Austurland - 13.08.1998, Síða 5
FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1998
5
Framtíð Hússtjórnarskólans á Hallormsstað ræðst í vetur
Birna Kristjánsdóttir, nýráðinn skólastjóri Hússtjórnarskólans og
Helga Hreinsdóttir, formaður skólanefndar, sitja í „Höllinni“ en
undir því nafni gengur stofan í Húsó. Ljósm. as
Eins og Austurland hefur þegar
skýrt frá hefur Hússtjómarskól-
inn á Hallormsstað verið gerður
að sjálfseignarstofnun. Skólinn
hefur lengi barist fyrir lífl sínu
og sem dæmi má nefna að síð-
ustu þrír menntamálaráðherrar
hafa ætlað að leggja skólann
niður eftir að hafa heimsótt stað-
inn. Þetta á einnig við um
núverandi ráðherra menntamála,
Bjöm Bjamason. Björn hætti við
að leggja skólann niður eftir að
hafa komið í heimsókn og þegið
kvöldverð í boði skólans. Bjöm
ákvað að skólinn yrði best
kominn undir verndarvæng
Menntaskólans á Egilsstöðum.
Þetta var hins vegar gert án þess
---------------------------r------
Menningardagskránnl „A
Seyðl“ að Ijúka
Menningardagskránni „Á Seyði“
lýkur formlega um helgina en
þetta er fjórða árið sem Seyðis-
fjarðabær stendur fyrir slíkri
dagskrá. Austurland hafði sam-
band við Aðalheiði Borgþórs-
dóttur til að forvitnast um það
hvemig dagskráin hefði gengið
og hvað boðið hefði verið upp á
en hún hefur ásamt Grétu Garð-
arsdóttur skipulagt „Á Seyði“
þetta árið.
„Þetta hefur gengið prýðilega
í sumar en þó er hægt að segja að
það hafi verið óvenju lítið um
ferðamenn vegna veðurs. Höfum
ekki tekið það nákvæmlega út
hvemig aðsóknin á menningar-
viðburði í tengslum við „Á
Seyði“ hefur verið en það er þó
ljóst að hún er minni en undan-
farin ár. Það hefur einnig verið
mjög misjafnt hvernig einstaka
viðburði hafa verið sóttir, sumir
hafa gengið vel en aðrir verr,
eins og gengur"
En hvernig gekk að
skipuleggja þessa hátíð?
Þetta gekk ótrúlega vel.
Menn eru farnir að heyra af
þessari dagskrá okkar og vilja
gjaman taka þátt. Það má í raun
segja að það sé orðið eftirsótt að
komast að, t.d. eru þrír aðilar
þegar búnir að lýsa áhuga á að
koma hér að ári.
Dagskráin í sumar var að
vanda fjölbreytt. Boðið var upp
á myndlistarsýningar, tónleika,
hljómstefnu, víkingahátíð ásamt
mörgu fleiru. Sérstaklega ber að
minnast að vegna skyndilegs
fráfalls föður síns gat Björn
Roth, myndlistamaður, ekki sýnt
í Skaftfelli eins og fyrirhugað
var. Að tillögu Péturs Kristjáns-
sonar í samráði við Björn var því
ákveðið að setja upp myndlistar-
sýningu í minningu og til heið-
urs Dieter. Sýningin byggði á
sömu hugmyndafræði er lá að
baki útgáfu tímaritsins —Tímarit
fyrir allt-, sem Dieter gaf út á
ámnum 1975 til 1987. Tímaritið
byrjaði sem hefti upp á 32 síður,
en endaði sem bók upp á 1252
síður með viðaukaútgáfu upp á
144 síður. Tímaritið byggði á
því að allir gátu sent inn það efni
sem þeir vildu til birtingar.
Hugmyndin sem myndlistarsýn-
ingin byggði því á, er að allir
gátu sent inn eitt myndverk til
uppsetningar. Haft var samband
við nokkra myndlistarmenn sem
tóku þessari hugmynd afar vel.
Yfir 50 verk, jafnt frá lands-
þekktum listamönnum og minna
þekktum bárust á sýninguna.
Menningardagskránni lýkur,
eins og áður sagði, formlega um
helgina og verður mikið um að
vera á Seyðisfirði. Þar ber lík-
lega hæst hið árlega landsmót
hagyrðinga sem verður haldið í
Herðubreið á laugardagskvöld-
ið. Nafnkunnir hagyrðingar
víðsvegar að af landinu munu
kveða hvum annan í kútinn svo
stíft að menn munu vart vatni
halda. Hákon Aðalsteinsson
verður veislustjóri og sýndi hann
framkvæmdastjórum “Á Seyði”
hvemig vanir menn snara fram
vísu án þess að roðna hið
minnsta og fær hún að fljóta
með;
Gamla kroppinn gleddi mest
glaður mjög ég yrði
ef ég gæti faðmað flest
fljóð á Seyðisfirði.
Búist er við að um eða yfir
300 manns komi á mótið og
vitað er til þess að menn hafi
“sparað” sig í allt sumar til að
geta mætt ferskir til leiks.
Einnig verður margt annað á
döfinni, t.d. verður aukasýning á
þrívíðum verkum leikskólabama
á Austurlandi sem unnin eru úr
mjölpokum, fiskikössum og
umbúðum utan af neysluvörum
heimilanna. Verkin voru send
inn til sýningar á menningardegi
bama “Karlinn í tunglinu’98”
Þátttakendur vom frá leikskól-
unum Hádegishöfða Fellabæ,
Sólvöllum Seyðisfirði og Leik-
skólanum á Djúpavogi.
Þeim sýningum sem staðið
hafa yfir í sumar verður form-
lega lokað á sunnudeginum,
þannig að þeir sem ekki hafa
þegar skellt sér á Seyðisfjörð og
skoðað hvað um er að vera ættu
að drífa sig nú um helgina.
En þrátt fyrir að „Á Seyði“
ljúki formlega um helgina er
langt frá því að öllu menningar-
stússi þeirra Seyðfirðinga Ijúki
um leið. Næsta miðvikudag
munu t.d. verða tónleikar í
tónleikaröðinni Bláa kirkjan, þar
sem Muff Worden mun sjá um
sönginn en Steinunn Birna
Ragnarsdóttir mun leika undir á
píanó. Einnig verða fleiri tón-
leikar í þessari tónleikaröð, 25.
ágúst munu Castelbay, banda-
rískur dúett flytja keltneska
tónlist og sjómannalög. Tón-
leikaröðinni lýkur síðan 2.
september með pompi og prakt,
en þá mun vera boðið upp á
„Inga T. kvöld“ með Bergþóri
Pálssyni, Garðar Eymundssyni
og fleirum.
Það er því ljóst að engum
þeim sem heimsækja Seyðis-
fjörð á næstunni ætti að þurfa að
leiðast.
að með fylgdi nokkur aukafjár-
veiting til ME í samræmi við
kostnað við verklegt nám og því
gekk fyrirkomulagið ekki upp.
Því var boðið upp á þann kost að
gera skólann að sjálfseignar-
stofnun. Skólinn fær áfram fjár-
magn frá Menntamálaráðuneyt-
inu en hann hefur nú eignast
bakhjarla sem eru SSA, Búnað-
arsambandið, Kvenfélagasamtök
Austurlands og Ferðamálasam-
tök Austurlands.
Nýlega var ráðinn nýr skóla-
meistari við Húsó og varð Bima
Kristjánsdóttir fyrir valinu.
Bima er með MA gráðu í listum
frá bandarískum háskóla og hún
stundaði einnig nám í menning-
armiðlun í Kaupmannahöfn, en
menningarmiðlun er grein sem
byggir á miðlun menningar milli
fólks og frá stofnunum út í sam-
félagið. Bima er enginn nýgræð-
ingur í skólastjórnun því hún var
skólastjóri Heimilsiðnaðarskól-
ans í Reykjavík í sex ár. Bimu
lýst afar vel á nýja starfið og lít-
ur á það sem ögmn sem gaman
verði að takast á við.
stjóma heimili. Það má því segja
að námið í Húsó samrýmist
stefnu Bjarnar Bjarnasonar að
kenna fólki lífsleikni.
Að sögn Birnu mun næsti
vetur verða ráðandi um framtíð
skólans. Leitast verður við að
mynda framtíðarstefnu sem
tryggir skólanum sess innan
skólakerfisins. Birna segir vera
ljóst að það verði forgangsverk-
efni að finna skólanum öruggan
rekstrargrundvöll því að for-
senda árangurs sé að stofnunin
beri sig fjárhagslega. Hún segir
það vera algerlega nauðsynlegt
að námið við skólann verði
metið til eininga inn í framhalds-
skólanna því annars sé hætt við
að fólk telji námið við Húsó tefja
menntaskólanám sitt. Hins vegar
telur Birna skólann einnig vera
álitlegan kost fyrir þá sem ætla
ekki í menntaskóla en vilji læra
hagnýta hluti sem geti tryggt
þeim atvinnu. Birna segir einnig
að námið sé afar hentugt að því
leyti að fólk eigi afar auðvelt
með að fá sumarvinnu við
ferðaþjónustu að námi loknu og
Birna skólastjóri við hið glœsilega hús Hússtjórnarskólans sem
byggt var um 1930 en nýlega var byggt við húsið og það endurbœtt
að innan. Ljósm. as
En hvers konar skóli er Húsó?
Að sögn Bimu skólameistara og
Helgu Hreinsdóttur, formanns
skólanefndar, er ekki um að
ræða gamaldags húsmæðra-
skóla. Námið er afar fjölbreytt
og má segja að það nýtist fólki
bæði í lífinu og einnig sem
undirbúningur fyrir frekara nám
í matreiðslu, framreiðslu,
ferðamálum, fatasaumi og
fatahönnun o.fl. Skólinn er því
prýðilegur fyrir þá sem hafa
hugsað sér að læra einhverja af
þessum greinum en vilja kynnast
þeim áður en haldið er út í
frekara nám. Áhugi er fyrri að
taka upp samstarf við
Menntaskólann í Kópavogi og
skóla í iðn- og textílgreinum og
geta nemendur þá fengið nám
sitt við Hússtjórnarskólann á
Hallormstað metið tileininga í
þeim skólum. En námið við
Húsó er einnig frábær undir-
búningur undir lífið því þar læra
menn að spjara sig á eigin
spýtur, elda góðan mat og
það geti tryggt afkomu fólks á
meðan það er í menntaskóla eða
háskóla að hafa góða sumar-
vinnu.
Vonandi mun ganga vel að
finna skólanum rekstrargrund-
völl því að Húsó er afar sérstak-
ur staður þar sem góðir andar
svífa yfir vötnum og þeir sem
stunda nám þar fá gott veganesti
út í lífið.
Bílvelta í
Breiðdalsvík
Bílvelta varð í Breiðdalsvík
skömmu eftir hádegi á sunnu-
daginn. Þrír Þjóðverjar voru í
bflnum, þar af eitt barn. Enginn
slasaðist alvarlega að sögn
lögreglu, en einn farþegi var
fluttur á sjúkrahús til aðhlynn-
ingar. Talið er að bíllinn hafi
lent í lausamöl, snúist á blautu
malbikinu og farið nokkrar
veltur.