Austurland - 13.08.1998, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1998
Austuriand
Málgagn Alþýðubandalagsins á Austurlandi
Utgefandi: Kjördæmisráð AB á Austurlandi
Kitncfnd: Einar Már Sigurðarson, Elma Guðmundsdóttir, Guðmundur
Bjarnason, Smári Geirsson og Steinunn L. Aðalsteinsdóttir
Ritstjóri: Aðalbjörn Sigurðsson (ábm) S 4771383og8994363
Blaðamaður: Sigurður Ólafsson K 477 1066 og 895 8307
Auglýsingastjóri: Erla Traustadóttir S 477 1740
Ritstjórn, afgreiðsia og auglýsingar:
Hafnarbraut 4 - Pósthólf 75 - 740 Neskaupstaður
S 477 1750 og 477 1571 - Fax: 477 1756
Netfang: austurland@eldhorn.is
Austurland er aðili að Samtökum bæjar- og
héraðsfréttablaða
Umbrot og hönnun: Austurland
Prentun: Nesprent hf.
Um stöðuna í kennaramálum
Eins og sagt er frá annarsstaðar í þessu tölublaði Austurlands er
nú orðið ljóst að ekki fást réttindakennarar nema í hluta þeirra
kennarastaða sem fylla þarf í haust. Þetta er hlutur sem við
Austfirðingar erum ekki óvanir. Það sem hinsvegar er nýtt í
stöðunni er að í fyrsta skipti í mörg ár lítur út fyrir að ekki náist
að manna allar kennarastöður á höfuðborgarsvæðinu með
réttindakennurum. Þetta gerist þrátt fyrir ný gerða kjarasamn-
inga við kennara og það má öllum ljóst vera að sú launahækkun
sem þar var gerð er langt frá því að vera nægjanleg. Bent hefur
verið á að í góðærinu sem ríkir þessa dagana fást kennarar ekki
til starfa þar þeim býðst næg önnur atvinna, þar sem launin eru
miklu hærri. Það er ljóst að nóg er til af kennurum í landinu.
Vandamálið er einfaldlega það að mjög stór hluti þeirra skilar
sér ekki inn í skólana eða flýr kennslu launanna vegna. Dæmi frá
Háskóla íslands um kennara í tölvunarfræði er líklega einna
mest sláandi en því miður verðum við oftar og oftar vitni að
slíkum hlutum hjá almennum kennurum sem ekki treysta sér að
stunda kennslu launanna vega þrátt fyrir að hafa fullan hug á að
vinna við fagið.
Þetta er umhugsunar vert, en fyrst þessi staðreynd liggur á
borðinu, hvers vegna er ekkert gert til að leysa vandann? Það
virðist vera að þar sem alþingis- og sveitarstjómarmenn sjái ekki
beinan hagnað í því að reka fullnægjandi menntakerfi þá er
ekkert gert í málinu og fyrst beint fjárhagslegt tjón hlýst ekki af
eru hlutirnir ekki leystir. Þó er ljóst öllum þeim sem það vilja
vita að þjóðfélagið er að tapa ómældum upphæðum í glötuðum
tækifæmm meðan börnin okkar eru að fá ófullnægjandi þjónustu
í skólum landsins.
Það liggur einnig á borðinu að foreldrar eru famir að hugsa
miklu meira en áður um það hversu góð kennsla og aðstaða er í
þeim skólum sem börn þeirra ganga í. Þannig er í dag algengt að
börn em flutt milli skóla í Reykjavík; ef foreldrum líkar ekki
kennslan í einum skóla, þá er bamið einfaldlega flutt þangað
sem foreldramir telja að hún sé betri. Þetta þýðir einnig að fólk
er í auknum mæli farið að skoða hversu góða menntun bömin
þeirra á eftir að fá ef það flyst út á land. Það má ljóst vera að
bamafólk hugsar sig tvisvar um að flytja á stað þar sem kannski
meirihluti kennara er réttindalaus og aðstaðan ekki fullnægjandi.
Lausn á kennaravandanum er byggðamál jafnt sem mjög
brýn þjóðfélagsleg þörf er á að leysa vandann. Ráðamenn þurfa
að hætta að hugsa endalaust í beinhörðum krónum og aurum og
gera sér grein fyrir að mikil verðmæti liggja í þekkingu, og að ef
að við viljum tryggja gott menntastig þjóðarinnar þarf það að
hefjast í gmnnskólunum.
as
Á að samelna Þrólt og KVA?
í sumar hafa heyrst hugmyndir
um hvort ekki beri að sameina
Þrótt og KVA. KVA hefur átt
góðu gengi að fagna í sumar í 1.
deild, en nú er orðið ljóst að
Þróttarar munu ekki komast upp
úr 3. deild. Því hafa menn velt
því fyrir sér hvort ekki bæri að
sameina liðin til að stækka og
styrkja leikmannahópinn og
auðvelda róðurinn fjárhagslega.
Um þetta virðast hins vegar vera
afar skiptar skoðanir. Sameining
íþróttafélaga virðist nefnilega
ekki síður vera viðkvæmt mál en
sameining sveitarfélaga. Þeir
sem eru á móti sameiningu
benda á að liðin eru að spila í
sitthvorri deildinni og myndi
sameining væntanlega þýða nýtt
nafn og þar með að hið nýja lið
þyrfti að byrja í þriðju deild.
Andstæðingar norðan Odds-
skarðs hafa einnig bent á að ef
að hið nýja lið ætlaði að stefna á
að komast í úrvalsdeild þá
þyrftir að fara út í mikil leik-
mannakaup og máli sínu til
stuðnings benda þeir á það að í
núverandi liði KVA eru flestir
leikmenn aðkomumenn en í liði
Þróttar eru aðeins tveir aðkomu-
menn. Þetta sé því spuming um
hvort menn ætla að halda úti liði
hálfatvinnumanna eða leyfa
heimamönnum að spreyta sig.
Þeir sem eru fylgjandi samein-
ingu benda á að hið nýja lið gæti
náð góðum árangri þótt ekki yrði
farið út í mikil leikmannakaup
og ef að kaupa þyrfti leikmenn
þá væri það auðveldara fjárhags-
lega. Einnig hafa menn bent á að
nýtt sameiginlegt lið yrði mikið
sameiningartákn fyrir hið nýja
sveitarfélag. Af þessu er ljóst að
spurningin um sameiningu lið-
anna er ekki einföld en menn
verða samt að taka hana alvar-
lega og íhuga vel hvort þetta sé
ekki mögulegt í nánustu framtíð.
Ókeypis smáar
Þróttur fer ekki upp
Til sölu eða leigu
Þriggja herbergja íbúð að
Urðarteigi 7, neðri hæð.
Uppl. ís. 565-2774
eða 477-1286
Ibúð til leigu eða sölu
Nesbakki 13 í Neskaupstað.
Laus 1. sept. '98
Upplýsingar gefa Þráinn og
Jóna í síma 466 1884
Óska eftir
Vil kaupa 2 handsnúnar
færarúllur
Uppl. ís. 474 1191
Arni
Til sölu eða leigu
Einbýlishús að Þórhólsgötu 6.
Uppl. gefur Snorri í síma
455-4402 eða 453-6265
Nú er orðið ljóst að Þróttarar
fara ekki upp í 2. deild í sumar.
Þróttarar eiga bara eftir einn leik
við Hött og því geta þeir ekki
náð Leikni að stigum. Hlynur
Eiríksson þjálfari liðsins segir
þetta vissulega vera ákveðin
vonbrigði en hann er þó ekki
ósáttur við gengið í sumar. „Við
erum með lang yngsta liðið í
deildinni og erum nánast ein-
göngu að nota heimamenn. Það
eru margir efnilegir leikmenn í
liðinu og mér finnst þeir hafa
staðið sig vel í sumar, liðið hefur
verið að leika skemmtilega
knattspyrnu og skorað mörg
mörk. Mannskapurinn er ekkert
óánægður með sumarið og það
er það sem skipti máli“, sagði
Hlynur.
QýSidsanna líf
Hið sanna líf er ekki lífholdsins
heldttr líf ándans. Því bœði menn
og dýr eiga líf holdsins, en líf
andans eiga aðeins hinir hrein-
hjörtuðu, sem hafa drukkið afhaft
trúar og neytt af ávöxtum
fttllvissu.
í
Austfirðingur vikunnar
Fullt nafn? Jón Björn Hákonarson er að Þessu sinni Jón BJörn Hákonarson
Fæðingardagur? 27. janúar 1973
Fæðingarstaður? Neskaupstaður
Heimili? Óðalssetrið Efri Miðbær
Núverandi starf? Þjónustufulltrúi Sparisjóðs
Norðfjarðar
Önnur störf? Hin ýmsu félagsmálastörf
Fjölskylduhagir? Einhleypur
Bifreið? BENS - stór BENS
Uppáhaldsmatur? Lambalæri
Versti matur? Kjötfars, ég hata kjörfars
Helsti kostur? Jákvæður og oftast geðgóður
Helsti ókostur? Get ekki sagt nei
Uppáhalds útivistarstaður? Fannadalur
Hvert langar þig mest að fara? Til Grikklands
Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Fannadalur
Áhugamál? Félagsmál og hestar
Uppáhalds tónlistarmaður? Dean Martin
Uppáhalds íþróttafélag? Blær
Hvað metur þú mest í fari annarra? Jákvæðni og heiðarleika
Hvað dettur þér í hug þegar þú heyrir orðið kynnir? Billy Cristal og ég
Mottó? Lifa lífínu lifandi
Uppáhalds stjórnmálamaður? Bill Clinton
Skemmtilegasta sem þú gerir? Sofa
Leiðinlegasta sem þú gerir? Vaka