa samkvæmt auglýs-
ingum frá þeim, áframhaldandi
sæluvist fyrir lengra komna,
með Erni Inga myndlistarmanni
en Listasmiðjan mun gangast
fyrir myndlistarnámskeiði í
Þórsmörk dagana 20. - 23. maí
n.k. og verður Örn Ingi mynd-
listarmaður leiðbeinandi. Fyrir
þá sem ekki hafa verið áður er
lofað ævintýralegri byrjun.
Örn Ingi er ekki að leiðbeina
Norðfirðingum í fyrsta skipti. Á
fyrri námskeiðum hjá honum
hefur hvert pláss verið full-
skipað og mikil stemmning
skapast í kringum hann. Efnt
hefur verið til ýmissa uppákoma
í kringum námskeiðin og hefur
það mælst vel fyrir. Frá Nes-
kaupstað fer Örn Ingi til Eski-
fjarðar þar sem hann mun leið-
beina grunnskólanemum í um
viku tíma. Fyrirhugað er svo að
sýna afrakstur þessara nám-
skeiða og efna um leið til ein-
hverra uppákoma.
Þeim sem vilja fræðast nánar
um myndlistarnámskeiðið er
bent á að hafa samband við
félaga í Listasmiðjuni.
Það hefur ekki farið framhjá
nokkrum manni að sveitarstjóm-
arkosningar em framundan. Bækl-
ingar flokkanna fljóta inn um
bréfalúguna. Eg er nú ekki þekkt
fyrir að vera mikið í pólitík en
les flokksblöðin, því ég verð jú
að vita hvað ég á að kjósa!
Þar sem ég hef kennara-
menntun að baki þá rak mig í
rogastans þegar ég las greinina
„Að höggva á hnútana eða leysa
þá“ í fyrsta tölublaði „Bæjarins
okkar“, málgagni Sjálfstæðis-
flokksins. Þar stendur orðrétt:
„Sjálfstæðismenn munu
auglýsa stöðu bæjarstjóra ef
þeir fá nokkru um ráðið.
Líklegast er að leitað verði að
manni með verkfræðimennt-
un eða menntun á sviði
stjórnunar og viðskipta. Við
útilokum ekkert en ólíklegt
telst að kennaramenntaður
maður verði talinn heppileg-
asti valkosturinn sem býðst“.
Þvflík skrif. Eg hef nú bara
aldrei séð annað eins. Ég get
ekki með nokkru móti skilið
hvers vegna kennaramenntaður
maður er verr til þess fallinn að
stjórna bæjarfélagi en verkfræð-
ingur. Ég hefði gaman af að fá
að vita hver skrifar svona, því að
greinin er auðvitað nafnlaus.
Mér finnst alveg með ólíkindum
að pólitískt afl í sveitarstjórnar-
kosningum skuli láta svona frá
sér. Ég hugsaði með mér, ég
verð nú að lesa greinina alla til
að fá einhvem botn í þetta mál.
En ég varð engu nær, þessu er
slegið fram í blúnduumbúðum,
„...við útilokum ekkert“ og ég
get ekki séð að það sé í nokkru
samhengi við annað það sem
stendur í greininni. Ég er nýflutt
hingað í bæinn og því er hugsan-
legt að hér séu einhver skrif í
gangi manna á rnilli, sem ég ekki
skil. Ef svo er þá er ég ekki inni
í þeim málum, enda þykir mér
málgagnið eiga að vera öllum
skiljanlegt, aðfluttum sem inn-
fæddum. Við eigum jú öll sama
atkvæðisréttinn.
Ég tek þetta auðvitað sérstak-
lega nærri mér því að mér finnst
vegið að mér og minni starfs-
stétt. Þrált fyrir það er full ástæða
til að velta þessu upp. Ég hefði
gaman af því að fá að vita hver
skrifar þessa grein og hvað sá
hinn sami er að fara. Ef verið er
að skjóta á núverandi bæjar-
stjóra Neskaupstaðar þá er hann
ekki kennaramenntaður, auk
þess er bæjarstjóri Egilsstaða-
hefur verið á orði að ef ekki
verði veruleg breyting á starfi
Blaksambands Islands og sam-
bandsfélaga þess verði einungis
öldungablak á Islandi í náinni
framtíð. Á þinginu á Siglufirði
var flutt tillaga um stuðning við
yngriflokkastarf félaganna og er
það vel.
Það er ljóst að þeir sem hafa
munu framkvæmd mótsins í
Neskaupstað með höndum hafa í
mörg hom að líta. Fyrst ber að
líta til þess að það þarf að útvega
um 500 manns gistingu. Vænt-
anlega munu skólarnir verða
notaðir en margir vilja betri gist-
ingu og margir húseigendur á
þeim stöðum þar sem mótið
hefur verið haldið hafa flutt út á
meðan á mótinu stendur og leigt
hús sín og íbúðir. Að leika í einu
húsi er ákaflega erfitt og því
verður að öllum líkindum leikið
bæði í Neskaupstað og á Eski-
firði og e.t.v. á Reyðarfirði líka.
I tengslum við hvert mót er
kjörinn Öldungur. Sá hefur það
vald að ákveða hvenær mótið er
haldið og ber jafnframt ábyrgð á
framkvæmd mótsins. Hann fær
afhentan forláta stein sem á er
klukka og á steininum stendur:
Öldungur haltu vöku þinni. Á
mótinu var Hörður Júlíusson,
Siglufirði, Öldungur en í ár er
það Elma Guðmundsdóttir, Nes-
kaupstað.
bæjar, Helgi Halldórsson, kenn-
aramenntaður og sjálfstæðis-
rnaður í ofanálag. Höfundur
greinarinnar hefur kannski eitt-
hvað út á hann að setja? Ég held
að menn ættu að vinna heima-
vinnuna sína betur þegar þeir eru
að skrifa greinar af þessu tagi.
I lokin verð ég að koma því
að, að Sjálfstæðisflokkurinn
hefði gott af kennaramenntuðum
manni í sínar raðir þó að ekki
væri nema bara til að prófarka-
lesa greinarnar í kosningablað-
inu. Þær eru hræðilega illa
skrifaðar svo ekki sé talað um
stafsetninguna og myndi ekki
nokkur vel menntaður maður
(kennaramenntaður!!!) senda
slíkt frá sér.
Sigrún Helga Snœbjörnsdóttir
kennari Nesskóla
Neskaupstað