Austurland - 11.06.1998, Qupperneq 7
FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1998
7
Nýir Neistaflug-
menn ráðnir
Vangaveltur
Jón Knútur Ásgrímsson, félagsfræðinemi, veltir
fyrir sér vímuefnavandanum
Þeir félagarnir Marías Ben.
Kristjánsson og Bjarni Freyr
Ágústsson hafa verið ráðnir
umsjónarmenn Neistaflugs árið
1998. Að sögn þeirra félaga mun
hátíðin verða með mjög svipuðu
sniði og fyrri ár, þ.e. áherslan
verður lögð á að ná til allra í
fjölskyldunni með fjölbreyttri
dagskrá fyrir alla aldurshópa all-
an daginn. Auðvitað verður há-
tíðin ekki eins og í fyrra og hafa
þeir félagar hug á að koma með
einhverjar nýjungar, og ljóst er
að alltaf verða nýjar áherslur
með nýjum mönnum. Ekkert
verður hinsvegar gefið upp að
svo stöddu hvaða nýjungar þetta
verða.
Samningaviðræður hafa þeg-
ar hafist við landsþekkta skemmti-
krafta og hljómsveitir en ennþá
er ekkert gefið upp um hvaða
skemmtikrafta um er að ræða.
Hinsvegar er ljóst að föstudags-
kvöldið verður í höndum heima-
manna eins og undanfarin ár.
„Þeir listamenn sem rætt
hefur verið við hafa verið mjög
jákvæðir og ljóst er að hátíðin
nýtur velvildar hjá listamönnum
landsins. Margir hafa sýnt því
áhuga að mæta og því Ijóst að
hægt verður að finna góða
listamenn til að skemmta aust-
firðingum um næstkomandi versl-
unarmannahelgi í Neskaupstað“
sögðu þeir félagar að lokum.
Á dögunum var birt skýrsla
um hið svokallaða fíkniefna-
vandamál í Reykjavík. Skýrslan
var byggð á rannsóknum sænsks
sérfræðings sem er sérhæfður í
því að lesa út úr augum einstakl-
inga hvort þeir eru undir áhrifum
ólöglegra vímugjafa. Niðurstað-
an var sú að reykvísk ungmenni
voru með allra versta móti og
líkti sérfræðingurinn ástandinu í
borginni við það versta sem
fyrirfmnst í Stokkhólmi. Tón-
leika hinnar geðþekku hljóm-
sveitar The Prodigy kallaði sér-
fræðingurinn „fíkniefnaveislu
aldarinnar." 80% gesta voru
annað hvort uppdópaðir eða
fullir.
Tilhugsunin um að þessi
skríll komi til með að stjóma
landinu í framtíðinni er óneitan-
lega óþægileg. En bíðum við!!
Þetta er nú ekki í fyrsta sinn sem
lífstíll íslenskra unglinga fer
fyrir brjóstið á siðgæðisvörðum
samfélagsins. Grípum niður
grein eftir Jóhannes Helga sem
birtist í Birtingi árið 1955. Þar
segir m.a:
„Á daginn slæpist ungviðið á
speglasjoppum, sláandi fimm-
kalli fyrir ísglundri og vindling-
um; á nóttinni þegar hleypt hefur
verið úr danshúsum slæst það í
kringum pylsuvagnana og ryðst
ölmótt og illa til reika fram og
aftur um miðbæinn og spýr og
grætur utan í húsveggi fram eftir
nóttu. Þá hefur þessi lýður farið
á mis við þjóðemi sitt, talar ekki
Ný ráðnir starfsmenn Neistaflugs fyrir framan Egilsbúð en þar
mun stór liluti af skemmtidagskrá verslunarmannarhelgarinnar
fara fram, a.m.k. allir stœrstu dansleikirnir. Ljósm. S.O.
997
Dagskrá þjóðhátíðardagsins í Meskaupstað
verður með hefðbundnum hætti og
verður birt í heild í dreifibréfi sem verður
borið út í öll hús eftir helgi.
Af dagskrárliðum má nefna:
17. júní frjábíþróttamót,
ratleik,
diskótek í félagsmíðstöðlnni fyrir 10 ára og yngri
og í Egilsbúð fyrir 11 ára og eldri.
5krúðgangan verðurfrá Mesbakka kl. 14.00.
5tjórn Þróttar
íslensku nema að nafninu til og
gengur undir annarlegum orð-
skrípum í stað skírnarnafna...
Smápattar rotta sig saman í
skipulögð þjófafélög, dýr eru
kyrkt, jafnvel fiskum misþyrmt,
það er skotið á fólk, saklausir
menn barðir til óbóta, rændir og
gengið næst lífi þeirra. Sama er
að segja um velsæmið. Það
heyrir til tíðinda að lagleg ógift
stúlka nái tvítugsaldri án þess að
verða barnshafandi“.
Svo mörg vom þau orð en
þetta eru alveg dæmigerð skrif
manna sem telja það sitt hlut-
verk að veita þjóðinni menning-
ar- og siðferðilegt uppeldi. Oft
finnst manni málflutningur af
þessu tagi einkennast af fordóm-
um í garð unglinga og þeim
sýndur lítill skilningur. Maður
fær það á tilfinninguna að bók-
staflega allir unglingar séu hass-
reykjandi sýmhausar og úrræðin
eru nánast engin. Með þessum
skrifum er ég ekki að gera lítið
úr þeim vandamálum sem tengj-
ast vímuefnaneyslu heldur er ég
einungis að benda á það að
kannski er verið verið að gera of
mikið úr of litlu.
Við getum notað frétt sem
birtist í DV þann 25. september
árið 1985 sem dæmi um þetta,
en þar stóð orðrétt: „Ungt fólk í
Neskaupstað hefur að undan-
fömu stundað þá iðju að tína
villisveppi sem það snæðir til
þess að komast í vímu.“ Það er
engu líkara en að allir unglingar
bæjarins hafi vaðið um í sveppa-
vímu haustið 1985 þó mig gruni
nú að þetta hafi ekki verið stór
hópur sem stundaði þetta að
jafnaði.
Ég held að við megum ekki
taka of mikið mark á skýrslu
sænsku undralöggunnar. Hún er
að rnínu mati ekki byggð á
sterkum aðferðafræðilegum
grunni og mér finnst eins og
rannsakandinn taki ekki eftir því
að sú tíska sem er rikjandi rneðal
ungmenna í dag er þannig að við
getum auðveldlega borið ungling í
dag saman við einhverja staðl-
aða ímynd af fíkniefnaneytanda
og dregið þá ályktun að öll ung-
menni í dag séu á kafi í dópi.
Ég held að ástandið sé nú
ekki eins slæmt og margir halda.
En svona er þetta bara, unglingar
á öllum tímum virðast þurfa þola
neikvæða untfjöllun fjölmiðla
og annara siðapostula. Þeir
verða bara að sætta sig við það
meðan á því stendur og þegar
fram líða stundir geta þeir tekið
við.
Filmuvinnsla flyst til Nesprents
Fyrir nokkrum mánuðum var
sagt frá því í hér í blaðinu að
filmuvinnsla þess hefði flutt tii
Héraðsprents. Einnig var sagt að
um tímabundna ráðstöfun væri
að ræða og að stefnt væri að því
að fullvinna blaðið í Nesprenti
eins og gert hefur verið frá
upphafi. Nú í síðustu viku var
þetta gert og var það í kjölfar
fjárfestingar prentsmiðjunar.
Keypt hefur verið filmuút-
keyrsluvél af gerðinni Lino-
tronic 260, Linotype Hell og
svokallaður PostScript RIP 40.
Að sögn Guðmundar Har-
aldssonar, prentsmiðjustjóra,
mun þetta nýja tæki stórbæta
hraða og gæði allra verka sem
unnin eru í prentsmiðjunni. Öll
verk verða hér ei'tir keyrð út á
filmu beint úr tölvu, sem þýðir
eins og áður segir bæði meiri
gæði ásamt mikilli hraðaaukn-
ingu og vinnsluferli verka í
prentsmiðjunni styttist til muna.
Guðmundur Haraldsson og Sigrún Geirsdóttir fyrir framan
tölvuna, en í kjölfar nýrrar fjárfestingar verður stafrœni þáttur
vinnslunnar œ mikilvœgari. Ljósm. as