Austurland - 14.05.1998, Side 8
Elsta bæjar- og héraðsfréttablað landsins,
stofnað 1951
Austurland
Neskaupstað 14. maí 1998. Verð í lausasölu kr. 170.
Sérstakur menningadagur var haldinn á Héraði laugardaginn 9 maí sl. Boðið var upp á margskonar
menningarviðburði, m.a. myndlistarsýningar, tónlist, dans og fleira. Einnig var skipulagt
Ijósmyndamaraþon í boði Myndasmiðjunnar, en þar bar sigur úr býtum Alex Helgason og hlaut
hann Canon EOS 500 myndavél í verðlaun.
Einnig bauðst gestum og gangandi að taka þátt í að skreyta svonefnt ,Jjöregg“ og eins og myndin
hér að ofan sýnir sýndu einstaklingar á öllum aldri listrama hœfileika sýna við skreytinguna. Að
öðrum viðburðum ólöstuðum vakti þó fegurðarsamkeppni gœludýra sem fram fór í Hérðasheimilinu
Valaskjálf. Þar gat liver sem er komið með gœludýrin sín, hvort sem um var að rœða fugla, fiska,
hunda, ketti eða eitthvað annað. T.d. vakti hunangsfluga nokkur sem keppti í vœngjaflokki mikla
athygli þó hún liafi ekki náð að sigra. Að sögn Sigurðar Mar Halldórssonar, en hann tók þátt í
undirbúningi menningadagsins, fór þátttaka og mœting á marga liði menningadagsins fram úr
björtustu vonum og Ijóst að leikurinn verður endurtekinn að ári. Ljósm. as
Um 1000 manns á tveimur landsleikjum
Landsleikir íslands við Japani
sem fram fóru í Neskaupstað og
á Fáskrúðsfirði urn síðustu helgi
tókust með miklum ágætum. I
fyrsta skipti unnu íþróttafélögin
á þessum stöðum saman að
undirbúningi leikjanna og mót-
töku liðanna og sveitarstjórnir
beggja staða stóðu að baki
félögunum. Þessi samvinna tókst
með miklum ágætum og ekki
spillti það fyrir að íslenska liðið
sigraði í báðum leikjunum.
Það spillti nokkuð fyrir að-
sókn í Neskaupstað að leikurinn
var klukkan níu að kvöldi, á
sama tíma og Söngvakeppni evr-
ópskra sjónvarpsstöðva, þannig
að seldir aðgöngumiðar í Nes-
kaupstaðar voru aðeins um 450,
en það er um 300 færri en á
landsleikinn við Dani í haust.
Ahorfendafjöldinn á Fáskrúðs-
firði slagaði upp í fjöldann í
Neskaupstað. Kostnaður við
hingaðkomu liðanna og öðru
sem því fylgdi skiptist jafnt á
staðina og þá um leið félögin.
Þessi samvinna Leiknis og
Þróttar, í sérstakri samvinnu við
sveitarstjórann á Fáskrúðsfirði
var til fyrirmyndar og hlýtur að
verða vísir að meiri samskiptum
félaganna í framtíðinni. Það var
allra hagur að fara þessa leið því
óneitanlega kostar mikið að fá
svona leiki hingað austur
SUppfélaqið
Málningarverksmiðja SÍMI: 588 8000
Varað við nýjum lífeyrissjóðum
Aðalfundur FOSA Félags opin-
berra starfsmanna á Austurlandi
beinir þeim tilmælum til sveit-
arstjórna á Austurlandi að ekki
verði rasað um ráð fram í líf-
eyrissjóðsmálum starfsmanna
sveitarfélaganna. Þetta var sam-
þykkt á aðalfundi félagsins sem
haldinn var á Reyðarfirði s.l.
laugardag.
í samþykktinni er bent á
þrýsting frá Launanefnd sveit-
arfélaganna um stofnun á nýjum
lífeyrisjóði, sem gengur þvert á
fyrri hugmyndir og umræður um
fækkun lífeyrissjóðanna. Þá
segir einnig að stofnun nýs
lífeyrissjóðs hljóti að veikja þá
sem fyrir eru og sé það
öfugþróun. Jafnframt er bent á
þá ósvífni sem kemur fram í því
að ekkert samráð hefur verið
haft við stéttarfélögin í þessu
máli, en þau eru þó fulltrúar
þeirra launþega sem m.a. undir
sjóðunum standa.
Nœsta tölublað
Austurlands
kemur út
föstudaginn
22. maí.
Karlinn í tunglinu 98
Karlinn í tunglinu er listahátíð
barna á Austurlandi, haldin á
Seyðisfirði. Að þessu sinni
verður efnt til sýningar þrívíðra
listaverka leikskólabarna á
Austurlandi. Leikskólarnir sem
taka þátt, þurfa að vinna þrjú
verk í samræmi við settar reglur
hátíðarinnar. Verkum skal skila
til uppsetningar eigi síðar en 10.
júní n.k. og þátttöku skal
tilkynna eiga síðar en á morgun,
15. maí.
Dómnefnd skipuð 5 mönn-
um mun skoða verkin og veita
verðlaun fyrir þau verk sem hún
metur skemmtilegust. Allir fá
viðurkenningarskjal fyrir þátt-
töku. Þrenn veðlaun verða veitt í
hverjum flokki og verða verð-
launin þess eðlis að þau koma
leikskólunum vel. Fyrir bestu
heildarútkomuna að mati dóm-
nefndar verður veittur sérhann-
aður verðlaunagripur „Karlinn í
tunglinu '98“. Sýning á verkun-
um verður síðan opnuð almenn-
ingi á Menningardegi barna.
Sýningin verður í félagsheimil-
inu Herðubreið og hefst 21. júní.
J.J
Vopnafjörður ekki
lengur á Austurlandi
Samkvæmt kenningum íslands-
pósts er Vopnafjörður ekki leng-
ur í Austurlandskjördæmi. Há-
effið hefur tekið fram fyrir hend-
ur ríkisvaldsins í þessum efnum
og íbúa Vopnafjarðar lika. Skýr-
ing: Póstburðargjöld frá Nes-
kaupstað til Vopnafjarðar eru
skilgreind sem utan fjórðungs og
því þarf að greiða hærri burðar-
gjöld þangað en t.d. til Horna-
fjarðar, en þangað er þó mun
lengra. Geðþóttaákvörðun stjóm-
enda Islandspósts eins og allt
annað. Það er ekki nóg með að
póstburðargjöld hafi hækkað
upp úr öllu valdi við há-effið,
heldur hefur og þjónustan versn-
að. Skýring: Bréf póstlagt á
Siglufirði 17. apríl kom í hendur
viðtakanda í Neskaupstað að
morgni dags 22. sama mánaðar!
Hvað segir ekki í auglýsingunni,
pósturinn ykkar á einum degi.
Af gefnu tilefni þá er hér ekki
verið við starfsfólk á pósthús-
unum að sakast, en það hefur
gerst að það hefur tekið skrif
blaðssins um póstþjónustuna,
sem persónulega árás. Hér er
verið að tala um óréttlæti, okur
og miður góðrar þjónustu.