Austurland - 22.05.1998, Page 1
Grandi þriðji stærsti
hluthafinn í HE
Grandi hf. í Reykjavík hefur
keypt hlutabréf í Hrað-
frystihúsi Eskitjarðar fyrir
um 250 milljónir króna, eða
um 7.14% hlut í fyrirtækinu.
Grandi hf. er þar með orðinn
þriðji stærsti eigandinn í HE
á eftir hjónunum Aðalsteini
Jónssyni og Guðlaugu Stef-
ánsdóttur.
Tvö tilboð í leikskóla
í síðustu viku voru opnuð
tilboð í byggingu leikskóla á
Eskifírði. Aðeins tvö tilboð
bárust, bæði frá Egilsstöðum.
Trésmiðjan Einir bauð 57.2
milljónir króna í verkið og
B.K. verktakar ehf. buðu
72.9 milljónir króna. Kostn-
aðaráætlun hljóðaði upp á
66.7 milljónir króna.
Að sögn Arngríms Blön-
dahl bæjarstjóra á Eskifirði er
þessa dagana verið að skoða
tilboðin. Hann sagði að verk-
lok við leikskólann væru
áætluð í mars á næsta ári. Það
er Arkitektastofan Batteríið
sem teiknaði húsið.
Gróðurfarsúttekt í
Reyðarfírði
Tveir umhverfissérfræðingar
á vegum Norsk Hydro komu
til landsins síðastliðinn mánu-
dag til að taka þátt í úttekt á
áhrifum fyrirhugaðs álvers í
Reyðarfirði. Sérfræðingarnir
munu vinna með Náttúru.-
stofu Austurlands, en henni
hefur verið falið að vinna
verkið en ásamt þessum að-
ilum mun Rannsóknarstofn-
un landbúnaðarins einnig
koma að þessu.
Gulllaxinn gefur sig
Barði NK 120, sem hóf
veiðar á gulllaxi í síðustu
viku, landaði í Þorlákshöfn
s.l. þriðjudag. Aflaverðmæti
Barða var urn 24 millj. kr. en
verðmæti gulllaxins var um 6
ntillj. kr. Barði hefur ásamt 6
öðrum skipum verið á
þessum veiðum suður af
Vestmannaeyjum. Vel hefur
aflast og síðustu dagana var
fryst fyrir um eina og hálfa
milljóna króna á sólarhring.
Besti veiðitíminn á gulllaxi
hefur til þessa verið í júní svo
Barði á að geta náð þarna
ágætis afla sem er utan kvóta.
Sameiginlegir fundir allra framboða við sveitarstjórnarkosningarnar á morgun hafa verið haldnir í
Neskaupstað, Eskifirði og Reyðarfirði. Fundirnir hafa verið þokkalega sóttir en að sögn kunnugra lítið frá-
brugðnir fyrri fundum af saina toga. Þessi mynd var tekin á fyrsta fundinum sem haldinn var á Eskifirði.
Ljósm. as
LA óx um 21.3% á siðasta ári
- sjófiurinn hefur átján faldast á 10 árum
Lífeyrissjóður Austurlands óx
um 23.1% á síðasta ári eða sem
nemur 1.8 milljarði króna og er
hrein eign sjóðsins til greiðslu
lífeyris rúmlega 10.5 milljarða
króna. Hrein eign sjóðsins
umfram heildar skuldbindingar
er 5.8% en ef sjóðnum væri
lokað í dag ætti hann rúmlega
35% umfram áfallnar skuld-
bindingar. Fjárfestingatekjurnar
á verðbreytingafærslu hækkuðu
á milli áranna 1996 og 1997 um
277.2 millj. og hefur sjóðurinn
nú tæplega átjánfaldast á tíu
Alls greiddu rúmlega 6000
félagar hjá 701 atvinnurekanda
iðgjöld til sjóðsins á síðasta ári
og námu iðgjöldin alls 672 millj.
kr. Það er 10.7% hækkun frá
árinu á undan. Greiðslur úr
sjóðnum námu tæplega 200
millj. kr. og voru lífeyrisþegar
alls 1080.
Aðalfundur Lífeyrissjóð Aust-
urlands verður haldinn n.k.
mánudag. Þar verður lögð fram
tillaga um að sjóðnum verðir
skipt í tvo hluta, greint verði á
milli landverkafólks og sjó-
inanna. Ennfremur verður lagt til
að margfeldisstuðli sjóðsins
verði breytt og kannaðar verði
frekari útfærslu á starfsemi
sjóðsins í takt við nýja tíma.
Unnið var að gerð myndbands
við lagið Bogus með hljóm-
sveitinni Lhooq í Oddsskarðs-
göngunum aðfaranótt þriðju-
dagsins. Af þessum sökum var
göngunum lokað frá um kl. 11 á
mánudagskvöldið þar til kl. 6.00
að morgni næsta dags.
Það var kvikmyndafyrirtækið
Hreyfimyndasmiðjan sem stóð
fyrir framkvæmdunum. Lagið
Bogus er önnur smáskífan sem
hljómsveitin sendir frá sér af
væntanlegri smáskífu sinni en
hljómsveitin flytur einnig lagið
Loosing hand sem notið hefur
vinsælda hér á landi að undan-
förnu og hlotið hefur góða dóma
í músíkpressunni erlendis, en
hljómsveitin er á mála hjá erl-
endu útgáfufyrirtæki.
Myndbandið sem unnð var
að þessa tilteknu nótt mun
birtast á sjónvarpsskjá lands-
manna eftir u.þ.b. mánuð. og þá
kemur í ljós hvort Oddsskarðs-
göngin eru heppilegur vett-
vangur fyrir tónlistarflutning.
Eftir því sem blaðið best veit
er þetta í fyrsta sinn sem mynd-
band er tekið upp í jarðgöngum
á Islandi, og fróðlegt verður að
sjá hvort framhald verði á slrku.
Slippurinn til G. Skúlasonar
Vélaverstæði G. Skúlasonar í
Neskaupstað tekur við rekstri
dráttarbrautarinnar (slippsins) í
Neskaupstað af Síldarvinnslunni
hf. um næstu mánaðamót. Síld-
arvinnslan hf. framselur leigu-
samning sinn við hafnarsjóð
Neskaupstaðar til G. Skúla-
sonar. Þetta var samþykkt á
fundi Hafnarmálaráðs s.l. þriðju-
dag og samningar milli G.
Skúlasonar og Sfldarvinnslunnar
hf. liggja þegar fyrir.
Vill kaupa Framkaupstað
Bæjarstjórn Eskifjarðar hefur
gert tilboð í hluta Framkaupstað-
ar, en kaupstaðurinn átti fyrir
aðra hæð hússins. Framkaup-
staður var byggður árið 1877 og
er því með elstu húsum á
Eskifirði.
Að sögn Arngríms Blöndahl
bæjarstjóra, var fyrst og fremst
gert tilboð í húseignina vegna
staðsetningar hússins en það
stendur á lóð sem liggur að
dvalarheimili aldraðra. Þessa lóð
þarf bærinn jafnvel að nota.
Hann sagði að húsið væri ekki á
lista sem alfriðað, en að ekki mætti
rífa það án samþykkis Húsafrið-
unamefndar ríkisins Hvort slíkt
samþykki fæst er ekki vitað en
það mun væntanlega koma í hlut
nýrrar sveitarstjórnar að ákveða
hvað gert verður við það.
• •
sviðu
Tacoskeljar og sósur
Sparhakk
Griííkjöt í úrvali
rétt!
Myndbandsgerð
í göngum